Landsmót 2008
13.7.2008 20:34
Það eru 2 skoðun/anir á þessari frétt
Dökk hlið á Landsmóti, LM tjáir sig ekki
„þetta er bara æðislegt“
-segir framkvæmdastjóri Landsmóts
Sem blaðamaður á Landsmóti hestamanna 2008 þá get ég ekki annað en hrósað viðmóti, aðstöðu og tæknimálum sem að okkur stóðu. Netsamband og öll samskipti við þann aðila sem tók að sér það vandasama verk að vera tengiliður fjölmiðla var með þvílíkum sóma að mér hreinlega féllust hendur, og ekki ofsögum sagt að létt sé að gera mér til geðs. Telma takk.
Lesa meira...
12.7.2008 18:53

Lúther Guðmundsson og Landsmót 2008
Lúther Guðmundsson verslunarmaður í Hestagallerý er einn af landsmótsgestum sem sá nánast allar hliðar landsmóts. Lúther var með tvö af börnum sínum í keppni og svo var hann einnig með verslunartjald á svæðinu þar sem hann og Kolbrún kona hans stóðu vaktina. Hestafréttir tóku Lúther tali og spurðu hann út í hinar ýmsu hliðar landsmóts sem margar hverjar voru svartar.
Lesa meira...
12.7.2008 14:56

Horft á bak Landsmóti 2008
Pistill eftir Elku Guðmundsdóttir
Það verða ákveðin tímamót að loknu Landsmóti fyrir þá sem hrærast í þessum bransa.  Tímaskallinn var annars vegar fyrir Landsmót og hins vegar eftir Landsmót.  Það sem stendur uppúr fyrst og fremst er feiknalega mikil breidd af úrvals góðum hrossum.  Það lýsir sér best þegar maður er spurður hvaða hross stóð uppúr.... það stóð ekkert hross uppúr í mínum huga, breiddin er orðin svo mikil. 
Lesa meira...
7.7.2008 20:18

Sigurbjörn Bárðarson hundsvekktur
Sigurbjörn Bárðarson segist hundsvekktur yfir því að missa af sigurlaununum í A flokki gæðinga í hendur tengdasonar síns. Hann er staðráðin í því að mæta eftir tvö ár og hirða titilinn. „Þetta var alveg rosalega svekkjandi, nú er maður búinn að eiga langan keppnisferil og var þessi sigur það eina sem vantaði uppá“ sagði Sigurbjörn í viðtali á Stöð 2.
Lesa meira...
7.7.2008 14:15

Samantektarþáttur RÚV frá Landsmóti
Sunnudagur
RÚV sendi út samantektarþætti á hverju kvöldi frá Landsmóti hestamanna. Fyrsti þátturinn var sýndur síðastliðið þriðjudagskvöld. Nú er hægt að nálgast þátt gærkvöldsins (sunnudag) á Vef Sjónvarpi Hestafrétta.
Lesa meira...
7.7.2008 14:05

Hestar seljast betur vegna bágrar stöðu krónunnar
Viðtal við Hinrik Bragason hjá Hestvit
Hrossakaupmenn sjá mikla breytingu á sölu hrossa eftir fall krónunnar síðustu mánuði. Íslenski hesturinn hefur lengi notið sérstöðu og verið eftirsóttur meðal erlendra kaupenda. Fjöldi íslenskra gæðinga hefur verið seldur til Evrópu og víðar síðustu ár. Hinrik Bragason hefur verið í hestamennsku í tuttugu ár og er einn þriggja stærstu hrossakaupmanna á landinu. Árlega hefur Hinrik flutt út á annað hundrað hross.
Lesa meira...
7.7.2008 13:32

100 fréttir yfir Landsmótsvikuna á Hestafréttum
-minnum á sér fréttaflokk Landsmóts
Blaðamenn Hestafrétta og Ice Horse News skiluðu af sér 100 fréttum yfir Landsmótsvikuna . Allar þær fréttir sem skrifaðar voru á Hestafrettir voru þíddar yfir á ensku jafn óðum og eru aðgengilegar á www.icehorsenews.com. Við minnum  á sér fréttaflokk um Landsmótið sem er í bláu valstikunni hér að ofan merktur (Landsmót 2008) Þar er hægt að nálgast allar fréttir frá Landsmótinu ásamt ljósmyndum næstu vikurnar.
Lesa meira...
7.7.2008 12:01

Hruni frá Breiðumörk 2
Hrunafélagið minnir á að í dag, mánudaginn 7. júlí og á morgun 8. júlí, verður tekið á móti hryssum undir Hruna frá Breiðumörk 2 í girðingunni að Efra-Seli við Stokkseyri. Þórir Jónsson og Áslaug Fjóla Guðmundsdóttir hafa umsjón með hrossunum. Símar: 483 4488 - 847 3443 (Áslaug Fjóla) og 848 3172 (Þórir). Á hruni.is má sjá myndir af folöldum undan Hruna fæddum í sumar. Það sem einkennir hópinn er góð reising, fallegir litir og miklar hreyfingar.
Lesa meira...
6.7.2008 16:20

LM 08
Árni Björn og Aris sigurvegarar í A flokki gæðinga á LM 08
Mikil dramatík var í A úrslitum í A flokki gæðinga hér á Landsmóti sem var að ljúka. Sigurbjörn Bárðarson var með tvo hesta í úrslitum, Kolskegg og Stakk. Sigurbjörn tekur þá ákvörðun að mæta með Kolskegg en verður fyrir því óhappi að rétt fyrir seinni skeiðsprettinn þá dettur undan hjá honum skeifa. Sigurbjörn reið því rólega út völlinn og stóðu allir áhorfendur upp úr sætum sínum og klöppuðu fyrir þessum reiðsnilling allra tíma.
Lesa meira...
6.7.2008 15:45

LM 08
Hróður frá Refsstöðum hlaut Sleipnisbikarinn
Hróður frá Refsstöðum hlaut fyrsta sætið og Sleipnisbikarinn að þessu sinni, sem er veittur þeim stóðhesti sem hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Hróður er aðeins 13 vetra gamall, en getur þó státað af því að eiga yfir 50 dæmd afkvæmi. Hróður er með 126 stig í kynbótamati og segir meðal annars um hann í dómsorði að hann gefi fríð og framfalleg, háfætt og sívöl hross með afbragðs klárgangi og þjálum vilja.
Lesa meira...
6.7.2008 14:46

LM 08
Birna Ósk og Smyrill sigra barnaflokkinn á Landsmóti
Birna Ósk Ólafsdóttir og Smyrill frá Stokkhólma eru Landsmótssigurvegarar í barnaflokki með einkunina 8,82. Gústaf Ásgeir Hinriksson og Knörr frá Syðra-Skörðugili höfnuðu í öðru sæti með 8,72 og Svandís Lilja Stefánsdóttir á Glað frá Skipanesi lentu í því þriðja með 8,69.
Lesa meira...
6.7.2008 13:55

LM 08
Ísleifur Jónasson sigrar B flokk á Röðli frá Kálfholti
Ísleifur Jónasson er Landsmótssigurvegari í B flokki gæðinga eftir gríðalega spennandi keppni á Röðli frá Kálfholti. Guðmundur Björgvinsson hafnaði í öðru sæti á glæsihestinum Eldjárni frá Tjaldhólum og í þriðja sæti hafnaði Tryggvi Björnsson og Akkur frá Brautarholti.
Lesa meira...
6.7.2008 12:55

Dugur frá Þúfu í Skógsnesi eftir Landsmót
Dugur frá Þúfu verður til afnota í Skógsnesgirðingu í Skógsnesi, Flóahreppi strax eftir Landsmót. Dugur var sýndur í kynbótadómi á Landsmóti Hestamanna í flokki 5 vetra stóðhesta. Hann fékk 8,35 fyrir sköpulag, 8,46 fyrir hæfileika og 8,42 í aðaleinkun, sem er hæsta einkun 5 vetra klárhests frá upphafi. Dugur er móbrún-, stjörnóttur að lit og ber hann leirljósan erfðavísir og mun því geta gefið bæði leirljóst og moldótt. Frekari upplýsingar gefur Steindór í síma 898-6266.  
Lesa meira...
6.7.2008 12:42

LM 08
Sigurbjörn sigurvegari í 250m skeiði á LM 08
Snorri Dal sigurvegari í 150m skeiði
Sigurbjörn Bárðarson er sigurvegari í 250m skeiði á Flosa frá Keldudal á tímanum 22.95. Daníel Ingi Smárason varð í öðru sæti á Óðni frá Efsta – Dal á tímanum 23.42. Snorri Dal sigraði 150m skeiðið á Speki frá Laugardal á tímanum 15.04. Í öðru sæti í 150m skeiði varð Sigurður Óli Kristinsson á Blökk frá Kólhrauni á tímanum 14.72.
Lesa meira...
6.7.2008 11:45

LM 08
Arnar Logi Lúthersson og Frami sigruðu unglingaflokkinn á LM 08
Arnar Logi Lúthersson sigraði unglingaflokkinn á Landsmóti nú rétt í þessu á Frama frá Víðidalstungu II með 8.80. Rakel Natalie Kristinsdóttir og Ósk frá Lækjarbotnum náðu öðru sæti með 8,70 og  Sara Sigurbjörnsdóttir og Hálfmáni frá Skrúð höfnuðu í því þriða með  8,63.
Lesa meira...
6.7.2008 11:26

LM 08
Grettir Jónsson og Gustur sigruðu ungmennaflokkinn á LM 08
Grettir Jónsson sigraði ungmennaflokkinn á Landsmóti nú rétt í þessu á Gust frá Lækjarbakka með 8.80. Henna Siren og Gormur frá Fljótshólum náðu öðru sæti með 8.78 og  Hekla Katharína Kristinsdóttir og  Nútíð frá Skarði höfnuðu í því þriða með  8,76.
Lesa meira...
5.7.2008 21:22

LM 08
Tvær tíur dugðu ekki til að vinna Viðar og Tuma
- Viðar er meistari meistaranna

Stórsnillingurinn Viðar Ingólfsson reið enn og aftur yfir nágranna sinn Þorvald Árna Þorvaldsson í úrslitum í tölti á Landsmóti hestamanna nú í kvöld. Viðar og Tumi áttu glæsilega sýningu og voru hnífjafnir Þorvaldi og Rökkva eftir hæga töltið í þriðja og fjórða sæti. Þorvaldur Árni og Rökkvi fengu tvær tíur eftir yfirferðatöltið en það dugðu þó ekki til þess að ná sigri á Viðari og Tuma.
Lesa meira...
5.7.2008 20:24

LM 08
Siggi Sig vann 100m skeiðið á Drífu
Keppni í 100m skeiði var að ljúka á Landsmóti og var það heimsmethafinn Drífa frá Hafsteinsstöðum sem sigraði undir stjórn hrossabóndann  Sigurðar Sigurðarsonar á tímanum 7.31. Viðar Ingólfsson varð í öðru sæti á Hreim frá Barkarstöðum með 7.64 og í þriðja sæti hafnaði Þórarinn Eymundsson á Ester frá Hólum með 7.74.
Lesa meira...
5.7.2008 18:17

LM 08
11 - 12 þúsund á Landsmóti
Áætlað er að um 11 til 12 þúsund manns séu nú samankomnir í blíðskaparveðri á Landsmóti á Gaddstaðaflötum á Hellu. Hestakostur hefur aldrei verið betri og hafa stórgóðar sýningar sést á keppnisvellinum, þar sem hart er barist um sigur í hverjum flokki. Góður rómur hefur verið gerður að keppnishaldinu.
Lesa meira...
5.7.2008 13:48

LM 08
Verðlauna afhendingar kynbótahrossa á LM 08
Nú standa yfir verðlaunaafhendingar kynbótahrossa á Landsmóti hestamanna á Gaddstaðaflötum. Gaumur frá Auðsholtshjáleigu er efsti hestur í flokki 7v og eldri með 8.69 og er Lukka frá Stóra-Vatnsskarði efst í flokki hryssna 7v og eldri og er einnig hæst dæmda íslenska hross í heimi með 8.89. Meðfylgjandi eru allir dómar kynbótahrossa á Landsmóti 2008. Heimild dóma www.worldfengur.com.
Lesa meira...
5.7.2008 13:08

LM 08
Tíu fíkniefnamál á Landsmóti
Tíu fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á Hvolfsvelli í gærkvöldi og tók tæplega þrjátíu manns fyrir of hraðan akstur við hefðbundið umferðareftirlit á Suðurlandsvegi í gærkvöld og í nótt. Tvær líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu á höfuðborgarsvæðinu.
Lesa meira...
5.7.2008 12:54

LM 08
Sigurbjörn sigraði B úrslit í A flokki á Stakk
Sigurbjörn Bárðarsaon sigraði B úrslit í A flokk gæðinga sem var að ljúka hér á Landsmóti hestamanna á Stakk frá Halldórsstöðum með  8.96. Í öðru sæti varð Sigurður Sigurðarson á Sturlu frá Hafsteinsstöðum  með 8,69.
Lesa meira...
5.7.2008 12:02

LM 08
Svandís Lilja vann B úrslit í barnaflokki
Svandís Lilja vann B úrslit í barnaflokki á Glað frá Skipanesi með 8.37 og mun hún keppa í A úrslitum sem haldin verða á morgun. Í öðru sæti varð Fríða Hansen á Sval frá Álftárósi með 8.52 og í þriðja sæti varð Berglind Rós Bergsdóttir á Myrkva frá Ketilsstöðum með 8,50.
Lesa meira...
5.7.2008 11:21

LM 08
Grettir og Gustur unnu B úrslit ungmenna
Grettir Jónsson sigraði B úrslit ungmenna nú rétt í þessu á Gust frá Lækjarbakka með 8.68. Þeir félagar munu því keppa í A úrslitum í unglingaflokki sem haldin verða á morgun sunnudag hér á Landsmóti. Camilla Petra Sigurðardóttir varð í öðru sæti á Erni frá Grímshúsum með 8.60.
Lesa meira...
5.7.2008 10:47

LM 08
Sigursteinn og Borði sigruðu B úrslit í B flokk gæðinga
Sigursteinn Sumarliðason  sigraði B úrsit í B flokki gæðinga nú í morgun á Borða frá Fellskoti á LM. Sigursteinn mun etja kappi við það keppendur sem eru í A úrslitum sem fram fara á morgun.
Lesa meira...
5.7.2008 10:46

LM 08
Blesastaðir 1 unnu símakostningu
Blesastaðir 1 voru valin besta ræktunarbúið með símakostningu áhorfenda sem fram fór í gærkvöld, föstudag. Hrossin frá Blesastöðum munu koma fram aftur á kvöldvökunni í kvöld. Magnús Trausti og Hólmfríður, bændur á Blesastöðum 1 hafa nú þegar sýnt það að hrossin frá þeim eru feikna góð og var þetta enn ein fjöðurin í hattinn fyrir þau.
Lesa meira...
5.7.2008 10:41

LM 08
Hanna Rún og Hjörvar sigra B úrslit unglinga
Hanna Rún Ingibergsdóttir vann sannfærandi sigur í  B úrslitum í unglingaflokki rétt í þessu á Hjörvari frá Flögu á LM. Hann hefur þá unnið sér rétt til þátttöku í A úrslitum sem haldin verða á morgun.
Lesa meira...
5.7.2008 08:00

LM 08
Rólegra á Landsmóti í nótt en búist var við
Á milli átta og tíu þúsund manns eru á Landsmóti hestamanna á Hellu, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. Lögreglan hafði í nægu að snúast en þrátt fyrir það gekk allt vel fyrir sig og nóttin rólegri en menn áttu von á. Tvær líkamsárásir komu til kasta lögreglu inni á mótssvæðinu en í hvorugu tilvikinu verður kært.
Lesa meira...
4.7.2008 21:27

LM 08
Jakob Sigurðsson og Fróði frá Litlalandi unnu B-úrslit í tölti
Jakob Sigurðsson og Fróði frá Litlalandi unnu B-úrlist í tölti nú rétt í þessu á Landsmóti hestamanna og unnu sér rétt til þess að keppa í A-úrslitum sem verða haldin á morgun, laugardag kl. 20:15. Búast má við hrikalega harðri keppni í A-úrslitunum. En þar takast á Rökkvi frá Hárlaugsstöðum, Tumi frá Stóra-Hofi, Losti frá Strandarhjáleigu, Nátthrafn frá Dallandi og Kjarnorka frá Kálfholti.
Lesa meira...
4.7.2008 20:01

LM 08
Will Covert í viðtali á Stöð 2
Hinn kunni hestamaður Will Cowert var takin tali af fréttamönnum Stöðvar 2 í morgun á Landsmóti hestamanna. Viðtalið var sýnt í hádegisfréttum Stöðvar 2 í dag og er nú hægt að horfa á það á Vef sjónvarpi Hestafrétta.
Lesa meira...
4.7.2008 19:55

LM 08
Glæsilegum ræktunarbússýningum lokið á Landsmóti 2008
Sjaldan hefur komið saman eins glæsilegur hópur af hrossum eins og í kvöld á ræktunarbússýningum á Landsmóti hestamanna. Þau ræktunarbú sem komu fram voru Árbær, Árgerði, Blesastaðir, Hafsteinsstaðir, Kálfholt, Kvistir, Litli-Dalur, Lundar II, Strandarhjáleiga og Vakurstaðir. Símakostning mun fara fram um besta ræktunarbúið að mati áhorfenda og mun einhver heppinn kjósandi vinna GSM síma frá Símanum.
Lesa meira...
4.7.2008 18:37

LM 08
Sigurður Óli Kristinsson sigraði 150m skeiðið
Sigurbjörn Bárðarson sigraði 250m skeiðið
Sigurður Óli Kristinsson sigraði 150m skeiðið sem haldið var nú í kvöld á Landsmóti á Blökk frá Kílhrauni. Sigurbjörn Bárðarson sigraði 250m skeiðið á  Flosi frá Keldudal. Meðfylgjandi eru úrslit skeiðgreinanna.
Lesa meira...
4.7.2008 18:30

LM 08
Líf og fjör í Húsasmiðjugarðinum
Fjöldi barna hélt í Húsasmiðjugarðinn í dag og skemmti sér konunglega, en nóg við að vera. Þar er meðal annars búið að koma upp leiktækjum, trampólíni og fótboltamörkum. Boðið hefur verið upp á andlitsmálningu og mátti sjá mörg skrautleg andlit og lítil furðudýr á vappi á mótssvæðinu. Hestar voru að sjálfsögðu líka í aðalhlutverki og fengu börnin, sem það vildu,  að bregða sér á bak, auk þess kindur og lömb voru á svæðinu.
Lesa meira...
4.7.2008 17:02

LM 08
Gaumur frá Auðsholtshjáleigu efstur eftir yfirlitssýningu 7v stóðhesta og eldri
Yfirlitssýningu 7v stóðhesta og eldri er lokið á Landsmóti. Gaumur frá Auðsholtshjáleigu stendur efstur með 8.69 í aðaleinkunn, sýnandi Þórður Þorgeirsson. Þröstur frá Hvammi er annar í röðinni með 8.57, sýndur af  Vigni Siggeirssyni. Meðfylgjandi eru dómar yfirlitssýningarinnar. Heimild dóma www.worldfengur.com.
Lesa meira...
4.7.2008 16:03

LM 08
Glotti frá Sveinatungu efstur eftir yfirlitssýningu 6v stóðhesta
Yfirlitssýningu 6v stóðhesta er lokið á Landsmóti. Glotti frá Sveinatungu stendur efstur með 8.58 í aðaleinkunn, sýnandi Jakob Sigurðsson. Möller frá Blesastöðum 1A er annar í röðinni með 8.57, sýndur af Þórði Þorgeirsson. Meðfylgjandi eru dómar yfirlitssýningarinnar. Heimild dóma www.worldfengur.com.
Lesa meira...
4.7.2008 15:12

LM 08
Ómur frá Kvistum efstur eftir yfirlitssýningu 5v stóðhesta
Yfirlitssýningu 5v stóðhesta er lokið á Landsmóti. Ómur frá Kvistum stendur efstur með 8.61 í aðaleinkunn, sýnandi Þórður Þorgeirsson. Kvistur frá Skagaströnd er annar í röðinni með 8.58, sýndur af Erlingi Erlingssyni. Meðfylgjandi eru dómar yfirlitssýningarinnar. Heimild dóma www.worldfengur.com.
Lesa meira...
4.7.2008 15:00

LM 08
Landsmót hestamanna í Kastljósi á RÚV
Fjallað var um Landsmót hestamanna í Kastljósþætti Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi. Skemtileg viðtöl við elsta og yngsta knapa mótsins ásamt viðtali við Hinrik ólafsson og Sigurbjörn Bárðarson.
Lesa meira...
4.7.2008 14:44

LM 08
Samantektarþáttur RÚV frá Landsmóti
-miðvikudagur
RÚV sendir út samantektarþætti á hverju kvöldi frá Landsmóti hestamanna. Fyrsti þátturinn var sýndur síðastliðið þriðjudagskvöld. Nú er hægt að nálgast þátt gærkvöldsins (miðvikudag) á Vef Sjónvarpi Hestafrétta.
Lesa meira...
4.7.2008 14:21

LM 08
Seiður frá Flugumýri II efstur eftir yfirlitssýningu 4v stóðhesta
Yfirlitssýningu 4v stóðhesta er lokið á Landsmóti. Seiður frá Flugumýri II stendur efstur með 8.42 í aðaleinkunn, sýnandi Mette Mannseth. Kiljan frá Steinnesi er annar í röðinni með 8.39, sýndur af Agnari Þór Magnússyni. Meðfylgjandi eru dómar yfirlitssýningarinnar. Heimild dóma www.worldfengur.com.
Lesa meira...
4.7.2008 13:10

LM 08
Yfirlitsýningar stóðhesta hafnar á Landsmóti 08
Yfirlitssýningar stóðhesta eru nýhafnar hér á Landsmóti og er fyrst yfirlitssýning 4 vetra stóðhesta og endað á stóðhestum 7 vetra og eldri og má búast við að yfirlitssýningunum ljúki um 16:00 í dag. Kl. 16:30 hefst svo 150 m og 250 m skeið.
Lesa meira...
4.7.2008 11:55

LM 08
Ísleifur efstur eftir milliriðla í B flokki gæðinga
Ísleifur Jónsson er efstur eftir keppni í milliriðlum í B flokki gæðinga sem var að ljúka á Röðul frá Kálfholti. Í öðru sæti er stóðhestagullið Eldjárn frá Tjaldhólum og Guðmundur Björgvinsson og í þriðja sæti varð Akkur frá Brautarholti og Tryggvi Björnsson.
Lesa meira...
4.7.2008 10:46

LM 08
Rjómablíða á Gaddstaðaflötum
Keppni hófst klukkan 09.00 í morgun hér á Gaddstaðaflötum og er veðrið eins og best verður á kosið. Hestafréttir hafa bætt við einni nýjung á vefinn í samvinnu við Aicon ehf, en það er veðurkort sem er beintengt Veðurstofu íslands og er það aðgengilegt hér að ofan (Veðrið beint á Suðurlandi (á Landsmóti 2008) Nú stendur yfir milliriðill í B flokki gæðinga og er þar efstur eins og er Röðull frá Kálfholti og Ísleifur Jónsson.
Lesa meira...
3.7.2008 21:37

LM 08
Landsmót hestamanna sett á Hellu
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir setti Landsmót hestamanna á Gaddstaðaflötum á Hellu nú rétt í þessu. Í hópreiðinni voru um 500 knapar og hross frá öllum hestamannafélögum landsins. Garðar Cortes söng þjóðsög okkar íslendinga og tók brekkusöngin með stæl. Veðrið hefur leikið við landsmótsgesti síðustu klukkutíma og er spáin góð fyrir morgundaginn.
Lesa meira...
3.7.2008 21:29

LM 08
Þorvaldur og Rökkvi efstir eftir forkeppni í tölti
Þorvaldur Árni Þorvaldsson er efstur eftir forkeppni í tölti á Landsmóti hestamanna á Rökkva frá Hárlaugsstöðum með 8.50. Nágranni Þorvalds, Viðar Ingólfsson er í öðru sæti á Tuma  frá Stóra Hofi með 8.43.
Lesa meira...
3.7.2008 17:32

LM 08
Gletta frá Þjóðólfshaga 1 efst eftir yfirlit í 4v hryssum
-allir dómar 4v hryssna
Gletta frá Þjóðólfshaga 1 er efst í flokki 4v hryssna eftir yfirlitssýningu sem var að ljúka á Landsmóti hestamanna á Hellu með 8.35. Knapi Glettu er Sigurður Sigurðarson. Salka frá Stuðlum er önnur með með 8.26 og var sýnandi hennar Þórður Þorgeirsson. Meðfylgjandi eru dómar 4v hryssna eftir yfirlit. Heimild dóma www.worldfengur.com.
Lesa meira...
3.7.2008 16:50

LM 08
Sigurbjörn og Kolskeggur efstir í A flokki gæðinga
Sigurbjörn Bárðarson er efstur eftir keppni í milliriðlum í A flokki gæðinga á Landsmóti á Kolskegg frá Oddhól með 8.79. Á hæla hans og í öðru sæti er tengdasonur hans,  Árni Björn Pálsson á Aris frá Akureyri með 8.62. Heimasætan á Sólvangi, Sigríður Pjétursdóttir er þriðja á Þyt frá Kálfhóli ll með 8.60.
Lesa meira...
3.7.2008 16:39

Helgarpassar á Landsmót veita aðgang að keppnissvæði eftir klukkan 23.00 á föstudag
Að gefnu tilefni þá vill Hestafréttir koma því á framfæri  þeir sem hafa keypt sér helgarpassa á Landsmót hestamanna á Hellu fá ekki að koma inn á keppnissvæði og að sölutjöldum fyrr en eftir klukkan 23.00 á föstudagskvöld. Viljum við brýna það fyrir fólki að leita upplýsinga hjá Landsmóti ehf varðandi þessi mál eða á vefsíðu Landsmóts www.landsmot.is .
Lesa meira...
3.7.2008 15:30

LM 08
Ljósmyndir frá milliriðil A flokks gæðinga
Ljósmyndir frá keppni í milliriðil í A flokk gæðinga eru komnar inn á myndasafn Hestafrétta.  Einnig eru komnar inn fleiri myndir af mannlífinu á Landsmóti ( í dag fimmtudag).
Lesa meira...
3.7.2008 15:12

LM 08
Píla efst í flokki 5v hryssna eftir yfirlit
-allir dómar 5v hryssna eftir yfirlit
Yfirlitssýningu 5v hryssn á Landsmóti er lokið. Efst stendur Píla frá Syðra-Garðshorni með 8.45 í aðaleinkunn, riðin af Mette Mannseth. Á eftir Pílu er Kría frá Litlalandi með 8.41 sem riðin er af Erlingi Erlingssyni. Meðfylgjandi eru dómar 5v hryssna eftir yfirlit. Heimild dóma www.worldfengur.com.
Lesa meira...
3.7.2008 14:58

LM 08
Hálf ríkisstjórnin í hópreið
Landsmót hestamanna verður sett með viðhöfn klukkan átta í kvöld. Í hópreiðinni verða fimm ráðherrar, forseti Alþingis og fleiri góðir gestir, að ógleymdum fulltrúum allra hestamannafélaga á landinu. Alls verða á vellinum rétt 500 hross og knapar þeirra, sem ríða við blaktandi fána svo sem venja er. Þeir ráðherrar sem prýða hópreiðina annað kvöld eru Geir H. Haarde forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra, Einar Guðfinnsson landbúnaðarráðherra og Árni Mathiesen fjármálaráðherra.
Lesa meira...
3.7.2008 13:41

LM 08
Elding efst í flokki 6v hryssna eftir yfirlit
-allir dómar 6v hryssna
Yfirlitssýningu 6v hryssn á Landsmóti er lokið. Efst stendur Elding frá Haukholtum með 8.56, riðin af Daníel Jónssyni. Á eftir Eldingu er Fjóla frá Kirkjubæ með 8.51 sem riðin er af Evu Dyröy. Meðfylgjandi eru dómar 6v hryssna eftir yfirlit. Heimild dóma www.worldfengur.com.
Lesa meira...
3.7.2008 11:55

LM 08
Lukka hækkaði í yfirliti
-allir dómar 7v hryssna
Glæsihryssan Lukka frá Stóra Vatnsskarði hækkaði  nú í morgun á yfirlitssýningu á Landsmóti. Lukka fór í 8.89. Meðfylgjandi er upptaka af yfirlitssýningu Lukku, knapi er Þórður Þorgeirsson. Einnig eru allir dómar frá yfirlitssýningu 7v hryssna.
Lesa meira...
3.7.2008 11:54

LM 08
Ástand hrossa kannað
Dýralæknar kanna ástand allra hesta sem taka þátt í Landsmóti hestamanna sem nú fer fram á Hellu og er tækifærið notað og gerð könnun á áhrif notkunar á erlendum mélum og beislum á Íslenska hestakyninu.
Lesa meira...
3.7.2008 11:50

LM 08
Birna Ósk Ólafsdóttir efst í barnaflokk á Smyril frá Stokkhólma
Milliriðil í barnaflokk var að ljúka í snarklikkuðu veðri hér á Landsmóti Hestamanna. Birna Ósk Ólafsdóttir er efst á Smyril frá Stokkhólma með 8,50. Jón Helgi Sigurgeirsson er í öðru sæti á Teista frá Miðsitju með 8,49 og í þriðja sæti varð Valdís Björk Guðmundsdóttir  á Seið  frá Sigmundarstöðum með 8,48.
Lesa meira...
3.7.2008 11:42

LM 08
Ljósmyndir frá fordómum stóðhesta 5 og 7 vetra
Um 500 ljósmyndir af fordómum 6 og 7 vetra  stóðhesta eru komnar inn á myndasafn Hestafrétta.
Lesa meira...
3.7.2008 11:09

LM 08
Brjálað veður á Hellu
Veðurguðirnir eru okkur ekki hliðhollir þessa stundina á Landsmóti hestamanna. Dagurinn byrjaði þó vel en nú er svo komið að hífandi rok er á Gaddstaðaflötum með tilheyrandi mold- og sandroki. Byrjað er að færa stærstu bílana á svæðinu að sölutjöldunum til að hlífa þeim fyrir rokinu. Keppni stendur nú yfir í milliriðlum hjá börnum og eru áhorfendur flúnir úr brekkunum til að finna sér skjól í tjöldum.
Lesa meira...
3.7.2008 09:28

LM 08
Samantektarþáttur RÚV frá Landsmóti
RÚV sendir út samantektarþætti á hverju kvöldi frá Landsmóti hestamanna. Fyrsti þátturinn var sýndur síðastliðið þriðjudagskvöld. Nú er hægt að nálgast þátt gærkvöldsins á Vef Sjónvarpi Hestafrétta.  
Lesa meira...
3.7.2008 08:44

LM 08
Fordómar 7v stóðhesta og yfirlit hryssna
Fordómum stóðhesta 7v og eldri lauk í gærkveldi á Landsmóti á Gaddstaðaflötum. Þar stendur efstur Gaumur frá Auðsholtshjáleigu með 8.69 í aðaleinkunn. Sýnandi Gaums er Þórður Þorgeirsson. Klukkan 8.30 hefst svo yfirlitssýning hryssna 7v og eldri. Meðfylgjandi eru dómar stóðhesta 7v og eldri frá því í gær.
Lesa meira...
2.7.2008 21:05

LM 08
Risaskjáir stóðust rokið
Tveir 20 fermetra skjávarpar sem vega samtals um tvö tonn, hafa verið settir upp á Landsmóti hestamanna á Gaddstaðaflötum við Hellu. Þeim verður ætlað að birta upplýsingar um úrslit í keppni og sýna frá skemmtidagskrá sem verður í boði fyrir landsmótsgesti. Landsmótið er fjölmennasta íþróttamót landsins. Gert er ráð fyrir um um 10-14 þúsund gestum, þar af um 2.500-3.500 erlendum gestum. Uppsetning á skjáunum er samvinnuverkefni Nýherja og Long ehf.
Lesa meira...
2.7.2008 21:03

LM 08
Fordómum 6v stóðhesta var að ljúka á Landsmóti hestamanna
Efstur stendur Glotti frá Sveinatungu með 8.58 í aðaleinkunn. Möller frá Blesastöðum 1A er næstefstur með 8.57 í aðaleinkunn og þriðji efsti er Fróði frá Staðartungu með 8.50. Heimild dóma www.worldfengur.com .
Lesa meira...
2.7.2008 20:20

LM 08
Henna Siren efst í ungmennaflokk
Milliriðli í ungmennaflokk var að ljúka á LM 2008. Henna  Siren og Gormur frá Fljótshólum 3 eru efst með 8,50, Hekla Katharína Kristinsdóttir og Nútíð frá Skarði eru í öðru sæti með 8,49 og í þriðja sæti er Eyvindur Hreggviðsson og Gneisti frá Auðsholtshjáleigu með 8,45.
Lesa meira...
2.7.2008 19:16

LM 08
Rásröð í milliriðlum í A-flokki gæðinga
Keppt verður í milliriðlum í A flokki gæðinga á morgun fimmtudag og hefst keppni klukkan 13.30. Meðfylgjandi er rásröð milliriðla í A flokk.
Lesa meira...
2.7.2008 17:15

LM 08
Fordómum 5v stóðhesta lokið á Landsmóti
-allir dómar
Fordómum 5v stóðhesta var að ljúka á Landsmóti hestamanna. Efstur stendur Ómur frá Kvistum með 8,61. Sýnandi Óms er Þórður Þorgeirsson. Næstur í röðinni er Kvistur frá Skagaströnd með 8,54, sýndur af Erlingi Erlingssyni. Meðfylgjandi eru allir dómar sýningarinnar. Heimild dóma www.worldfengur.com .
Lesa meira...
2.7.2008 17:11

LM 08
Arnar Logi efstur á Frama í unglingaflokk
Milliriðli í unglingaflokk var að ljúka á LM 2008. Arnar Logi Lúthersson stendur efstur á Frama frá Víðidalstungu II með 8,54. Í öðru sæti er Arna Ýr Guðnadóttir á Þrótt frá Fróni með 8,52 og í þriðja sæti er   Teitur Árnason á  Hvin frá Egilsstaðakoti með 8,51.
Lesa meira...
2.7.2008 16:30

LM 08
5000 ljósmyndir frá Landsmóti
Um 5000 ljósmyndir eru nú komnar inn á myndasafn Hestafrétta frá Landsmótinu sem haldið er á Gaddstaðaflötum á Hellu. Fjöldi mynda af forkeppnum í A og B flokki gæðinga og frá kynbótasýningum. Vekjum við sérstaka athygli á mannlífsmyndum frá svæðinu sem var verið að setja inn.
Lesa meira...
2.7.2008 13:46

LM 08
Diddi Bárðar efstur eftir forkeppni í A flokk gæðinga
Forkeppni A flokks gæðinga var að ljúka og stendur rauði björninn Sigurbjörn Bárðarson efstur á Kolskegg frá Oddhóli með 8,79 og er hann einnig með hest í öðru sæti, Stakk frá Halldórsstöðum með 8,72. Tengdasonur Sigurbjörns, Árni Björn Pálsson er í þriðja sæti á Aris frá Akureyri með 8,63. Meðfylgjandi eru tölur knapa úr forkeppni.
Lesa meira...
2.7.2008 12:28

LM 08
Fordómum 4v stóðhesta lokið
-allir dómar
Fordómum 4v stóðhesta er lokið hér í blíðunni á Gaddstaðaflötum á Hellu. Byrjað var að dæma 5v stóðhesta klukkan 11.00 og verður því áframhaldið strax eftir matarhlé. Forkeppni í A flokk gæðinga stendur nú yfir og má búast við því að henni ljúki um klukkan 13.00. Meðfylgjandi eru dómar.
Lesa meira...
2.7.2008 11:26

LM 08
Landsmótið lokkar marga
Landsmót hestamanna er haldið á Hellu að þessu sinni og er það að sögn mótshaldara glæsilegra og tilkomumeira en nokkru sinni fyrr. Á annað þúsund hrossa taka þátt á einn eða annan hátt og um 500 knapar etja kappi á gæðingunum en reiknað er með um 15 þúsund manns á mótið. Á landsmóti eru menn komnir til að sýna sig og sjá aðra og spá í bransann en áhersla er lögð á að hestamannamótið sé góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Lesa meira...
2.7.2008 11:12

LM 08
Blíða á Gaddstaðaflötum
Eftir óveðrið í gær á Gaddstaðaflötum hafa veðurguðirnir verið okkur hliðhollir í morgun. Dagurinn hófst á dómum 4v hryssna sem var frestað í gær og í kjölfarið hófust dómar 4v stóðhesta. Forkeppni í A flokki gæðinga byrjaði klukkan 8.30.
Lesa meira...
2.7.2008 08:17

LM 08
Allir lögðust á eitt til björgunar
„Veðrið er svakalegt. Hér er allt gjörsamlega á tjá og tundri," segir Daníel Ben Þorgeirsson, ritstjóri hestafrétta. „Það er töluvert af fólki að yfirgefa svæðið enda varla stætt fyrir vindi. Ég hef farið á landsmót í fjórtán ár og aldrei kynnst öðru eins. Það sést varla á milli tjalda fyrir sandi og moldarroki. Stóra veitingatjaldið á svæðinu, sem er fjögur til fimm þúsund fermetrar var í stórhættu en slapp eins og reyndar öll sölutjöldin. Hópurinn er samheldinn og allir lögðust á eitt við að bjarga þessu."
Lesa meira...
1.7.2008 22:25

LM 08
Allt á tjá og tundri á Landsmóti Hestamanna á Hellu
Fordómum 4v hryssna frestað vegna veðurs.
„Hér er allt gersamlega á tjá og tundri og varla stætt fyrir meðal jón, ekki þó nema stór vin minn Óðinn Örn“ segi ég og finnst ég vera að skrifa mína síðust frétt í stórhættu og inn í hjólhýsi á Gaddstaðaflötum á Hellu og skrifa frétt um ástandið í gegnum 3G PUNGINN. Veðrið í dag hefur versnað sem mest má vera er líða tók á daginn og er ástandið eins og fólk stæði í blindbil á miðjum vetri, en enginn er snjórinn, heldur mold og sandrok yfir öllu.
Lesa meira...
1.7.2008 21:44

LM 08
Milliriðlar, barna, unglinga og ungmenna
Þá hefst milliriðlaástandið á Landsmóti hér á Gaddstaðaflötum. Meðfylgjandi eru milliriðlar í barnaflokki, ungmennaflokki og barnaflokki. Keppni í öllum þessum milliriðlum verður á morgun miðvikudag.
Lesa meira...
1.7.2008 21:42

LM 08
Ísleifur og Röðull efstir eftir forkeppni í B flokk gæðinga
Forkeppni B flokks gæðinga var að ljúka og er það fjárbóndinn sjálfur Ísleifur Jónasson sem stendur efstur á Röðli frá Kálfholti með 8,79. Ísleifur reið yfir Eldjárn, Takt,  Freyð, Kjarnorku svo eitthvað sé nefnt af þeim hrossum sem voru í forkeppninni. Meðfylgjandi eru úrslit í B flokk gæðinga á Landsmóti 2008 og rásröð milliriðla.
Lesa meira...
1.7.2008 15:16

LM 08
Dómar 5v hryssna lokið
Þá er fordómum 5v hryssna lokið á Landsmóti. Píla frá Syðra-Garðshorni stendur efst með 8.45 í aðaleinkunn riðin af Mette Mannseth. Í braut núna eru dómar 4v hryssna sem lýkur um 20.00 í kvöld. Meðfylgjandi eru allir dómar 5v hryssna.
Lesa meira...
1.7.2008 14:45

LM 08
Birna Ósk efst eftir forkeppni í barnaflokki
Margar góðar sýningar mátti sjá í forkeppni í barnaflokki á Gaddstaðaflötum í morgun. Birna Ósk Ólafsdóttir á Smyrli frá Stokkhólma var fremst meðal jafningja og stendur efst eftir keppnina í morgun með einkunina 8,58. Gústaf Ásgeir Hinriksson á Knörr frá Syðra-Skörðugili hafnaði í öðru sæti með einkunina 8,56 og Svandís Lilja Stefánsdóttir á Glaði frá Skipanesi og Brynjar Þór Guðnason á Oliver frá Austurkoti eru í þriðja til fjórða sæti með 8,54 í einkunn.
Lesa meira...
1.7.2008 14:43

LM 08
Forkeppni í B-flokki
Uppfærðir ráslistar
Forkeppni í B flokki gæðinga er hafinn hér á Landsmóti og eru 106 hestar skráðir. Valdimar Bergstað ákvað að draga sig úr keppni í B flokk en hann ávann sér rétt  til að keppa bæði í B-flokki og ungmennaflokki fyrir Fák og hefur tekið þá ákvörðun að einbeita sér að ungmennaflokknum. Meðfylgjandi eru uppfærðir ráslistar.
Lesa meira...
1.7.2008 12:46

LM 08
Dómar 5v hryssna fyrir hlé
Dómstörf hófust í morgun klukkan 8.00 á 5v hryssum en 10 hryssur úr þessum flokki voru sýndar í gær. Veðrið er ekki að gera knöpum gott hér á Gaddstaðaflötum en rokið er mikið og fylgir því mikið moldryk. Eftir hádegishlé verður dómum haldið áfram í þessum flokk og um klukkan 14.00 byrja svo dómar á 4v hryssum. Meðfylgjandi eru dómar það sem komið er af 5v hryssum.
Lesa meira...
1.7.2008 08:00

LM 08
Dagur tvö á Landsmóti
Allir dómar gærdagsins
Þá er dagur tvö að byrja á Landsmóti hestamanna á Gaddstaðaflötum. Dagurinn í dag hefst á sýningu 5v hryssna í kynbótadóm og hefst forkeppni í barnaflokki klukkan 9.00. Forkeppni í B flokki gæðinga hefst síðan um 13.30. Meðfylgjandi eru allir dómar kynbótahrossa eftir gærdaginn. Heimild dóma www.worldfengur.com
Lesa meira...
1.7.2008 07:40

LM 08
Allt frá skartgripum upp í bújarðir í boði
„Hér hefur skapast landsmótsstemning, strax á fyrsta degi," sagði Telma Tómasson, upplýsingafulltrúi Landsmóts hestamanna 2008, sem hófst á Hellu í gær. Að sögn Telmu var á þriðja þúsund manns mætt á svæðið upp úr hádegi. Tekið var að fjölga í áhorfendabrekkum og í sætum, en uppselt var í þau fyrir mótið. Kynbótasýningar voru í gangi, svo og gæðingakeppni í yngri aldursflokkum.
Lesa meira...
1.7.2008 06:56

LM 08
WorldFengur á Hinu íslenska hestatorgi á Landsmótinu
WorldFengur er hluti af Hinu íslenska hestatorgi á Landsmótinu en þetta er annað Landsmótið sem torgið verður á mótinu með bás. Í fyrra fór torgið utan og stóð fyrir áhugaverðri dagskrá fyrir hestamenn á Heimsmeistaramótinu í Hollandi.
Lesa meira...
30.6.2008 20:35

LM 08
Elding efst í flokki 6v hryssna
Fordómum er lokið í flokki 6v hryssna á LM og stendur Elding frá Haukholtum efst með 8.56. Fjóla frá Kirkjubæ stendur svo efst í röðum klárhryssa með 8.51. Ljósmyndir frá frá sýningu eru komnar inn á myndavef Hestafrétta. Meðfylgjandi eru dómar sýningarinnar.
Lesa meira...
30.6.2008 20:32

LM 08
Sara Sigurbjörnsdóttir efst eftir forkeppni unglinga
Forkeppni unglinga var að ljúka hér á Landsmótinu og varð Sara Sigurbjörnsdóttir efst á Hálfmána frá Skrúð með 8,54. Meðfylgjandi eru úrslit úr forkeppni.
Lesa meira...
30.6.2008 19:45

Viðburðir frá BackOnTrack
Á Landsmóti hestamanna mun Náttúra Og Heilsa við hið Íslenska Hestatorg bjóða upp á vörur  frá BackOnTrack.  Hestatorgið verður staðsett í hinni nýju reiðhöll og aðgangur er öllum opinn.
BackOnTrack eru afurðir sem byggja á 1000 ára gömlum kínverskum hefðum og eru nú orðnar óhemju vinsælar hjá öllu atvinnufólki innan hestamennskunar út um víða veröld. Í dag eru þessar vörur fáanlegar í 19 þjóðlöndum.
Lesa meira...
30.6.2008 19:38

LM 08
Ljósmyndir frá forkeppni unglinga
Um 300 ljósmyndir frá forkeppni unglinga eru komnar inn á myndasafn Hestafrétta. Eins og áður hefur komið fram eru ljósmyndarar Hestafrétta á öllum stöðum á Landsmóti og uppfæra þeir myndasafnið reglulega.
Lesa meira...
30.6.2008 17:06

LM 08
Leiknir frá Vakurstöðum efstur í ungmennaflokki
Leiknir frá Vakurstöðum og Valdimar Bergstað eru efstir eftir forkeppni í flokki ungmenna í dag. Þrjátíu efstu hestar komast í milliriðil sem fram fer á miðvikudag. Þriðji aukastafur réð úrslitum um hverjir kæmust í milliriðil.
Lesa meira...
30.6.2008 15:26

LM 08
Ljósmyndir frá Ungmennaflokk
Um 300 ljósmyndir frá forkeppni ungmenna sem haldin var í dag á Hellu eru nú komnar inn á myndasafn Hestafrétta.
Lesa meira...
30.6.2008 14:13

LM 08
Landsmót hestamanna sett á Gaddstaðaflötum
Landsmót hestamanna sem fram fer að Gaddstaðaflötum á Hellu að þessu sinni hófst í blíðskaparveðri í morgun. Um tvö þúsund manns eru mættir á svæðið. Landsmótið hófst klukkan átta í morgun með kynbótasýningum á aðalvelli en klukkan ellefu hófst forkeppni í ungmennaflokki. Rúmlega tvö þúsund manns eru mættir á svæðið og rísa tjaldborgir víða enda veður gott. Forkeppnir og kynbótasýningar fara fram á tveimur völlum fram á fimmtudag en þá um kvöldið verður mótið formlega sett.
Lesa meira...
30.6.2008 14:10

Upplýsingasími á Landsmóti 841 0011
Fjöldi fólks leitar sér upplýsinga meðan á Landsmóti (LM) stendur og hefur upplýsingasími LM og Landssambands hestamannafélaga (LH) verður opnaður.
Lesa meira...
30.6.2008 14:01
Það eru 1 skoðun/anir á þessari frétt
LM 08
Ljósmyndir frá sýningu hryssna 7v og eldri
Á Landsmóti hestamanna starfa nú 5 ljósmyndarar hjá Hestafréttum og eiga lesendur að geta skoðað myndir frá öllum keppnum sem standa yfir, allt mótið. Nú þegar eru komnar inn rétt um 500 myndir frá dómum kynbótahryssna 7v og eldri frá því í morgun.
Lesa meira...
30.6.2008 13:06

LM 08
Dagskrá Landsmóts
Á þriðja þúsund manns eru nú þegar komin á Landsmót og búast skipuleggjendur við því að 12 – 15.000 manns eigi eftir að sækja mótið. Svæðið allt er hið glæsilegasta og ánægjulegt að sjá hvað mikið er gert fyrir fjölskyldufólk á staðnum. Það eru 500 knapar sem taka þátt og er sá yngsti aðeins átta ára og sá elsti á sjötugsaldri.
Lesa meira...
30.6.2008 12:59

LM 08
Forkeppni ungmenna á LM 2008
Forkeppni ungmenna hófst á Gaddstaðaflötum í morgun klukkan 11.00 og er áætlað að henni ljúki um klukkan 14.30. Eftir hlé mun svo taka við forkeppni unglinga sem mun ljúka um klukkan 18.00. Meðfylgjandi eru myndir frá forkeppni ungmenna.
Lesa meira...
30.6.2008 12:10

LM 08
Lukka frá Stóra Vatnsskarði í dóm
allir dómar hryssna 7v og eldri fyrir hádegi
Glæsihryssan Lukka frá Stóra Vatnsskarði var sýnd í dóm nú í morgun. Áhorfendur biðu með mikilli eftirvæntingu að sjá heimsmethafan í dóm á þessu Landsmóti. Þegar sýning Þórðar var rétt um hálfnuð slitnaði hófhlíf undan og þurfti Þórður að stoppa sýninguna, mátti heyra saumnál detta þegar þetta gerðist, þvílík var þögnin í áhorfendabrekkunni. Leifi fékkst hjá yfirdómara til að fá að smella nýrri hlíf á hryssuna, og þustu aðstoðarfólk Þórðar eftir brautinni og græjuðu málið.
Lesa meira...
30.6.2008 12:09

LM 08
TM gefur Landsmótsförum Fáks glæsilegar peysur
TM hefur verið í nánu samstarfi við hestamannafélagið Fák og styrkti meðal annars framkvæmd úrtökumóts Fáks fyrir Landsmótið. TM Gæðingamót Fáks fór fram um síðustu mánaðamót þar sem fjölmennur og sigurstranglegur hópur fáksmanna tryggði sér rétt til þátttöku á Landsmótinu.
Lesa meira...
30.6.2008 09:12

Landsmót hestamanna 2008 hafið
Landsmót hestamanna hófst stundvíslega klukkan 08.00 í morgun á sýningu hryssna 7v og eldir í kynbótadóm. Stöðug dagskrá verður á kynbótabrautinni til klukkan 21.00. Klukkan 11.00 hefst síðan forkeppni ungmenna og klukkan 15.30 hefst forkeppni unglinga. Dagskrá á keppnisvelli lýkur um 18.00.
Lesa meira...
29.6.2008 13:31

Augun beinast að Kappa frá Kommu
Hestamenn eru sumir farnir að spá því að Kappi frá Kommu verði næsti Orri frá Þúfu eftir að hann óvænt sló heimsmet í stóðhestadómum á dögunum. Kappi kemur frá hrossaræktarbúi í Skagafirði sem sendir tuttugu hross á landsmót hestamanna í næstu viku. Þúfur eru milli Hjaltadals og Hofsóss og þar ráða ríkjum þau Gísli Gíslason og Mette Mannseth. Þótt ekki sé nema um það bil áratugur frá því þessi norska stúlka settist að á Íslandi bendir margt til þess að hún og hestarnir hennar verði helstu stjörnur landsmóts hestamanna á Hellu í næstu viku.
Lesa meira...
28.6.2008 19:14

Öll úrslit dómar Landsmóts 2006
Það var Stáli frá Kjarri sem stóð efstur í flokki stóðhesta 7 vetra og eldri á síðasta landsmóti sem haldið var á Vinsheimamelum árið 2006. Eldjárn frá Tjaldhólum stóð efstur í flokki stóðhesta 6 vetra og glæsihesturinn Vilmundur frá Feti stóð efstur í flokki 5 vetra stóðhesta. Í flokki fjögurra vetra stóðhesta stóð Kraftur frá Efri-Þverá efstur.
Lesa meira...
28.6.2008 18:27

Sýningarskrá kynbótahrossa fyrir Landsmót 2008
Þá er nú heldur farið að styttast í að veislan hefjist á Gaddstaðaflötum á Hellu. Dagskráin hefst klukkan 8.00 á mánudagsmorgun á dómum hryssna 7 vetra og eldri og hefst síðan forkeppni í ungmennaflokk klukkan 11.00. Meðfylgjandi er sýningaskrá kynbótahrossa fyrir Landsmót 2008.
Lesa meira...
27.6.2008 20:12

Hestamenn á Landsmóti í góðu 3G sambandi með Nova
3G þjónusta Nova á Hellu tekin í notkun á mánudag - hægt að tengjast netinu í farsíma og fartölvu
Gestir Landsmóts hestamanna þurfa ekki að detta úr sambandi við umheiminn meðan á mótinu stendur því með því að tengjast 3G kerfi Nova verður á einfaldan hátt hægt að komast í netsamband hvar sem er á mótssvæðinu. Hægt verður að komast á netið hvort sem er í farsíma eða fartölvu. Færanlegar nettengingar Nova -3G pungurinn- verða kynntar í næsta nágrenni við mótssvæðið.
Lesa meira...
27.6.2008 10:02

FT með sýnikennslu og fyrirlestra á Landsmóti
Á Landsmóti hestamanna mun Félag Tamningamanna í samstarfi við hið Íslenska Hestatorg bjóða uppá sýnikennslur og fyrirlestra varðandi reiðmennsku og þjálfun á íslenska gæðingnum. Ísólfur Líndal, reiðkennari B og starfar nú við Háskólann á Hólum, mun vera með sýnikennslu föstudaginn 4.júlí kl.12:00 sem ber heitið „Aukinn léttleiki og söfnun“.
Lesa meira...
26.6.2008 20:54

Ráslistar fyrir tölt, skeið og gæðingakeppni á LM 2008 klárir
Þá eru ráslistar fyrir tölt, skeið og gæðingakeppni fyrir Landsmót hestamanna klárir. Hægt er að nálgast ráslistana með því að smella á viðkomandi flokka hér að neðan.
Lesa meira...
26.6.2008 20:34

Æfingatímar hestamannafélaga fyrir LM 2008
Búið er að úthluta æfingatímum fyrir hestamannafélögin yfir helgina fyrir Landsmót. Þetta eru dagarnir 27, 28 og 29 júní. Meðfylgjandi eru dagssetningar æfingatíma.
Lesa meira...
26.6.2008 19:24

Út er komið nýtt íslenskt spil sem heitir Stóðhestaspilið
Íslandsmeistaramót í Stóðhestaspilinu haldið á LM 08
Spilið kemur frá sömu aðilum og stóðu á bakvið Hrútaspilið sívinsæla og uppskriftaspilabókinni Veiðimann. Í Stóðhestaspilinu er keppt um eiginleika íslenska hestsins. 52 af bestu stóðhestum landsins prýða spilið ásamt upplýsingum um hvern hest. Einnig er hægt að spila venjuleg spil með Stóðhestaspilunum.
Lesa meira...
26.6.2008 10:22

Áríðandi tilkynning frá LM 2008
Knapafundur á Gaddstaðaflötum
Mótstjórn boðar alla knapa sem þátt taka á Landsmóti á knapafund, nk. sunnudag, 29. júní, kl. 17:00.  Áríðandi er að allir knapar mæti, en á fundinum verður farið yfir helstu atriði er varða mótið, reglur og tilhögun.  Fundurinn verður haldinn í stóra veitingatjaldinu sem nú er þegar risið á Gaddstaðaflötum. 
Lesa meira...
24.6.2008 18:54

Ráslistar í tölti og skeiðgreinum fyrir LM 2008
Þá eru ráslistar fyrir skeiðgreinar og tölt tilbúnir fyrir Landsmót 2008. Á næstu dögum má búast við því að aðrir ráslistar verði tilbúnir fyrir veisluna sem hefst næstkomandi mánudag.
Lesa meira...
24.6.2008 12:28

Formleg afhending Gaddstaðaflata og Rangárhallar
Það styttist óðum í Landsmót og undanfarið hafa rekstraraðilar Gaddstaðaflata, þ.e. Rangárbakkar ehf. og Rangárhallarinnar langt nótt við nýtan dag við að ljúka framkvæmdum.  Í gær tók Landsmót formlega við svæðinu og var kátt yfir fólki þegar afhendingin fór fram á Gaddstaðaflötum  í blíðskaparveðri. 
Lesa meira...
23.6.2008 16:14

Heilbrigðisskoðun keppnishesta á Landsmóti 2008
Klár í keppni
“Einungis má nota í keppni dýr sem eru heilbrigð og vel þjálfuð" Lög um dýravernd nr 15/1994 6.gr. Til að uppfylla skilyrði um dýravernd á LM 2008 hafa eftirfarandi reglur verið samþykktar af Landssambandi hestamannafélaga (LH), Landsmóti (LM) og Dýraheilbrigðissviði Matvælastofnunar.
Lesa meira...
22.6.2008 23:52

Gistimöguleikar yfir Landsmót
Þeir sem eru ekki ennþá búnir að panta sér gistingu fyrir Landsmótið geta fylgst með á síðunni www.south.is . Þar er hægt að finna undir viðburðaskrá, vinstra megin á síðunni, gistingar sem eru á lausu nálægt Landsmótssvæðinu. Það er því um að gera að fylgjast vel með síðunni því það bætast reglulega við fleiri gistimöguleikar.
Lesa meira...
20.6.2008 23:23

Stóðhestahappdrætti Rangárhallarinnar enn í fullum gangi!
Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir á Gaddstaðaflötum við Hellu sl. vetur, en landsmót hestamanna fer þar fram í byrjun júlí. Stærsta framkvæmdin er að sjálfsögðu bygging reiðhallar og er hún á lokastigi. Hluti af fjármögnun byggingarinnar er skemmtileg stóðhestahlutavelta sem er í gangi um þessar mundir. Fjölmargir hrossaræktendur hafa gefið folatolla undir góða stóðhesta og bjóðast þeir nú hverjum sem vill.
Lesa meira...
20.6.2008 11:11

Hilux fyrir heimsmet í skeiði
„Þeir hjá Toyota hafa ákveðið að ef slegið verður heimsmet í skeiði á Landsmóti þá ætla þeir að gefa sigurvegaranum Toyota Hilux," segir Jóna Fanney Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri Landsmóts. Mikill hugur er í hestamönnum sem nú stefna margir á Landsmótið sem hefst á Hellu 30. júní og stendur til 6. júlí. Núverandi heimsmeistari – Sigurður Sigurðarson á Drífu frá Hafsteinsstöðum í Skagafirði – mun keppa á mótinu.
Lesa meira...
20.6.2008 11:02

Áhrif Landsmóts eru ómetanleg
„Ég held að áhrif Landsmóts séu algjörlega ómetanleg og verði seint reiknuð út til fulls. Annars vegar er það þannig að mót af þessu tagi skapa í sjálfu sér mikil verðmæti. Þarna kemur saman mikill fjöldi fólks sem hefur heilmikil áhrif á efnahag svæðisins í kring. Þessi mót hafa sýnt það að þau laða til sín fjölda útlendinga sem styrkja okkar gjaldeyrisgrundvöll," segir Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávar­útvegs- og landbúnaðarráðherra.
Lesa meira...
20.6.2008 11:01

Risaskjáirnir komnir, kamrarnir farnir
Landsmót hestamanna var fyrst haldið árið 1950 á Þingvöllum. Þá voru gestir um tíu þúsund talsins. Þó gestum hafi ekki fjölgað mikið síðan þá hefur umfang mótsins gjörbreyst og fyrirkomulag mótsins er orðið allt annað. Í samtali við Markaðinn segja þau Jóna Fanney Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri Landsmóts, og Haraldur Þórarinsson, formaður Landssambands hestamannafélaga, að nú orðið keppist fyrirtæki um að fá kynningu og aðstöðu á mótinu.
Lesa meira...
20.6.2008 09:38

Stöðulistar í tölti og skeiði fyir LM 2008
Þá eru endanlegir stöðulistar fyrir tölt og skeið fyrir Landsmót klárir. Í tölti og 100 m skeiði má hver knapi einungis vera með einn hest.  Á listunum eru nokkrir knapar með fleiri en einn hest og í þeim tilvikum þurfa þeir að velja hvorn/hvaða hest þeir ætla að keppa á, Þess vegna eru listarnir sýndir með aðeins fleiri keppendum.
Lesa meira...
16.6.2008 09:37

Nýr stöðulisti í tölti og skeiði fyrir LM 08
Landsmót uppfærir reglulega stöðulista í tölti og skeiði. Enn sitja Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra-Hofi á topp tölt listans og  Sigurður Sigurðarson og Drífa frá Hafsteinsstöðum á topp skeiðlistans. Meðfylgjandi eru nýuppfærðir listar.
Lesa meira...
11.6.2008 08:32

Landsmótsfréttir
Dregið úr umsóknum ræktunarbúa
Eins og fram hefur komið í fréttatilkynningu frá Landsmóti ehf. var þátttaka í skráningu ræktunarbúa á Landsmót 2008 mjög góð.  Tuttugu ræktunarbú sendu inn umsókn en skv. venju eru það tíu bú sem koma fram í sýningu.    Öll búin tuttugu sem sendu inn umsókn verðskulda það að koma fram á Landsmóti og var því ákveðið að draga úr innsendum umsóknum.
Lesa meira...
10.6.2008 20:30

Járningamannafélag Íslands sér um fótaskoðun á LM 08
Járningamannafélag Íslands mun sjá um fótaskoðun á komandi landsmóti. Viljum við minna knapa og forráðamenn hrossa að kynna sér reglur um járningar á keppnishrossum sínum. Á meðfylgjandi link er hægt að kynna sér reglur.
Lesa meira...
9.6.2008 23:08

Mikill áhugi á þátttöku í ræktunarbúsýningu á LM
Mjög góð þátttaka var í skráningu ræktunarbússýninga á Landsmót 2008.  Tuttugu ræktunarbú sendu inn umsókn um þátttöku á komandi Landsmóti en skv. venju eru það tíu bú sem valin eru úr umsóknum.  Ræktunarbúum áranna 2006 og 2007 er jafnframt boðin þátttaka þannig að í heild eru það 12 bú sem koma fram.  Vegna þessa mikla fjölda og þeirrar staðreyndar að öll búin eru verðug til þátttöku í sýningu á Landsmóti 2008 hefur verið ákveðið að dregið verði um þátttöku í sýningunni. 
Lesa meira...
9.6.2008 20:18

Barna- og skemmtidagskrá verður kynnt á næstu dögum
Landsmót 2008
Margir hafa beðið með óþreyju eftir því að afþreyingar- og skemmtidagskrá Landsmóts verði kynnt.  Helstu áherslur í ár eru að Landsmót sé fjölskylduhátíð hestamanna. Opnaður verður glæsilegur afþreyingargarður fyrir unga fólkið, Húsasmiðjugarðurinn. Þar verður boðið uppá gæslu gegn vægu gjaldi og afar fjölbreytta afþreyingu í sveitastíl.  Keppnisdagskrá er þétt að venju og nú allra næstu daga verður glæsileg skemmtidagskrá kynnt ásamt fjölbreyttri afþreyingu fyrir börnin.
Lesa meira...
9.6.2008 20:07

Hjólhýsastæði með rafmagni að verða uppseld á Landsmót.
LM 2008
Miðasala á Landsmót gengur vel og er undirbúningur á fullu skriði.  Svæðið á Gaddstaðaflötum er að taka á sig glæsilega mynd og mikil stemning að myndast í kringum úrtökur þessa dagana um land allt.  Örfá stæði eru enn laus í hjólhýsastæði með aðgengi að rafmagni á Landsmót hestamanna.
Lesa meira...
9.6.2008 10:39

Nýir stöðulistar í Tölti og Skeiði fyrir LM 2008
Uppfærðir 08. 06.2008
Eftir mótahald helgarinnar þar sem úrtökur nokkurra hestamannafélaga voru haldnar þá breitist stöðulisti í tölti og skeiði fyrir Landsmót 2008. Meðfylgjandi er staða 30 hæstu knapa á landinu í tölti og efstu knapa í skeiðgreinum.
Lesa meira...
8.6.2008 19:42

Sýningarskrá kynbótahrossa fyrir Landsmót
Sýningarskrá kynbótahrossa fyrir Landsmót breitist regluga eftir hverja héraðssýningu og bætast nú á listan fjöldi hrossa. Meðfylgjandi er Sýningarskrá fyrir Landsmót 2008. Heimild www.worldfengur.com.
Lesa meira...
6.6.2008 14:40

Nýir stöðulistar í tölti og skeiði fyrir LM 08
Nýir stöðulistar í tölti og skeiði eru nú klárir. Listarnir verða svo uppfærðir reglulega eftir mót helgarinnar. Meðfylgjandi eru listar miðað við 4 júni.
Lesa meira...
28.5.2008 17:19

Stöðulisti í Tölti og Skeiði fyrir Landsmót 2008
Landsmót hefur nú gefið út stöðulista í skeiði og tölti yfir þá knapa og hesta sem keppa í þessum tveimur greinum. Listarnir eru þó ekki tæmandi því nokkur úrtökumót eru eftir og má búast við að hann breitist eitthvað þegar líður á.  
Lesa meira...
24.5.2008 09:41

48 kynbótahross komin inn á LM 2008
Aðeins tveir 4v stóðhestar hafa náð lágmarki til að komast inn á sýningu á LM 2008. Það eru þeir Grunnur frá Grund II sem fékk 8,07 í byggingu og 8,25 fyrir hæfileika en hann var sýndur af Erlingi Erlingssyni. Svo er það Frosti frá Efri-Rauðalæk en hann fékk 8,05 fyrir byggingu og 8,07 fyrir hæfileika. Frosti var sýndur af Baldvini Ara. Meðfylgjandi eru hross og dómar hesta sem þegar eru komin inn á LM 2008.
Lesa meira...
15.5.2008 08:50

LM 2008
Sýningar ræktunarbúa á LM 2008
Umsóknarfrestur framlengdur til 1. júní nk.
Þessa dagana streyma inn umsóknir til Landsmóts vegna ræktunarbússýninga og hefur mótstjórn ákveðið að framlengja umsóknarfrest til 1. júní nk.  Á heimasíðu Landsmóts www.landsmot.is (vinstra megin á síðu undir hnappnum knapar/ræktunarbú) er að finna eyðublöð og allar nánari upplýsingar um tilhögun ræktunarbúsýninganna.
Lesa meira...
5.5.2008 09:38

Landsmót 2010 verður á Vindheimamelum
Í framhaldi af ákvörðun stjórnar LH þann 14.des. 2007 um að hefja viðræður við Skagfirðinga um að Landsmót hestamanna 2010 verði haldið á Vindheimamelum í Skagafirði undirrituðu fulltrúi Skagfirðinga og fulltrúar mótshaldara þann 2.05.2008  samning um 19.
Lesa meira...
21.4.2008 13:46

Gjörbylting í tæknimálum á Landsmóti hestamanna 2008
Undirbúningur Landsmóts hestamanna gengur vel að sögn Jónu Fanneyjar Friðriksdóttur framkvæmdastjóra. Ýmsar nýjungar hafa verið teknar upp, svo sem forsala miða á netinu. „Þetta gengur vel, allt samkvæmt áætlun,“ segir Jóna Fanney Friðriksdóttir. „Fyrir það fyrsta þá höfum við fengið til liðs við okkur mjög öfluga styrktaraðila, sem er grundvallarforsenda.
Lesa meira...
10.4.2008 23:40

Hertz styður LH og LM
Á dögunum var undirritaður viðamikill samningur þar sem kveðið er á um stuðning og samstarf Hertz á Íslandi við Landsmót ehf (LM) og Landssamband hestamannafélaga (LH).  Samningurinn er til þriggja ára og nær því yfir Landsmót 2008 og 2010.  Að sögn Jónu Fanneyjar Friðriksdóttur, framkvæmdastjóra LM er framlag Hertz afar mikilvægt enda margur snúningurinn hjá mótstjórn og lykilstarfsmönnum er nær dregur landsmóti.
Lesa meira...
25.3.2008 19:27

Mikill áhugi verslunarfólks á Landsmóti
Undirbúningur Landsmóts hestamanna er nú á fullu skriði og að sögn Regínu S. Gunnarsdóttur sem starfar við sölu og markaðsmál Landsmóts er áhugi verslunarfólks gríðarlegur með að koma vörum og þjónustu á framfæri á meðan mótinu stendur.  Verslunaraðilum gefst kostur á útisvæðum og aðstöðu í markaðstjaldi eins og verið hefur en einnig verður glæsileg aðstaða fyrir sölubása í reiðhöllinni sem nú er í byggingu og miðar vel áfram.
Lesa meira...
18.3.2008 08:26

Sex veitingaaðilar taka þátt í útboði á LM 2008
Í febrúar sl. fór fram forval veitinga á Landsmót en þá var veitingaaðilum gefinn kostur á að skila inn umsókn um áhuga á þátttöku í frekara útboði vegna veitingasölu á mótinu.  Ákveðið hefur verið að gefa sex aðilum sem sóttu um í forvali kost á frekari þátttöku í útboði og verða gögn afhent til þeirra í dag. Skilafrestur til að skila inn útboðsgögnum rennur út  föstudaginn 28. mars nk.  
Lesa meira...
13.3.2008 13:01

Miðasala Icelandair á Landsmót hestamanna 2008 er hafin!
- Framundan er stórbrotin veisla –
Landsmót hestamanna verður haldið við Hellu dagana 30. júní – 6. Júlí.  Landsmótið í ár er hið 18. í röðinni en saga Landsmótanna nær aftur til 1950 þegar fyrsta Landsmótið var haldið á Þingvöllum.  Þar voru sýnd 133 hross, kynbótahross, gæðingar og kappreiðahross.  Á þeim tíma var aðeins keppt í einum flokki gæðinga sem var flokkur alhliða gæðinga, auk kappreiða og kynbótasýninga. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá landsmótinu á Þingvöllum árið 1950. 
Lesa meira...
21.2.2008 18:12

Sýningar ræktunarbúa á LM 2008
Að venju verður boðið upp á ræktunarbússýningar á LM 2008.  Stefnt er á að tilhögun sýninga verði með svipuðu  sniði og verið hefur á sl. tveimur mótum þ.e.  að þátttaka verði bundin við  12 ræktunarbú.  Sýning ræktunarbúa hefur verið sett á dagskrá landsmóts, föstudaginn 4. júlí milli kl. 16:30 – 17:30 (með fyrirvara um breytingar á dagskrá).   Áhorfendum gefst kostur á að velja bestu ræktunarbússýninguna með símakosningu (Idol kosningu).  
Lesa meira...
10.2.2008 11:41

LM óskar eftir veitingaaðilum í forval veitingasölu
Landsmót hestamanna ehf. (LM2008) óskar eftir aðilum til að sjá um veitingarekstur á Landsmóti hestamanna sem haldið verður á Hellu dagana 30. júní – 6. júlí 2008. Einungis koma til greina aðilar sem hafa reynslu af veitingarekstri. Áhugasamir geta nálgast nánari upplýsingar um LM2008 á heimasíðu Landsmóts undir hnappnum "Forval-veitingar" vinstra megin á forsíðu.
Lesa meira...
7.2.2008 08:30

Framkvæmdir á Gaddstaðaflötum 2008
Mótssvæðið á Hellu mun fá verulega andlitslyftingu fyrir LM2008 eins og fram hefur komið á síðum Landsmótsfrétta.  Eitt af því sem hæst ber er bygging reiðhallar og miðar framkvæmdum vel áfram og eru á áætlun.  Höllin er 26 x 79 metra stálgrindarhús klætt með yleiningum, ásamt 240 fermetra andyri og verður hún staðsett rétt vestan við núverandi stóðhestahús.
Lesa meira...
18.1.2008 09:32

Landsmót afkvæmahestanna
Landsmótið 2008 verður mót afkvæmahestanna ef fram fer sem horfir. Að vísu er aðeins einn hestur sem þegar hefur áunnið sér rétt til heiðursverðlauna fyrir afkvæmi, Kormákur frá Flugumýri, sem einnig átti þann rétt á LM2006 og er nú með 119 stig og 61 dæmt afkvæmi. En hvorki fleiri né færri en fimm hestar eiga möguleika á vori komanda, þar af eru fjórir synir Orra frá Þúfu.
Lesa meira...
18.1.2008 09:31

Siggi Ævars mótstjóri á Hellu
Sigurður Ævarsson er fulltrúi Landssambands hestamannafélaga í mótsstjórn Landsmóts. Hann á að baki langan feril í aðkomu sinni að stórmótum hestamanna, hefur verið yfirdómari eða mótsstjóri á öllum Landsmótum síðan 1990 og á öllum fjórðungsmótum frá sama tíma, nema einu. Á fundi mótstjórnar í gær var einróma kveðið á um það að Siggi yrði mótstjóri landsmótsins á Hellu í sumar.
Lesa meira...
11.12.2007 09:43

Ákvörðun stjórnar LH um staðarval fyrir Landsmót 2010
Á stjórnarfundi Landssambands hestamannafélaga, haldinn þann 15. nóvember s.l. ákvað stjórn LH að taka til umræðu hvaða svæði yrði valið til að halda Landsmót árið 2010 (sbr. reglugerð 6.1 í lögum LH). Fyrir stjórn LH liggur staðfest umsókn frá hestamannafélögunum í Skagafirði um að halda Landsmót árið 2010.
Lesa meira...
9.12.2007 19:57

Samskip styrkja Landsmót hestamanna 2008 á Hellu
Skrifað var undir samning þar að lútandi á dögunum en hann felur m.a. í sér að Samskip munu annast viðamikla flutninga fyrir Landsmót hestamanna, bæði innanlands og utan. Samninginn undirrituðu Anna Guðný Aradóttir, forstöðumaður samskiptasviðs Samskipa, Regína Sólveig Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Landssambands hestamannafélaga, og Jóna Fanney Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri Landsmóts hestamanna 2008.
Lesa meira...
24.11.2007 14:48

Efnileg trippi undan Stála
Daníel Jónsson á Pulu í startholunum
Daníel Jónsson, tamningamaður á Pulu í Landssveit, er einn þeirra knapa sem ávalt er vænst mikils af þegar stórmót eru í nánd. Hann hefur í mörg ár verið einn afkastamesti sýningamaður kynbótahrossa á landinu og hefur fimm sinnum sett heimsmet í aðaleinkunn stóðhesta, síðast á Stála frá Kjarri á LM2006.
Lesa meira...
24.11.2007 14:43

Slegist um tamningafólk
-segir Hafliði Halldórsson, hrossabóndi á Ármóti

Áhugi á hestamennsku og hrossarækt hefur aldrei verið meiri á Íslandi. Verulegar væntingar eru bundnar við Landsmótin hverju sinni og mikil ásókn í að koma hrossum í tamningu og þjálfun. En þrátt fyrir aukna menntun í hestamennsku og tamningum er skortur á tamningafólki. Mörg hrossaræktarbú og tamningastöðvar leita nú að tamningfólki og aðstoðarfólki.

Lesa meira...
24.11.2007 14:40

Rangárhöllin tilbúin fyrir Landsmót
Ný reiðhöll rís á Gaddstaðaflötum
Mótssvæðið á Hellu mun fá verulega andlitslyftingu fyrir LM2008. Fyrir skömmu var tekin fyrsta skóflustungan að nýrri reiðhöll á Gaddstaðaflötum (Hellu), sem hefur fengið nafnið Rangárhöllin. Það er byggingarfyrirtækið Landsstólpi sem byggir húsið. Um er að ræða 26 x 79 metra stálgrindarhús klætt með yleiningum, ásamt 24  fermetra andyri.
Lesa meira...
15.11.2007 21:09

Undirbúningur að Landmóti hestamanna 2008 hafinn
Undirbúningur að 18. landsmóti hestamanna er hafinn enda að mörgu að huga þegar ráðist er í slíkan stórviðburð sem landsmót er.   Stefnt er að því að öll umgjörð mótsins verði vönduð og glæsileg að venju. Mótstjórn ásamt stjórn Landsmóts hestamanna ehf hafa nú lagt lokahönd á drög að dagskrá keppnis- og sýningarhluta landsmótsins og hefur hún verið birt á heimasíðu LM 2008.
Lesa meira...
Eldri fréttir