HM Holland 07
30.8.2007 17:12

Myndir frá HM 07
Daníel Ben skrifar
Um eitt hundrað myndum var verið að bæta inn á Myndavef Hestafrétta. Þetta eru blandaðar myndir frá Heimsleikum íslenska hestsins sem haldnir voru í Hollandi fyrir stuttu. Það var ljósmyndari Hestafrétta Fjölnir Þorgeirsson sem tók myndirnar.
Lesa meira...
16.8.2007 16:28

Samantekt frá HM í Hollandi
Daníel Ben skrifar
Eins og öllum er kunnugt þá kom íslenska landsliðið í hestaíþróttum heim með 6 gull frá heimsleikum sem haldnir voru í Hollandi sem er einu gulli meira en á heimsleikum árið 2005. Íslendingar stóðu sig feikna vel á mótinu eins og sést í meðfylgjandi samantekt sem Hestafréttir hefur gert um mótið.
Lesa meira...
14.8.2007 18:29

Mannlífsmyndir frá HM 07 í Hollandi
„Drottinn minn dýri er þetta ég“
Daníel Ben skrifar
Mannlífið er ætíð fjölbreitt og skemmtilegt á hestamannamótum og er engin undantekning á því á heimsmeistaramóti. Fjölnir Þorgeirsson ljósmyndari og alsráðandi hjá Hestafréttum var vopnaður myndavélinni á HM 07 og er afrakstur hans kominn inn á Myndasafn Hestafrétta.
Lesa meira...
12.8.2007 16:19

Jóhann og Þórarinn samanlagðir meistarar
HM lokið í Hollandi
HM 07 í Hollandi - Daníel Ben skrifar
Lokaathöfn heimsleika í íslenskum hestaíþróttum var glæsileg í alla staði en henni var að ljúka núna í Hollandi. Tveir knapar voru verðlaunaðir fyrir samanlagðan árangur en það var Jóhann Skúlason eins og sagt var frá hér í vikunni varð hann meistari fyrir samanlagðan árangur í fjórgangi,  þ.e. tölt og fjórganur (íslensk tvíkeppni).
Lesa meira...
12.8.2007 13:52

Tölthornið til Noregs
Stian Pedersen tvöfaldur heimsmeistari
HM í Hollandi - Daníel Ben skrifar
Gríðarlega harðri keppni var að ljúka í töltinu á HM í Hollandi og var það  Stian Pedersen sem sigraði eftir dramatíska keppni með 8.56 í aðaleinkunn á Jarl frá Miðkrika og er hann því tvöfaldur heimsmeistari en hann sigraði fjórganginn fyrr í dag. Það leiðinlega atvik varð að það brotnaði úr hóf á Hvin frá Holtsmúla í miðri keppni og  varð Jóhann af heimsmeistaratitlinum af þeim sökum en Jóhann var efstur fyrir þetta óhapp.
Lesa meira...
12.8.2007 12:28

Eyjólfur rétt missti af gullinu
Jolly Schrenk er heimsmeistari í slaktaumatölti
HM í Hollandi - Daníel Ben skrifar
Jolly Schrenk er heimsmeistari í slaktaumatölti á Laxness vom Stördal með 8.50, en keppni var að ljúka núna á HM í Hollandi. Jolly átti frábæra sýningu og ekki vantaði fagnið hjá þjóðverjunum í áhorfendastúkunni þegar úrslitin voru kunn. Í öðru sæti varð Eyjólfur Þorsteinsson á Hárek frá Vindási með 8.29.
Lesa meira...
12.8.2007 11:35

Bergþór tvöfaldur heimsmeistari í skeiði
HM í Hollandi – Daníel Ben skrifar
Bergþór Eggertsson var í þessu að vinna 100m skeiðið á Lótus van Aldenghoor með 7.63 á HM í Hollandi. Þetta er annar heimsmeistaratitill Begga en hann vann einnig 250m skeiðið. Í öðru sæti varð Emelie Romland á  Mjölnir frá Dalbæ með tímann 7.71 og í þriðja sæta höfnuðu Nicole Mertz og Óðinn von Moorflur með tímann7.73. Siggi Sig endaði í fimmta sæti á Flugari frá Holtsmúla.
Lesa meira...
12.8.2007 11:07

Mannlífið á HM 07
HM í Hollandi - Daníel Ben skrifar
Mannlífið á HM í Hollandi er engu líkt og er talið að um 13.000 manns séu á svæðinu þennan loka dag mótsins. Fjölnir Þorgeirsson ljósmyndari Hestafrétta tók púlsinn á fólkinu og er ekki annað að sjá en að allir séu í topp formi og allir glaðir.
Lesa meira...
12.8.2007 09:42

Sér fréttaflokkur fyrir HM 07
Daníel Ben skrifar
Opnaður hefur verið sér fréttaflokkur á vef Hestafrétta sem inniheldur allar fréttir frá Heimsmeistaramóti  íslenska hestsins í Hollandi. Ef smellt er á fréttir þá opnast allir fréttaflokkar.
Lesa meira...
12.8.2007 08:48

TÖLT 9.0 - 9.5 - 9.5 - 9.5 - 9.5 = 9.50
Stian Pedersen heimsmeistari í fjórgangi
HM í Hollandi – Daníel Ben skrifar
Stian Pedersen átti frábæara sýningu í fjórgangi á heimsleikum í Hollandi í dag og vann örugglega á hesti sínum Jarl frá Miðkrika með einkunina 8.60. Jarl og Stian fengu 9.50 fyrir yfirferðatöltið og voru fagnaðarlætin gríðarleg eftir sýninguna. Í öðru sæti varð Lena Trappe á Vask Vom Lindenhof með 8.13 í aðaleinkunn og Birga Wild hafnaði í þriðja sæti á Hákon Vom Weisenhof með 7.70.
Lesa meira...
Eldri fréttir