Almennar fréttir
12.3.2010 02:18

Sölusýningu Hestafrétta og Hest.is
Síðasti skráningardagur á Sölusýningu Hestafrétta og Hest.is sem haldin verður í Ölfushöllinni, næstkomandi föstudagskvöld kl. 19.30 Sýningin verður með svipuðu sniði og áður hefur verið, fólk sendir tölvupóst á netfangið elka@simnet.is, fær skráningarform sem það fyllir út og sendir til baka í síðasta lagi á hádegi.
 
Lesa meira...
11.3.2010 22:58

Sigurvegarar kvöldsins Viðar og Tumi
MDV
Þá er keppni lokið í gæðingafimi í Meistaradeild VÍS. Það var hinn knái knapi Viðar Ingólfsson, Frumherja, á Tuma frá Stóra-Hofi sem sigraði með einkunnina 7,87. Með þessum sigri skaust Viðar á toppinn í einstaklingskeppninni. Meðfylgjandi eru niðurstöður kvöldsins:


Lesa meira...
11.3.2010 16:28

Bein útsending í betri gæðum
Hestafréttir og meistaradeild Vís varða með beinaútsendingu frá Gæðingafiminni í kvöld. Búið er að laga nettenginguna í Ingólfshöll, nettengingin  hefur verið vandamálið. Búið er að setja upp aftur Emax tengingu og prufukeyra hana og lítur þetta bara vel út fyrir kvöldið. Þessi útsending verður frí til áhorfs.
Lesa meira...
11.3.2010 16:24

Svellkaldar konur 2010
Ístöltsmót kvenna “Svellkaldar konur” 2010 verður haldið í Skautahöllinni í Laugardal laugardaginn 13.mars. Forkeppni hefst kl.17:00 en A-úrslit hefjast kl.22:10. Allar fremstu reiðkonur landsins mæta til leiks með gríðarlega sterka hesta.  
Lesa meira...
11.3.2010 14:44

Ferðasaga Limsverja
Á laugardaginn síðast liðinn fór Hrossaræktardeild Fáks og Limsfélagið í sameiginlega vísinda- og skemmtiferð um Suðurland og að sjálfsögðu var sá mikli garpur Limur frá Leiðólfsstöðum tekinn út og skoðaður. Byrjað var að vísitera hjá því heiðursfólki Olil og Bergi á Syðri-Gegnishólum. Gaman var að sjá hvað þau eru vel hestuð, nánast öll hrossin úr þeirra eigin ræktun og fékk hópurinn flotta kynningu á hverjum einasta hesti í báðum hesthúsunum.
Lesa meira...
11.3.2010 14:39

Gott mót í Skagfirsku mótaröðinni
Í gærkvöld fór fram tölt í skagfirsku mótaröðinni og var það gott og vel hepnað mót. Skráningar voru góðar og hart var barist í öllum flokkum. Mjög góðir hestar og reiðmennska sást í öllum flokkum. Gamalkunnir keppnishestar áttu gott kombakk og ungir og efnilegir hestar gerðu líka vel. Næst verður keppt í fjórgangi þann 24. mars.  
Lesa meira...
11.3.2010 14:34

Æskan & hesturinn í Kastljósinu í kvöld
Stórsýningin Æskan & hesturinn 2010 verður um helgina í Reiðhöllinni í Víðidal. Eins og venja er, verða tvær sýningar hvorn daginn, kl. 13 og kl. 16. Frítt er inn meðan húsrúm leyfir.
Í kvöld, fimmtudagskvöld, verður generalprufa fyrir sýninguna og ætlar Kastljósið að vera í beinni útsendingu frá Reiðhöllinni.
Lesa meira...
11.3.2010 10:55

KB-Mótaröðin
Opna töltmótið í Faxaborg
Minnum á að skráningarfrestur rennur út kl. 22 í kvöld, mótið hefst kl 12 laugardaginn 13 mars á barnaflokk, nánari dagskrá auglýst síðar. Tekið er á móti skráningum hjá; birnat@yahoo.com gsm; 6996116 og hrafnhildurgu@torg.is gsm; 6910280
Lesa meira...
11.3.2010 10:52

Ráslistar á Svellkaldar 2010
Nú hefur verið dregið um rásröð á Svellköldum 2010 og birtist hún hér að neðan. Dagskrá mótsins verður kynnt fyrir helgi, en mótið hefst kl. 17 á laugardaginn með forkeppni í flokknum Minna vanar. 
 
Lesa meira...
11.3.2010 10:51

Húnvetnska liðakeppnin - fimmgangur og tölt unglinga ráslistar
Hér koma ráslistar fyrir fimmgang og tölt unglinga í Húnvetnsku liðakeppninni, það verða tveir inn á í einu og er prógrammið, tölt, brokk, stökk, fet og skeið í fimmgangi (skeiðið eru tveir sprettir fjær áhorfendum og einn í einu). Í tölti verður ekki snúið við og er prógrammið hægt tölt, hraðabreytingar og fegurðartölt.  
Lesa meira...
Eldri fréttir