Fróðleiksmolar
25.5.2010 18:20

Þóroddur í 1. verðlaun fyrir afkvæmi
Eins og kom fram í samantekt Hestafrétta í gær, þá vantaði Þóroddi frá Þóroddsstöðum eitt afkvæmi uppá til að hljóta 1. verðlaun fyrir afkvæmi, en í dag var fimmtánda afkvæmi Þórodds sýnt í kynbótadómi. Það var hin 4. vetra gamli Þrumufleygur frá Álfhólum. Þrumufleygur er rétt við 1. verðlaunin, gaman verður að sjá hvort hann hækki í yfirlitssýningunni og nái inná Landsmót.
Lesa meira...
24.5.2010 21:14

1. verðlauna stóðhestar fyrir afkvæmi frá árinu 2000-2008
Frá árinu 2000-2008 hafa 28 stóðhestar hlotið 1. verðlaun fyrir afkvæmi. Stóðhesturinn þarf að ná að minnsta kosti 118 stigum eigi hann 15 til 29 dæmd afkvæmi sýnd í fullnaðardóm en séu afkvæmin 30 eða fleiri þá duga 113 stig. Svo kallaðar afkvæmasýningar eru haldnar yfirleitt í tengslum við lands- eða fjórðungsmót en einnig kemur fyrir að afkvæmahross komi fram á héraðssýningum.
Lesa meira...
30.12.2009 18:34

Litir
Fróðleiksmolar
Íslenski hesturinn hefur yfir 40 grunnliti og hundrað litaafbrigði frá leirljósu að jörpu, frá glóbjörtu til móvindótts. Algengustu grunnlitir íslenska hestsins eru tveir, rauður og brúnn og er sá rauði algengasti í mismunandi blæbrigðum. Mikill fjölbreytileiki í lit er einnig í faxi og tagli íslenska hestsins og ekki er alltaf sami litur á faxi og tagli hestsins. Litur á fótum hestsins getur líka verið breytilegur.
Lesa meira...
5.11.2009 13:53

Gangtegundir
Fróðleiksmolar
Hreyfingar hests, þegar hann hreyfist úr stað, eru kallaðar gangtegundir. Það hvernig hesturinn hreyfir sig, t.d. á hvaða gangtegundum og hvernig, er kallað ganglag. Til dæmis er talað um að hestar sem kjósa að tölta mest undir sjálfum sér séu töltgengir. Gott ganglag einkennist af því að hesturinn er frjáls, mjúkur og takthreinn í hreyfingum.
Lesa meira...
3.11.2009 13:31

Alhliða hestur – klárhestur
Fróðleiksmolar
Íslenski hesturinn er ýmist skilgreindur sem klárhestur/fjórgangshestur eða sem alhliða hestur/fimmgangshestur. Munurinn á þessum tveimur hestgerðum er í aðalatriðum sá að klárhesturinn býr einungis yfir fjórum gangtegundanna, þ.e. feti, brokki, stökki og tölti.
Lesa meira...
3.11.2009 11:29

Tíu ósýndar hryssur með yfir 125 stig í kynbótamati.
Tíu ósýndar hryssur eru með yfir 125 stig í kynbótamati. Þrjár efstu hryssurnar eru frá Auðsholtshjáleigu. Þóra Dís og Virðing eru báðar með 127 stig í aðaleinkunn. Þóra Dís er Álfasteins- og Gígjudóttir, Virðing er Álfasteins- og Vordísardóttir, en Vá frá Auðsholtshjáleigu sem er í 10. sæti er einnig undan Vordísi.
Lesa meira...
2.11.2009 19:11

Gangtegundir íslenska hestsins – undirbúningur fyrir þjálfun þeirra
Fróðleiksmolar
Það er meðal annars sérstaða íslenska hestsins að hann hefur fimm gangtegundir og að þær eru allar eftirsóknarverðar og nauðsynlegar fyrir heilsteyptan reiðhest. Eitt aðalmarkmiðið með þjálfun hans er að byggja upp, styrkja og þjálfa allar gangtegundirnar. Þetta gerir þjálfun hestsins afar fjölbreytilega og áhugaverða en jafnframt nokkuð vandasama og yfirgripsmikla.
Lesa meira...
30.10.2009 10:03

Tuttugu sýndar hryssur með yfir 125 stig í aðaleinkunn
Oft vilja hryssurnar gleymast í ræktunar hugleiðingum. Oftar heyrist spurningin: "undan hvaða hesti er þessi"? En á bakvið hvern gæðing er móðir og nú skulum við skoða hvaða hryssur eru með yfir 125 stig í aðaleinkunn. Fyrst eru það sýndar hryssur, tuttugu hryssur eru með 125-130 stig í aðaleinkunn.
Lesa meira...
30.10.2009 08:21

Ósýndir stóðhestar með yfir 125 stig í kynbótamati
Ef við tökum saman ósýnda graðhesta á Íslandi með yfir 125 stig í aðaleinkunn, þá koma 9 hestar til greina. Þar er ræktunarbú ársins Auðsholtshjáleiga með þrjá hesta. Jafnir með 127 stig í aðaleinkunn eru Toppur frá Auðsholtshjáleigu og Dagur frá Hjarðartúni.
Lesa meira...
29.10.2009 14:26

Sýndir stóðhestar með yfir 125 stig í aðaleinkunn
Það er endalaust hægt að velta sér uppúr ræktun, ræktunarmarkmiðum og kynbótahrossum. Smekkur manna er misjafn og ræktunarmarkmið hjá hverju búi eru einnig misjöfn eins og þau eru mörg. En ef við skoðum hið opinbera ræktunarmarkið þá miðar það að því að  rækta heilbrigðan, frjósaman og endinga góðan hest - hraustan íslenskan hest.
Lesa meira...
Eldri fréttir