Meistaradeild VÍS
22.1.2010 13:00

Varaknapar kynntir til leiks
Meistaradeild Vís
Nú hafa öll lið í Meistaradeild VÍS skilað inn tilnefningum um varaknapa og hafa þær verið teknar fyrir á stjórnarfundi deildarinnar. Eftirfarandi knapar hafa verið samþykktir sem varaknapar fyrir keppnistímabilið 2010:
Lesa meira...
8.7.2009 22:10

Úrslit í 150m skeiði á Skeiðleikum
Það var Sigurður Sigurðarson á Spá frá Skíðbakka 1 á tímanum 15,04 sem sigraði 150m skeið á Skeiðleikum Skeiðfélagsins í kvöld. Árni Björn Pálsson á Korku frá Steinnesi var í öðru sæti á tímanum 15,44 og þriðji varð Bjarni Bjarnason á Hrund frá Þóroddsstöðum á tímanum 15,51.Meðfylgjandi eru niðurstöður í 150m skeiði.
 
Lesa meira...
4.5.2009 20:35

Fljúgandi skeið í MDV 09 á Vef Sjónvarpi Hestafrétta
Upptökur frá forkeppni og úrslitum í fljúgandi skeiði í Meistaradeild VÍS 2009 eru komnar inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Einnig eru viðtöl við Sigurbjörn Bárðason og Sigurð Sigurðarson í sömu upptöku og úrslitasprettirnir.
Lesa meira...
1.5.2009 19:19

A úrslit í tölti MDV 09
Upptaka frá A úrslitum  í tölti í Meistaradeild VÍS 2009 sem haldin var í Ölfushöll í gærkveldi er komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta.
Lesa meira...
1.5.2009 18:36

B úrslit í tölti MDV 09
Upptaka frá B úrslitum  í tölti í Meistaradeild VÍS 2009 sem haldin var í Ölfushöll í gærkveldi er komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta.
Lesa meira...
1.5.2009 17:55

Forkeppni í tölti MDV 09
Upptaka frá forkeppni í tölti í Meistaradeild VÍS 2009 sem haldin var í Ölfushöll í gærkveldi er komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Aðrar upptökur frá kvöldinu eru í vinnslu og verða birtar um leið og þær eru klárar.
Lesa meira...
1.5.2009 16:39

Myndir frá lokakvöldi MD Vís
Um 330 myndir frá lokakvöldi Meistaradeildar Vís eru komnar inná myndasafn Hestafrétta. Eins og flestum er kunnugt var æsi spennandi töltkeppni í gærkvöldi.




Lesa meira...
1.5.2009 11:09

Heildarúrslit kvöldsins
Meistaradeild Vís
Þá er síðasta móti Meistaradeildar VÍS lokið og má með sanni segja að spennan hafi verið í hámarki. Það var Sigurbjörn Bárðarson, Lífland, sem bar sigur úr býtum í einstaklingskeppninni eftir alveg hreint frábæran árangur í kvöld. Sigraði töltið og endaði annar í fljúgandi skeiði. Sigurbjörn er því meistari Meistaradeildar VÍS 2009.
Lesa meira...
30.4.2009 23:21

Sigurbjörn meistari 2009
Meistaradeild Vís
Já, það má með sanni segja að spennan hafi verið nær óbærileg á köflum í kvöld. Töltið var virkilega spennandi, þar sem Halldór og Nátthrafn frá Dallandi voru langefstir eftir hæga töltið og hraðabreytingarnar. En eftir yfirferðar töltið náðu Sigurbjörn og Grunur að skjótast upp í fyrsta sæti. Í þriðja sæti var hinn ungi Hnokki frá Fellskoti og Hinrik Bragason, þeir áttu frábæra sýningu og hlutu meðal annars níur fyrir yfirferðar tölt.
Lesa meira...
30.4.2009 13:19

Veisla í kvöld
Meistaradeildar VÍS
Í kvöld klukkan 18:30 hefst lokamót Meistaradeildar VÍS. Keppt verður í tölti og fljúgandi skeiði. Mótið hefst á forkeppni í tölti og má gera ráð fyrir mikilli veislu þar því þar munu mætast margir af sterkustu tölturum landsins og er orð manna að sjaldan hafi jafn margir sterkir hestar verið skráðir til leiks í töltkeppni á sama tíma.
Lesa meira...
29.4.2009 09:38

Ráslistar í tölti og fljúgandi skeiði
Meistaradeild Vís
Nú hafa allir knaparnir skilað inn upplýsingum um þau hross sem þeir munu mæta með á morgun fimmtudag þegar keppt verður í tölti og fljúgandi skeiði í Meistaradeild VÍS. Keppni hefst eins og áður hefur komið fram á forkeppni í tölti klukkan 18:30. Forsala aðgöngumiða er í fullum gangi í verslunum Líflands, Top Reiter og Baldvini og Þorvaldi.  
Lesa meira...
28.4.2009 17:13

Meistaradeild VÍS - Forsala aðgöngumiða og dagskrá
Forsala aðgöngumiða er hafin fyrir lokamót Meistaradeildar VÍS n.k. fimmtudag. Forsalan fer fram í hestavöruverslununum Baldvini og Þorvaldi á Selfossi, Líflandi í Reykjavík og Top Reiter í Reykjavík. Húsið tekur um 550 manns, en vegna ársmiða verða einungis 350 miðar seldir. Því er um að gera að tryggja sér aðgöngumiða í tíma því gera má ráð fyrir að það verði uppselt á þetta mót eins og var með fjórgangs- og fimmgangsmótin. Verð á aðgöngumiðanum er 1.500 krónur fyrir 13 ára og eldri og 500 krónur fyrir 12 ára og yngri.
Lesa meira...
28.4.2009 10:26

Tölt og fljúgandi skeið
Meistaradeild Vís
Enn eiga nokkrir knapar eftir að skila upplýsingum um hvaða hross þeir munu mæta með n.k. fimmtudag á lokamót Meistaradeildar VÍS þegar keppt verður í tölti og fljúgandi skeiði.

Lesa meira...
27.4.2009 11:13

Allt opið enn
Meistaradeild Vís
Nú þegar eitt mót er eftir í deildinni er gaman að skoða hverjir eiga enn möguleika á sigri. Það verður keppt í tveimur greinum á næsta móti því eru 24 stig í pottinum fyrir sigur og allt getur gerst.

Lesa meira...
26.4.2009 14:31

Stóðhestakynning Meistaradeildar
Það var mikil stóðhestaveisla sem haldin var sumardaginn fyrsta í Ármóti en hún var haldin í tengslum við Meistaradeild VÍS. Margir stórglæsilegir stóðhestar voru sýndir og nú er upptaka af þeim öllum komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta.
Lesa meira...
25.4.2009 10:39

Viðtal við Didda Bárðar
Sigurbjörn Bárðarson er einn besti keppnismaður í hestaíþróttum fyrr og síðar. Honum hefur þó ekki gengið sem skildi í Meistaradeildinni í ár og var hann tekin tali eftir keppni í 150m skeiði og gæðingaskeiði í Meistaradeildinni sem haldin var síðastliðin fimmtudag.
Lesa meira...
25.4.2009 07:20

Viðtöl við knapa Meistaradeildar
Keppni í 150m skeiði og gæðingaskeiði í Meistaradeild VÍS var haldin á sumardaginn fyrsta í Ármóti. Fjölnir Þorgeirsson settist niður með nokkrum knöpum deildarinnar eftir keppni á grillbarnum í Ármóti og tók þá tali.
Lesa meira...
24.4.2009 18:20

Gæðingaskeið í MDV 09
Upptaka frá Gæðingaskeiði sem fram fór í Meistaradeild VÍS 2009 er komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Að þessu sinni var keppni í 150m skeiði og gæðingaskeiði haldin í Ármóti.
Lesa meira...
24.4.2009 14:29

Úrslit í 150m skeiði í MDV
Upptaka frá úrslitum í 150m skeiði sem fram fór í Meistaradeild VÍS er komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Að þessu sinni var keppni í 150m skeiði og gæðingaskeiði haldin í Ármóti.
Lesa meira...
24.4.2009 13:46

Forkeppni í 150m skeiði í MDV 09
Upptaka frá forkeppni í 150m skeiði sem fram fór í Meistaradeild VÍS er komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Að þessu sinni var keppni í 150m skeiði og gæðingaskeiði haldin í Ármóti.
Lesa meira...
23.4.2009 22:40

Úrslit í 150 m og gæðingaskeiði
Meistaradeild Vís
Þá er keppni lokið á næst síðasta móti Meistaradeildar VÍS. Keppnin fór fram í dag að Ármóti samhliða stóðhestakynningu. Hópur af fólki lagði leið sína að Ármóti og má ætla að þegar mest var hafi verið um 1.000 manns á svæðinu.
Lesa meira...
22.4.2009 13:52

Frábær veðurspá fyrir skeiðmót og stóðhestakynningu Meistaradeildar VÍS
Frábær veðurspá fyrir skeiðmót og stóðhestakynningu Meistaradeildar VÍS. Samkvæmt veðurspá núna kl. 12 á hádegi stefnir í frábært veður á morgun á Ármóti á Rangárvöllum hvar skeiðmót og stóðhestakynnig Meistaradeildar VÍS fer fram milli 16 og 20.Kl. 18:00 er spáð léttskýuðu, 8 stiga hita og hægum andvara (3 m/sek). Þetta eru mikil umskipti í veðurspánni og veit á gott.
 
Lesa meira...
22.4.2009 13:34

Ráslistar skeiðgreinar - Fleiri stóðhestar
Meistaradeild Vís
Nú hafa allir knapar skilað inn upplýsingum um hvaða hross þeir munu mæta með á morgun. Þegar keppt verður í gæðingaskeiði og 150m skeiði í Meistaradeild VíS. Mótið verður haldið að Ármóti og hefst keppni klukkan 16:00.
Lesa meira...
21.4.2009 14:08

Stóðhestaveisla - dagskrá mótsins
Meistaradeild Vís
Það verður sannkölluð stóðhestaveisla á Ármóti n.k. fimmtudag á næsta móti Meistaradeildar VÍS.
Búið er að birta nöfn á 5 stóðhestum og nú kynnum við fleiri til leiks en þ.e.
Lesa meira...
18.4.2009 22:20

Stóðhestaveisla - Skeiðgreinar - Meistaradeild VÍS
Á sumardaginn fyrsta verður blásið til veislu í Ármóti. Þá verður keppt í 150m skeiði og gæðingaskeiði í Meistaradeild VÍS en jafnframt verður boðið upp á stóðhestaveislu. Happdrættið verður enn veglegra en áður og nú verða prentaðir 500 miðar og kostar happdrættismiðinn 2.000 krónur. Dregnir verða út 10 miðar og fær hver miðaeigandi að draga úr folatollum undir þá stóðhesta sem verða kynntir.
Lesa meira...
15.4.2009 19:04

Stóðhestaveisla - Meistaradeild VÍS
Á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 23. apríl, verður keppt í 150m skeiði og gæðingaskeiði í Meistaradeild VÍS. Að þessu sinni fer keppni fram í Ármóti. Samhliða mótinu verður stóðhestakynning. Á stóðhestakynningunni verða sýndir 10 hátt dæmdir stóðhestar og 10 yngri ósýndir stóðhestar.
Lesa meira...
4.4.2009 14:43
Það eru 1 skoðun/anir á þessari frétt
Viðtal við Sigurð V. Matthíasson
Eins og flestir vita þá fékk Sigurður V. Matthíasson rautt spjald í keppni í fimmgangi í Meistaradeild VÍS sem haldin var í Ölfushöll síðastliðið fimmtudagskvöld. Dómara vísuðu Sigurði úr keppni þar sem þeir töldu hann ekki hafa hneigt sig í byrjun sýningar. Sigurður var að vonum mjög svekktur og náði Fjölnir tali af honum eftir að dómarar höfðu vikið honum úr keppni.
Lesa meira...
3.4.2009 22:23

Upptaka af A úrslitum í fimmgangi í MDV 09
Hættir Sigurður V. í Meistaradeildinni?
Upptaka af A úrslitum frá keppni í fimmgangi í Meistaradeild VÍS er nú komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Sigurður V. Matthíasson fékk sérlega útreið frá dómurum deildarinnar sem endaði með því að hann fékk rautt spjald og var vikið úr keppni. Mjög svo áhugavert einkaviðtal við Sigurð verður tilbúið til sýningar á hér á Hestafréttum innan skamms.
Lesa meira...
3.4.2009 10:37

Heildarúrslit í fimmgangi
Meistaradeild Vís
Eins og flestir vita þá sigraði Eyjólfur Þorsteinsson B-úrslitin og loks A-úrslitin á Ögra frá Baldurshaga. Halldór Guðjónsson og Sigurður Vignir Matthíasson fengu ógilda sýninga þar sem þeir gleymdu báðir að hneigja sig í upphafi sýningarinnar, mikil vonbrigði fyrir þá þar sem þeir voru báðir með mjög sterka hesta. Bylgja Gauksdóttir var efst inn í B-úrslit en þegar hún var að sýna stökk á hinni ungu og efnilegu Sögn frá Auðsholtshjáleigu, steig hryssan á skeifuna og flaug á hausinn með þeim afleiðingum að Bylgja féll af baki og sýningunni hjá þeim stöllum þar með lokið.
Lesa meira...
2.4.2009 23:44

Eyjólfur sigraði í þriðja sinn í MD Vís 2009
Fimmgangur - Meistaradeild Vís
Það var mögnuð spenna á Meistaradeild Vís í kvöld. Sætaröðunin breyttist eftir hverja gangtegund í A-úrslitunum, spennan var ólýsanleg. En sá sem kom sá og sigraði í kvöld var enginn annar en Eyjólfur Þorsteinsson, hann sigraði B-úrslitin með einkunnina 6.95 og sigraði að lokum A-úrslitin með hvorki meira né minna en 7.10. Eyjólfur Þorsteinsson er ennþá efstur  með 40 stig eða ellefu stigum hærri en næsti knapi.
Lesa meira...
Eldri fréttir