Blogg
12.4.2010 23:56

Sigurbjörn tryggir stöðu sína
Með sigri sínum í 150m skeiði og fjórða sæti í gæðingaskeiði hefur Sigurbjörn Bárðarson, Lífland, heldur betur styrkt stöðu sína á toppnum í einstaklingskeppninni. Hann er nú kominn með 50 stig og er ekki hægt að segja annað en að hann sé kominn með aðra hendi á sigur annað árið í röð.
Lesa meira...
9.10.2009 11:06

Umgengni við hesta
Fróðleiksmolar
Nú til dags er tilgangurinn með samskiptum manns og hests bæði gagn og gaman. Þess vegna þarf í allri umgengi við hestinn að hafa eðli hans í huga við ólíkar aðstæður. Geti hestur t.d ekki flúið hugsanlega hættu þá reynir hann ef til vill að verja sig.
Lesa meira...
2.10.2009 11:15

Hesthúsið og umhverfi hestsins
Fróðleiksmolar
Hesturinn þarf oft að eyða miklum tíma í hesthúsinu hér á Íslandi sérstaklega yfir vetrartímann. Hesthúsið er hans heimili og það þarf að vera hreint, bjart, þurrt og laust við slysagildrur. Hesturinn getur ekki sjálfur ákveðið hvernig umhverfi hans er og því er mikilvægt að fylgjast með að honum líði vel, hann sé fóðraður reglulega, hafi alltaf aðgang að vatni og að það sé þurrt og þokkalegt í stíunni hans.
Lesa meira...
23.9.2009 12:19

Taumhald
Fróðleiksmolar
Hendur knapans og taumhald skiptir, eins og ásetan, miklu máli þegar kemur að samspili við hestinn og nákvæmari og öruggari stjórn hans. Munnurinn er viðkvæmasti hluti hestsins og auðvelt að meiða hann og gera ónæman með röngu taumhaldi.
Lesa meira...
20.9.2009 13:54
Það eru 1 skoðun/anir á þessari frétt
Líkamsbeiting, jafnvægi og einbeiting knapa
Fróðleiksmolar
Alveg eins og rétt öndun og jákvætt hugarfar eru forsendur þess að ná árangursríku sambandi við hestinn þá er rétt líkamsbeiting það líka. Knapinn þarf að finna jafnvægi sitt á baki hestsins til þess að geta fylgt hreyfingum hans af næmni og öryggi. Ef knapinn veit hvar þyngdarpunktur hans er á hestbaki þá fylgir margt jákvætt í kjölfarið, s.s. betri áseta og líkamsbeiting. Þyngdarpunkturinn er á milli nafla og baks.  
Lesa meira...
16.9.2009 08:07

Eiginleikar og sérkenni íslenska hestsins
Fróðleiksmolar
Margvísleg atriði skilja íslenska hestakynið frá öðrum og mikilvægt er að gera sér grein fyrir hverjir þessir þættir eru. Þar má meðal annars nefna fimm gangtegundir sem allar eru álitnar eftirsóknarverðar og þjálfaðar markvisst þegar hesturinn er notaður. Jafnframt má benda á mjög víðtæk ræktunarmarkmið fyrir kynið þar sem ræktunargripir eru valdir með tilliti til margra þátta, s.s. geðslags, ganghæfileika, útlits og fjölhæfni.
Lesa meira...
15.9.2009 18:14

Viðhorf manns og hests
Fróðleiksmolar
Nú verður fjallað um það hvernig maðurinn getur betur lært að skilja skapgerð og atferli hesta og nýtt sér þá þekkingu við tamningu og þjálfun þeirra. Líkt og áður hefur komið fram er hesturinn hópdýr sem sækist eftir að hafa leiðtoga sem hann getur virt og treyst.
Lesa meira...
14.9.2009 20:39

Áreiti, svörun, afleiðing
Fróðleiksmolar
Hesturinn lærir fyrst og fremst í gegnum afleiðingar gerða sinna samkvæmt keðjunni:
Áreiti > svörun > afleiðing
Eins og fram hefur komið þá bregst hesturinn eðlislægt við áreiti frá manninum, hann hugsar ekki með sér að í dag ætli hann að vera óþekkur, heldur bregst hann rökrétt við því áreiti sem hann verður fyrir, miðað við sína meðfæddu eiginleika.
Lesa meira...
21.4.2009 15:40
Það eru 2 skoðun/anir á þessari frétt
Hafa skal það er sannara reynist
Bréf eftir Hólmgeir Valdemarsson
Hestafréttum barst bréf frá Hólmgeiri Valdemarssyni, en í bréfinu er Hólmgeir að lýsa óánægju sinni á skrifum Jens Einarssonar á www.seisei.is um nafnagift Top Reiter-hallarinnar sem nýlega var vígð fyrir norðan. Jens Einarsson er okkur hestamönnum vel kunnur fyrir frábæra fréttamennsku og góðar greina. Hér fyrir neðan er umrætt bréf.
Lesa meira...
21.12.2008 19:36
Það eru 1 skoðun/anir á þessari frétt
Hvað er rétt söfnun?
Emanon bloggar
Söfnun er hugtak, eða ferli sem aldrei er hægt að hugsa sem upphaf, endalok né eitthvert augnablik. Söfnun er á meðal margra hugsanlegra samheita um klassíska reiðmennsku. Klassísk reiðmennska sækir alltaf í að auka burð afturfóta, í gegnum hinar fjölmörgu æfingar. Söfnun er eins og allt í réttri þjálfun, ýmist aukin eða minnkuð stig af stigi, verður að vera byggð á ítarlegri þekkingu knapans til þess að árangur eigi að nást.
Lesa meira...
Eldri fréttir