| 28.1.2010 00:30 Ó borg, mín borg! Ágúst Sigurðsson Kirkjubæ ![]() Ég á oft leið um Reykjavík, höfuðborg okkar Íslendinga. Þangað þarf maður í mörgum erindagjörðum, vegna vinnu og ýmissa snúninga enda býr þar stór hluti landsmanna. Höfuðborgarsvæðið er miðstöð stjórnsýslunnar og viðskiptanna en ekki síður menningarinnar. Þar eru helstu leikhús þjóðarinnar, kvikmyndahús, skemmtistaðir og fótboltahallir. Þar eru á næstu grösum Sinfónían og Smáralind, Kaplakriki og Kaffivagninn. Ys og þys og allt sem prýða má einn höfuðstað og þangað er margt að sækja. Mér þykir vænt um borgina mína – Reykjavík. Lesa meira... |
| 26.1.2010 19:23 Varðandi frétt sem birtist inni á Eiðfaxa fyrr í dag Blekkingavefurinn Hestafréttir ![]() Hestafréttir.is hefur borist bréf vegna fréttaskrifa Eiðfaxa fyrr í dag. Lesa meira...Hér er bréfið Ég undirritaður tek á mig sök í þessu máli og hefur ekkert með Fjölnir Þorgeirsson / hestafréttir.is að gera. Ég rek vefsíður víðsvegar um veröldina og hef verið að nýta mér vefauglýsingar á borð við google, adserver hjá Microsoft, FullTraffic, Yahoo og fleiri. Í góðri trú!, Hestafréttir.is er og hefur verið að opna vefi í öðrum löndum undanfarið og var þessi auglýsingaherferð eitt af þeim verkefnum til að hleypa meira lífi í vefi Hestafrétta og var þetta í skiptum fyrir auglýsingu inni á Hestafréttum. |
| 6.1.2010 01:46 Riðið út á Rauðavatni ![]() Hestafréttir fékk þetta video sent frá Elvari Erni Reynisyni þar sem hann hitti tvær ungar hesta stúlkur á Rauðavatni síðastliðinn laugardag. það er fátt skemmtinlegra en að ríða á ís á góðum hestum og við eigum að nota hvert tækifæri sem gefst.
Lesa meira... |
| 2.6.2009 13:20 Gæðingamót Andvara 2009 fimmtudagur 28.maí 2009 ![]() Gæðingamót Andvara fer fram helgina 6. - 7. Júní. Skráning á mótið verður þriðjudagskvöldið 2.júní kl: 20-22. Einnig er tekið við skráningum í síma 896-8707 eða 868-5995 gegn kortanúmeri. Ekki er tekið við skráningum eftir þennan tíma. Skráningargjöld eru 3000 kr fyrir ungmenni, A- og B-flokk og unghross í tamningu, 2500 kr fyrir börn og unglinga, 2000 kr fyrir tölt og skeið og 1000 kr fyrir polla. Lesa meira... |
| 21.4.2009 15:40 Það eru 2 skoðun/anir á þessari frétt Hafa skal það er sannara reynist Bréf eftir Hólmgeir Valdemarsson ![]() Hestafréttum barst bréf frá Hólmgeiri Valdemarssyni, en í bréfinu er Hólmgeir að lýsa óánægju sinni á skrifum Jens Einarssonar á www.seisei.is um nafnagift Top Reiter-hallarinnar sem nýlega var vígð fyrir norðan. Jens Einarsson er okkur hestamönnum vel kunnur fyrir frábæra fréttamennsku og góðar greina. Hér fyrir neðan er umrætt bréf.
Lesa meira... |
| 5.4.2009 23:03 Páskamót Sleipnis Hestamannafélagið Sleipnir í samstarfi við Lögmenn Suðurlandi, Baldvin og Þorvald og Toyota Selfossi munu halda tölt- og skeiðmót í Ölfushöllinni þann 8. apríl. Keppt verður í tölti í flokkunum.17 ára og yngri, opinn flokkur og áhugamenn. Einnig verður keppt í skeiði í gegnum höllina. Lesa meira... |
| 29.1.2009 16:45 Styrkur til Söguseturs íslenska hestsins aukinn um milljón ![]() Sveitarfélagið Skagafjörður mun ekki veita styrki til manningarmála á árinu 2009. Þess í stað hvetur Sveitarfélagið aðila í menningarlífi til að sækja um styrki til Menningarráðs Norðurlands vestra, en þetta kemur fram á fréttavefnum Feykir.is. Aðrar styrkbeiðnir voru hins vegar afgreiddar í byggðaráði í vikunni og m.a. veittur 100.000 kr. styrk til kaupa á flygli sem húsnefnd Félagsheimilisins Höfðaborgar á Hofsósi sótti um. Lesa meira... |
| 23.1.2009 09:18 Sölusýning í Hrímnishöllinni Önnur sölusýning í Hrímnishöllinni er nú á laugardaginn komandi kl: þrjú og er skráning með ágætum. Segja má að sala eftir fyrstu sýninguna sem var í nóvember hafi verið góð. þeir sem stóðu að henni ákváðu strax þá að næst skildi vera sýning í byrjun Þorra. Lesa meira... |
| 2.11.2008 00:49 Er hófapressan á villigötum? Sigurður V.Ragnarsson skrifar ![]() Þeir blaðamenn sem fjalla um hestamennskuna vinna oft á tíðum vanþakklátt starf og sæta oft óréttmætri gagnrýni og þurfa því oft á tíðum að hafa harðan skráp til að standast álagið sem þessu fylgir. Þeim mun brýnna er að þeir fari varlega með sitt vald og gæti meðalhófs í efni þegar fjallað er um málefni hestamanna. Lesa meira... |
| 18.10.2008 11:58 Hugleiðingar um aðalfund Sörla Grein eftir Sigurð Ævarsson ![]() Nú líður senn að aðalfundi Sörla en 63. starfsári félagsins er að ljúka. Árið hefur verið gott og viðburðaríkt á flestum sviðum hestamennskunnar enda landsmótsár. Þetta eru tímamót svipuð og áramót eru í lífi fólks og þá er gott að staldra við, fara yfir það sem liðið er, meta árangur og íhuga svo næstu skref. Félagið er stórt, það er orðið næststærsta hestamannafélag landsins, hefur vaxið og þanist út að öllu leyti – eða er það ekki? Lesa meira... |
| 25.7.2008 09:10 Það eru 1 skoðun/anir á þessari frétt Ættu að vera lög í þessu landi sem bönnuðu mönnum eins og mér að eiga gæðinga eins og Stakk Sagan um Stakk frá Halldórsstöðum á Landsmóti 2008 Kári Stefánsson skrifar ![]() Íslenski hesturinn er sérstakur um margt fleira en fegurð og fjölbreyttan gang. Hann hefur til dæmis lagt töluvert að mörkum til sögu Íslendinga og hefur þar leikið hlutverk hins óræða afls sem enginn skilur til fullnustu. Til dæmis, hvaðan kom þessi hestur til landsins? Hann á engan sinn líkan hvorki í Noregi né annars staðar í Skandinavíu. Hvaðan fékk hann allar þessar gangtegundir? Lesa meira... |
| 4.6.2008 15:02 Hugleiðing um hestakrakka Grein eftir Arnar Kjærnested ![]() Ég hef verið að velta fyrir mér hvað þarf barn eða unglingur til bruns að bera til að ná árangri í hestaíþróttinni. Það eru ekki sömu lögmál í þessari íþrótt eins og flestum öðrum þar sem eljusemi dugnaður og geta eða hæfileikar skipta sköpum, eða hvað? Krakki sem spilar golf með ódýrum kylfum getur verið gæddur miklum hæfileikum sem ekki leyna sér þó svo að næsti krakki spili með PING kylfum sem kosta tíu sinnum meira og hann getur unnið og náð árangri eins og það er kallað. Lesa meira... |
| 24.5.2008 14:46 Spáir líflegri hrossasölu Stækkandi hestur með rúlluheyi ![]() „ÉG heyri á hrossakaupmönnum erlendis sem hafa lítið keypt hross hérlendis á undanförnum árum að nú vilja þeir koma og kaupa,“ segir Guðlaugur Antonsson, landsráðunautur í hrossarækt, en hann býst við miklum fjölda útlendinga á Landsmót hestamanna, sem fram fer á Hellu í sumar, og um leið líflegri hrossasölu. Erlendir kaupendur horfi nú fram á að staða íslensku krónunnar verði þeim hagstæð og það muni jafna stöðuna hjá hrossaræktendum því nokkur samdráttur hafi verið í sölu innanlands vegna efnahagsástands. Lesa meira... |
| 13.5.2008 09:27 Hófsöfnun og slys á hestamönnum. Grein eftir Ingimar Sveinsson ![]() Á síðastliðnu hausti var mikil umfjöllun í fjölmiðlum um slys á hestammönnum á undangengnu sumri. Þar kom m.a. fram að flest og alvarlegustu slysin urðu með þeim hætti að hesturinn hafði dottið og lent ofan á knapann. Íslenski hesturinn er þekktur fyrir að vera fótviss og traustur jafnvel þótt honum sé riðið á óslettu og ógreiðfæru landi. Eg man varla eftir að hestur hafi stungist með mig á mínum rúmlega 70 ára hestaferli þótt eg hafi riðið svo til á hverju ári bæði í byggð og yfir fjöll og firnindi víðsvegar um landið. Lesa meira... |
| 17.3.2008 12:04 Það eru 1 skoðun/anir á þessari frétt Tillitssemi kostar ekkert ![]() Mikið hefur borið á kvörtunum hestamanna um ótillitssemi mótorhjólamanna og annara vegfarenda, en ekki er ótillitssemi hestamanna sjálfra minni að því er virðist. Fjölgun í hestamennsku og aukin umferð á reiðvegum og inni í hesthúsahverfum er staðreynd og það kallar á aukna tillitssemi af hálfu okkar sjálfra. Undanfarið hefur slysum fjölgað, sem mörg má rekja til þess að við hestamenn sýnum ekki hvert öðru næga tillitssemi. Lesa meira... |
| 5.3.2008 13:32 Það eru 1 skoðun/anir á þessari frétt Reiðlist Grein eftir Herbert (Kóka) Ólason ![]() Það var blásið í lúðra þann 18. – 19. febrúar síðastliðin hjá Ula Reber, Þórarni og Kraft – Borba sá Portúgalski og Müller, þýskur dressúr kennari voru í boði fyrir 140 þjálfara – dómara og keppnismenn. Nú býr Uli ekki í alfaraleið, þannig að margir komu um langan veg – og þurftu að bregða búi á meðan. En til mikils var að vinna, enda öll kennsla á miklu reiki um þessar mundir, jafnvel reyndustu menn ekki sammála um leiðir og kennsluaðferðir. Lesa meira... |
| 4.3.2008 16:41 Hvaða máli skipta 10 sekúndur okkur? Grein eftir Hörð Harðarson ![]() Þegar við erum á ferð um þjóðvegi landssins og ökum á 90 km hraða á klukkustund förum við 25 metra á hverri sekúndu og erum við því 10 sekúndur að fara 250 metra. Síðustu helgina í þorranum fór ég í tamningatúr með unga meri bundna utan á taumhesti. Reið sem leið lá út Glóruveginn og yfir Gaulverjaveginn á reiðveginn sem liggur meðfram veginum og hélt í norðurátt. Ég hef það ekki fyrir vana að taka heimilishundana með mér að fenginni hörmulegri reynslu. Lesa meira... |
| 21.2.2008 15:49 Einföldum reiðmennskuna Grein eftir Lindu Karen Gunnarsdóttur ![]() Munnur hestsins er viðkvæmasti líkamspartur hans. Jafnvel minnsti þrýstingur á tannlausabil munnsins (hluti kjálkabeins) veldur hestinum miklum sársauka. Athyglisvert er að við hönnun og notkun hnakka er einna mikilvægast að hnakkurinn snerti aldrei hryggbein hestsins en sú regla gildir ekki um beislið. Í hestaheiminum í dag er almennt talið nauðsynlegt og jafnan eina haldbæra leiðin að málmi sé þrýst beint ofan á kjálkabein og ofurviðkvæma vefi í munni hestsins til að geta átt skýr tjáskipti við hann í reið. Fátt er eins fjarri sannleikanum. Lesa meira... |
| 19.2.2008 15:53 Það eru 1 skoðun/anir á þessari frétt Af hverju ekki mél? Grein eftir Pétur Andersen ![]() Það eru ýmis vandamál sem geta fylkt mélum. hesturinn: er sífellt að setja tunguna yfir mélin, lætur tungan lafa út, gapir, er sífellt að “vinna” í mélunum. Ríkur, hristir haus í sífellu, fer uppúr beisli, fer undir beisli, nuddar haus við allt nálægt, er styggur, fer gegn ábendingum, er staður, hleypir ekki á bak, spennir háls, rífur í taum, reynir að snúa við og.fl.ofl. Lesa meira... |
| 15.2.2008 17:20 Það eru 1 skoðun/anir á þessari frétt Hestamennskan hrein snilld ![]() Ómar Diðriksson, rakari á Hellu, var kosinn formaður hestamannafélagsins Geysis í Rangárvallasýslu í fyrra. Tvær reiðhallir eru í byggingu á félagssvæðinu og Landsmót 2008 verður haldið á Gaddstaðaflötum, félagssvæði Geysis. Ómar er hress og kraftmikill maður og miklar ekki fyrir sér þau stóru verkefni sem framundan eru. Lesa meira... |























