Pistlar
5.7.2010 01:49

Á góðri þúfu – uppi í sveit
Það er gaman að geta hlakkað til. Ennþá hlakka ég til jólanna. Er ekkert að vaxa upp úr því. Tilhlökkun er stór hluti af lífi okkar flestra. Nokkuð sem gæðir lífið notalegri spennu. En það er galli á gjöf Njarðar. Tilhlökkun tengist framtíðinni en hún er aldrei föst í hendi. Hún er ávísun á eitthvað sem ekki er víst að verði. Það er sagt að betri sé einn fugl í hendi en tveir í skógi.  
Lesa meira...
25.6.2010 01:39

Undarlegir hlutir að gerast í Ölfusinu
Ég var að lesa nýútkomið blaðið ,Hestar og Hestamenn. Þar er viðtal við Hróðmar Bjarnason. Hann segir að  hestarnir hjá Eldhestum hafi algjörlega sloppið við hestaflensuna og séu bókaðar hestaferðir hjá þeim í Ölfusinu á fullum gangi . Hann segir orðrétt að „okkur tókst blessunarlega að halda pestinni frá okkur í vetur þar sem enginn samgangur er ámilli okkar og annarra hesthúsa“ ! 
Lesa meira...
2.6.2010 16:24

...Og Billi minn í bátnum
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Allt er í lífinu afstætt. Þá fyrst er lífið gott þegar það er borið saman við hið verra. Við gerum okkur það oft til gamans að rifja upp þær stundir þegar allt okkar líf gekk á afturfótunum. Honum var brugðið manninum sem sá ferðafélaga sína missa bát niður flúðir. Hann hrópaði  „Guð minn góður - og Billi minn í bátnum.“  En Billi slapp með skrekkinn! 
Lesa meira...
19.5.2010 12:41

Er frestun á Landsmóti raunhæfur kostur?
Pistill eftir Elku Guðmundsdóttir
Það er þungt hljóðið í mörgum um þessar mundir.
Ástæðan er að sjálfsögðu kvefpestin ógurlega sem hefur sett útreiðar í dvala á langflestum tamningastöðvum og hesthúsahverfum.
Margir hafa spurt sig hvort það eigi að hætta við Landsmót og aðrir velta upp kostinum um frestun.
Lesa meira...
18.5.2010 12:33

Nú eru góð ráð dýr
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Við hestamenn hlökkum flestir til vorsins. Hestarnir eru komnir í sitt besta form. Það er hlýtt í veðri og nóttin björt. Fyrir okkur í þéttbýlinu er vorið tíminn til útreiða og þjálfunar. Hestamótin raðast á hverja helgina af annarri. Og nú er Landsmótsár. Ár væntinga og vona. Ár uppskeru ræktunar og þjálfunar. Ár endurfunda og gleðistunda.
Lesa meira...
11.5.2010 11:33

Er hestapestin í rénum??!!
Pistill eftir Elku Guðmundsdóttur
Mikil viðbrögð hafa verið í kjölfar þess að Sigríður Björnsdóttir dýralæknir segir hestapestina í rénum.  Í flestum hesthúsum er pestin enn í fullum gangi og ekki sér fyrir endann á henni enn.  Í mörgum húsum eru einkennin ennþá væg, og þar að leiðandi það versta ekki yfirstaðið. 
Lesa meira...
9.5.2010 10:51

“Besta mamma í heimi”
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Það er mæðradagurinn í dag. Ég stend mig að því, rúmlega sjötugur maðurinn - og orðinn langafi - að sakna þess að geta ekki heilsað upp á mömmu! Heyrt hana segja “elskan” og “elskan mín” á sinn einstæða hátt.
Lesa meira...
5.4.2010 15:22

Ævintýrin gerast
Pistill eftir Ragnar Tomasson
Það er mikil gróska í hrossahaldi Íslendinga. “Þeir allra sterkustu” kepptu um helgina á ístölti þar sem sigursælir töltarar komast ekki einu sinni í B úrslit. Maður sér ekki að gömlu kempurnar sem unnu ístöltið á árum áður með glæsibrag eigi minnstu möguleika í dag.
 
Lesa meira...
29.3.2010 15:15

Hestakaup
Pistill eftir Gunnar Andra Sigtryggsson
Ég fékk heimsókn frá Noregi í síðustu viku af fólki sem var að leita sér að keppnishesti. Þessi hestur sem yrði fyrir valinu skildi vera geðgóður  með allar gangtegundir hreinar og vel taminn reyndar eins og flestir vilja , viljugur  fjölskylduvænn  keppnishestur í sama gripnum.  Ég hafði samband við ýmsa aðila sem ég vissi að væru að selja hesta.  Síðan hófust skoðunar ferðir.  Við fórum um víðan völl bæði í borg og upp til sveita.
Lesa meira...
29.3.2010 10:07

“Af því bara”.
Pistill Ragnar Tómasson
Mikið finnst mér konur vera skemmtilegri en karlar. Eða þangað til ég þarf að semja við þær. Ég verð alltaf kjaftstopp í rökræðum þegar ég heyri svarið “af því bara”. Ég heyrði valinkunna sómakonu færa góð rök fyrir því að ekki þyrfti að rökstyðja allar skoðanir. Tilfinningar gætu verið jafn gildar ástæður og rök. “Af því bara” er búið að fá nýja og gilda merkingu í mínum huga!  
Lesa meira...
3.3.2010 09:01

Fallega pissar Brúnka!
Pistill eftir Ragnar Tómasson
“Fólk er fífl” sagði markaðsstjóri hjá olíufélagi um árið. Orðin náðu að festa sig í sessi meðal fleygustu orða ársins í þá tíð. Hvaða fífl var maðurinn að tala um? Var hann að tala um ykkur? Tæplega um mig – eða hvað? Sennilega hafa fáir tekið þetta til sín. Fábjánar skilja sjaldnast þegar að þeim er sneitt!  
Lesa meira...
16.2.2010 15:40

Tóm della
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Það blundar í okkur flestum ótti við að gleymast. Okkur hugnast ekki sá möguleiki að tilvera okkar skipti engan máli - nema okkur sjálf. Í okkar hröðu veröld hefur margt veraldargóssið reynst fánýtt. En það er mikilsvert að gleyma ekki því sem bætti líf okkar og umhverfi.  
Lesa meira...
31.1.2010 23:25

Horft á eftir konum
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Ég hugsa oft til þess hvílík forréttindi það eru að vera með hestadellu og geta stundað hana. Við þurfum öll að eiga okkur áhugamál. Við lifum í tveimur heimum. Annars vegar í okkar víðu veröld sem við deilum með öðrum. Þar sem við tökum þátt í að móta okkar umhverfi, fylgjumst með fjölmiðlum og ræðum um útrásina, handboltann og kreppuna. Ekki alltaf skemmtileg veröld.  
Lesa meira...
20.1.2010 10:00

Gleðin er góð
Pistil eftir Ragnar Tómasson
Það er gaman að ganga út í daginn í fallegu veðri. Sem ungur maður í skóla fór ég í söluferðir út á land. Ég seldi alltaf vel í sólskini. Allt nema stígvél og regngalla! Gamall fjölskylduvinur, löngu látinn, hló sannkölluðum tröllahlátri.
Lesa meira...
24.12.2009 10:49

Togum ekki í eyrun á fólki!!
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Veröldin getur verið stór. En sjálf lifum við flest í agnarsmáum heimi. Umkringdir okkar nánustu, vinum og kunningjum. Þeim sömu og við dveljum með eða hugsum til á þessari jólahátíð. Þetta er okkar bakland í lífinu.  
Lesa meira...
23.11.2009 09:24

Blekking – í þrjá daga
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Ég eignaðist á dögunum góðan vin. Hann er alltaf kátur. Fordæmir engann en tekur fólki eins og það er. Kreppan snertir hann ekki. Hann nýtur þess bara að vera til. Lætur eins og lífið sé leikur. Er með endalausar hundakúnstir sem fá mig til að brosa og konuna til að hlæja.
Það er gott að geta brosað/hlegið í kreppunni.  
Lesa meira...
8.11.2009 23:12

Mig vantar gull!
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Það var uppskeruhátíð í gær. Hefði vel getað hugsað mér að vera þar. Á uppskeruhátíðinni hittir maður stórfjölskylduna, íslenska hestamenn. Þegar stór hópur fólks með sameiginleg áhugamál hittist á svona mannfagnaði myndast sterkir straumar, sem veita gleði og ánægju.  
Lesa meira...
26.10.2009 15:39

Lífið var svo einfalt
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Honum varð aldrei orða vant gömlum vini mínum sem nú er látinn. Hann hafði skoðanir á öllu hlutum. Það bíttaði engu þó hann hefði ekkert vit á málunum. En skoðanir hafði hann – og lá ekki á þeim. Honum var mjög uppsigað við alla langskólagengna menn. Sagði að þeir væru “akademískir rugludallar”. Skoðanir þeirra þurfti því ekki að ræða frekar!
Lesa meira...
26.10.2009 15:30

Á bestu heimstíma ársins í 100m skeiði
Ekki talinn efnilegur
Pistill eftir Jens Einarsson
Af gefnu tilefni tekur undirritaður fram að ég er ekki í valnefnd LH og fjölmiðlafólks um knapa ársins að þessu sinni. Ástæðan er sú að mér finnst löngu tímabært að endurskoða vinnureglur og faglegar forsendur valsins. Tek einnig fram að ég er ekki óskeikull fremur en aðrir og ástæðan alls ekki sú að ég telji sjálfan mig yfir annað nefndarfólk hafinn.
Lesa meira...
12.10.2009 01:50
Það eru 2 skoðun/anir á þessari frétt
Drengileg viðbrögð
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Ég fylgdist eitt sinn með fréttum í sjónvarpinu þegar sagt var frá fólki sem hafði unnið Stóra Vinninginn í happdrætti. Erfitt líf fólksins varð nú sólbjört hamingjan. “Mikið er gaman að heyra þegar öðrum gengur vel”, sagði konan. Það var og!!!
Lesa meira...
27.9.2009 14:12

Góðir búmenn
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Það kostar hellings pening að halda hross. Minnir mig á söguna af gömlum skólabróðir úr Versló. Honum þótti sopinn góður. Eftir mikla verðhækkun á áfengi kom hann á barinn á Naustinu, en þar var hann fastagestur. Hann kvartaði sáran undan verðhækkuninni. “Brennivínið er orðið svo dýrt að maður hefur ekki efni á að kaupa sér skó.”  
Lesa meira...
14.9.2009 10:33

Hestamenn á Facebook
Það var í ársbyrjun sem ég ákvað að gerast þátttakandi á samskiptasíðunni Facebook. Var þó hálf feiminn við fyrirbærið. Fannst það vera svona eins og að banka upp á hjá ókunnugu fólki og biðja um að fá að „vera með“ í partíi!! En það er eins og maður þurfi alltaf að ögra sjálfum sér. Af hverju ekki? Nú fer ég inn á síðuna nokkrum sinnum á dag.
Lesa meira...
13.9.2009 10:38

Heilræði til hestamanna
Pistill eftir Ingimar Sveinsson
Samkvæmt almanakinu er haustið komið en þrátt fyrir það er ennþá sumarblíða um allt land og spáð er áframhaldandi hlýindum með allt að 20°C hita í sumum landshlutum  Veðurfar sumarsins hefur verið óvenjulegt og meðalhiti með því hæsta  frá því að hitamælingar veðurstofunnar hófust. Þetta hefur haft áhrif á sprettu og var grasvöxtur því með allra mesta móti víðast hvar. Flestir bændur hafa fengið metheyfeng af túnum sínum og þó að margir hafi slegið há eru túnin enn í fullri sprettu og komin með mikinn endurvöxt sem er dökkgrænn og mjög næringar- og safaríkur. 
Lesa meira...
1.9.2009 00:40

“Eitt handtak var nóg!”
Afreksfólk í íþróttum vekur manni aðdáun. Í sjónvarpinu var hægt að fylgjast með Heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum í Berlín. Mér finnst alltaf 100 metra hlaupararnir flottastir. Að geta fylgst með Usain Bolt setja heimsmet í 100 metrum í beinni var rosalegt. Afrekið ótrúlegt.  
Lesa meira...
13.8.2009 11:53

Kúnstin sem aldrei lærist
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Enn eitt heimsmeistaramótið er gengið í garð. Menn uppskera árangur erfiðis síns þegar sætir sigrar nást í höfn. En allra keppni fylgja brostnar vonir – brostin hjörtu. Allt var lagt undir, tími, fé og fyrirhöfn. Allt sýnist það vera til einskis unnið. Hvað brást? Knapinn veltir fyrir sér hvort hann sé ekki nógu góður. Þrátt fyrir sigursælan feril. Var of mikið stress í gangi? Eða var hitinn of mikill? Þurfti hesturinn meiri þjálfun?

Lesa meira...
12.8.2009 15:11

Stolinn harðfiskur
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Því er þannig varið með mörg af  lífsins mestu gæðum að þau eru ýmist bönnuð, óholl eða syndsamleg. Minnir að það hafi verið Oscar Wilde sem sagði að ekkert væri eins dásamlegt og að verða fyrir freistingum – og falla fyrir þeim! Las blaðaviðtal í vikunni við harðfiskframleiðanda á vestfjörðum. Hann upplýsti þar nokkuð sem ég vissi:
Lesa meira...
10.7.2009 15:47
Það eru 1 skoðun/anir á þessari frétt
“Þeir 10 bestu”
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Áhugamenn um fótbolta gerðu röð sjónvarpsmynda undir heitinu “þeir 10 bestu”. Dómnefnd taldi sig hafa valið 10 bestu knattspyrnumenn Íslands frá upphafi. Allt voru þetta miklar hetjur. Flestir voru útrásarvíkingar af gamla skólanum. Léku með erlendum félögum víða um heim. En auðvitað var þetta mest til gamans gert. Það er ómögulegt að ákveða og meta hver sé bestur.
 
Lesa meira...
26.6.2009 19:46

Augnablikið
Pistil eftir Ragnar Tómasson
Við eigum öll okkar drauma. Ég hef átt þá marga. Sá stærsti var að gera heiminn betri en hann er. Það tókst ekki nógu vel! Veit ekki lengur hvort minn tími muni koma! Ég held reyndar að náttúran ætli okkur ekki að eiga drauma. Hún er ótrúlega einföld í sínu flókna ferli. Og ætlar okkur bara eitt hlutverk. Að viðhalda mannkyni. Í þeim tilgangi lætur hún okkur finnast það gaman!
Annars myndum við deyja út!
Lesa meira...
13.6.2009 19:38

Glæstir gæðingar líta dagsins ljós
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Þar sem framfarir eru í hrossarækt eru eðlisbestu hrossin þau folöld sem fæðast í ár. Það er ekki aðeins að folöldin gleðji augað heldur gefa þau fyrirheit um glæstan gæðing í fyllingu tímans.
En hvernig er hinn sanni gæðingur sem við leitum að?
Lesa meira...
2.6.2009 08:00

Manstu?
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Aldrei hafa eins margir tapað eins miklu á eins stuttum tíma og íslenska þjóðin á einni viku á síðastliðnu hausti. Þeir voru ekki miklir bógar sem áttu ekki milljarð eða meira. Vinnan var gamaldags. Að spara og safna tók of langan tíma. En nú er partíið búið og verið að taka til í stofunni.
Lesa meira...
18.5.2009 02:20

Vinur eða leiðtogi
Pistill eftir Magnús Lárusson
“Já, en hann er vinur minn og ég vil hafa hann þannig áfram” sagði vinkona mín ein ákveðinni röddu.  Hún var á sínu fyrsta námskeiði hjá mér og umræðan í byrjun þess var, eins og venja er, um hvort það væri eitthvað sem þátttakendur vildu bæta í samskiptum við sinn hest.  Vinkona mín sagði að samband sitt við sinn hest væri fullkomið og ekkert væri hægt að betrum bæta í þeirra sambandi.  Eftir smá umhugsun sagði hún að kannski kæmi það fyrir að hann væri frekur við hana. 
Lesa meira...
8.5.2009 10:12

Íslensku árstíðirnar
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Svo langt sem ég man hef ég verið "jólabarn". Get hlustað á sömu 20 - 30 jólalögin út í það óendanlega. "Last Christmas" með Wham, "Mary´s Boy Child" með Boney M, “So this is Christmas” með John Lennon, að ógleymdum Eiríki Haukssyni með “Jól alla daga”. Já og ekki má ég gleyma henni Helgu Möller með “Aðfangadagskvöld”.
Lesa meira...
24.4.2009 16:37

Sumarið er komið – eða í öllu falli vorið!
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Ég kom við í verslun 10 – 11 í gærkvöldi. Inni var rólegt en úti var fjör. Þar voru 15 – 20 unglingar fullir af lífi og galsa. Það var mikið fjör – mikið gaman. Strákarnir með gel í hári, sumir með sólgleraugu, aðrir með derhúfu. Stelpurnar voru með slegið hár og lítið klæddar. Þó var nokkuð svalt í veðri. Það geislaði af þeim æskugleðin.
Lesa meira...
10.4.2009 12:44

Sestur á skólabekk
Ég er sestur á skólabekk. Hélt að þeim kafla hefði lokið fyrir margt löngu. Í þessum skóla eru margar gagnlegar námsgreinar. Kannski ekki rétt að tala um skóla. Frekar að þetta sé naflaskoðun með heimanámi.
Lesa meira...
27.3.2009 11:51
Það eru 1 skoðun/anir á þessari frétt
Í gamla daga
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Það var allt svo einfalt “í gamla daga”! Ef maður var að leita sér að gæðingsefni þá var ekið norður í Skagafjörð. Maður kom við á nokkrum bæjum og sá von bráðar eitthvað sem heillaði. Það tók því tæpast að fara austur fyrir fjall að leita. Í Húnavatnssýslum fór það orð af hrossum að þau væru illskeytt. Svo það gafst best að fara beint í Skagafjörðinn.
Lesa meira...
16.3.2009 16:01

Afhverju er góð áseta mikilvæg?
Fróðleiksmolar
Áseta á að vera þægileg fyrir bæði hesta og knapa en ekki þvinguð, uppstillt og tilgerðarleg. Knapinn þarf að gera það eins auðvelt og mögulegt er fyrir hestinn að bera hann. Stundum er sagt að hesturinn mótist af ásetu knapans.
Lesa meira...
16.3.2009 11:11

Hestvænni kynbótasýningar?
Pistill eftir Elku Guðmundsdóttur
Ég var ein af mörgum sem sótti fund sem haldinn var um málefni hrossaræktarinnar í síðustu viku. Forsvarsmenn fundarins voru tveir, annars vegar Kristinn Guðnason sem fjallaði mest um það sem lítur að Félagi Hrossabænda, enda formaður þess félags og var á fundinum sem slíkur. 
Lesa meira...
14.3.2009 13:13

Taumhald
Fróðleiksmolar
Hendur knapans og taumhald skiptir, eins og ásetan, miklu máli þegar kemur að samspili við hestinn og nákvæmari og öruggari stjórn hans. Munnurinn er viðkvæmasti hluti hestsins og auðvelt að meiða hann og gera ónæman með röngu taumhaldi.
Lesa meira...
13.3.2009 11:00

Líkamsbeiting, jafnvægi og einbeiting knapa
Fróðleiksmolar
Alveg eins og rétt öndun og jákvætt hugarfar eru forsendur þess að ná árangursríku sambandi við hestinn þá er rétt líkamsbeiting það líka. Knapinn þarf að finna jafnvægi sitt á baki hestsins til þess að geta fylgt hreyfingum hans af næmni og öryggi. Ef knapinn veit hvar þyngdarpunktur hans er á hestbaki þá fylgir margt jákvætt í kjölfarið, s.s. betri áseta og líkamsbeiting. Þyngdarpunkturinn er á milli nafla og baks.
Lesa meira...
13.3.2009 08:46

Hókus, pókus!
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Við sjáum íslenska töframenn galdra kanínur upp úr hatti - og láta þær hverfa. Fyrir margt löngu sá ég hvernig heimsfrægur töframaður, David Copperfield, lét sjálfan sig gufa upp og hverfa. Stóð augnabliki síðar á loftræstistokk við hlið mér, svo nálægt að ég hefði getað tekið um fætur hans. 
Lesa meira...
12.3.2009 22:38

Ágrip
Pistill eftir Magnús Lárusson
Ágrip er sá áverki eða skaði, sem einn hestfótur veldur öðrum hestfæti, þegar hesturinn, eigandi fótanna, er á hreyfingu. Annar hvor fóturinn a.m.k. er ekki á réttum stað þegar ágripið verður. Sá fótur, sem er á röngum stað veldur ýmist skaða eða verður fyrir skaða. Hvað veldur því að fótur er ekki á réttum stað er umræðuefni þessa pistils.  Ástæða ágrips getur verið sú að eitt eða fleiri atriði af eftirtöldum atriðum; réttleiki, járning, líkamsbeiting og -bygging, og þjálfunarástand hests sem og reiðmennska knapa, er ábótavant.
Lesa meira...
12.3.2009 12:19

Hesthúsið og umhverfi hestsins
Fróðleiksmolar
Hesturinn þarf oft að eyða miklum tíma í hesthúsinu hér á Íslandi sérstaklega fyrir vetrartímann. Hesthúsið er hans heimili og það þarf að vera hreint, bjart, þurrt og laust við slysagildrur. Hesturinn getur ekki sjálfur ákveðið hvernig umhverfi hans er og því er mikilvægt að fylgjast með að honum líði vel, hann sé fóðraður reglulega, hafi alltaf aðgang að vatni og að það sé þurrt og þokkalegt í stíunni hans.
Lesa meira...
11.3.2009 11:16

Umgengni við hesta
Fróðleiksmolar
Nú til dags er tilgangurinn með samskiptum manns og hests bæði gagn og gaman. Þess vegna þarf í allri umgengi við hestinn að hafa eðli hans í huga við ólíkar aðstæður. Geti hestur t.d ekki flúið hugsanlega hættu þá reynir hann ef til vill að verja sig.
Lesa meira...
10.3.2009 11:46

Atferli, eðli og hegðun hestsins
Fróðleiksmolar
Hvað er hestur? Hvernig hugsar þetta dýr sem maðurinn hefur tekið í þjónustu sína? Hverjar eru ástæður þess að hesturinn bregst við eins og hann gerir þegar ákveðið áreiti verður á vegi hans? Þróunarferli hestsins hefur staðið yfir í 40-60 milljónir ára en einungis 6000 ár eru síðan maðurinn tók að rækta og nota hross. Náttúruval hefur að sjálfsögðu haft sitt að segja um það hvernig útlit hestsins hefur þróast í gegnum tíðina en jafnframt gríðarleg áhrif á það hvernig hann hegðar sér og bregst við mismunandi aðstæðum.
Lesa meira...
8.3.2009 08:51

Hælsæri
Pistill eftir Magnús Lárusson
“Þú hefur örugglega einhvern tímann fengið hælsæri” staðhæfði járningameistarinn við mig. Við stóðum yfir hesti, sem ég hafði nýfengið til endurþjálfunar, og vorum að skoða fótstöðu hans og járningu. Hestinum var m.a. þannig lýst fyrir mér að hann vildi ekki lengur tölta hægt, sem var fremur auðvelt fyrir hann fyrir nokkrum misserum, nema með miklum átökum og þá stutta stund í einu.
Lesa meira...
27.2.2009 08:27
Það eru 1 skoðun/anir á þessari frétt
Barist við kreppuna í þúsund ár
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Kastljósviðtal í vikunni minnir mig á gamalt atvik sem ég hef áður vikið lítillega að. Það eru tæp 50 ár síðan ég og vinur minn gáfum út tímaritið “Nýtt úr skemmtanalífinu”. Vinur minn hét Ingibjartur og er löngu látinn. Hann var mikill fjörkálfur sem gleymdi stundum að þvo sér í framan. Var þá kallaður Ingibjartur Andlitssvartur. Sem styttist í Blakkur.  Blakkur var flinkasti rokkdansari sem Ísland hefur alið. Hreint ótrúlegur. Sæmi Rokk var frægastur en Blakkur var bestur.
Lesa meira...
23.2.2009 11:48

Umfjöllun um fjórgang MD VÍS
Pistill eftir Elku Guðmundsdóttur
Það má segja að fjórgangurinn í Meistaradeild VÍS síðastliðinn fimmtudag hafi verið upphaf keppnistímabilsins á árinu. Gríðarlega sterkt mót og hestakosturinn ekkert slor.  Þegar hestar á borð við Röðul frá Kálfholti, Borða frá Fellskoti og Oliver frá Austurkoti komast ekki í úrslit er það vísbending um að styrkleikinn sé nokkur. 
Lesa meira...
13.2.2009 09:08

“Tvisvar verður gamall maður barn”
Ég átti víst afmæli á dögunum. Það skemmtilegasta um ævina. Minnti á afmælin í gamla daga. Nema engar tertur, blöðrur eða logandi kerti. Það er sagt að “tvisvar verður gamall maður barn.” Ég er að vísu ekki gamall – en ég kannast við barnið í brjósti mér.
Lesa meira...
12.2.2009 16:15

Að keppa í íþróttum - Opið bréf til stjórnar Léttis
Pistill eftir Einar Ben
Undanfarin ár hafa félagsmenn í hestamannafélaginu Freyfaxa lagt á sig ómælda vinnu og sett fjármagn í að byggja upp árlegan viðburð félagsins, Ístölt Austurland. Vegur mótsins hefur farið vaxandi undanfarin ár, og er það svo að stjórnin hefur talið viðburðinn vera flaggskip Freyfaxa hvað varðar mótahald á ári hverju.
Lesa meira...
9.2.2009 01:06

Ósætti
Pistill eftir Magnús Lárusson
“Hefur þú rifist við einhvern og þið skilið ósáttir” spurði minn reiðmeistari.  Við stóðum við hest sem hann var nýbúinn að fá í þjálfun.  Eigandi hestsins hafði m.a. lýst hestinum sem frekum, stífum í taumum, stirðum til hliða og alltaf að flýta sér og eigandinn vildi fá það lagað.  “Jú, mig rekur minni til þess að svo hafi gerst” svaraði ég spurningunni hugsi og hikandi.
Lesa meira...
2.2.2009 08:54

Asnalegir töltarar
Pistill eftir Ingimar Sveinsson
Asninn er það afbrigði af hesta ætt sem fyrst var tamið eða fyrir um 6000 árum f.Kr. og er enn mikið notaður sem burðardýr í löndunum kringum Miðjarðarhafið og víðar. Asnar eru mjög nægjusamir og þolnir og geta verið í notkun í 10 -12 tíma samfleytt án fóðurs.
Lesa meira...
30.1.2009 12:10

Þó líf liggi við
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Síðustu mánuði höfum við nærst á hörðum og vondum fréttum. Það ríkir grimmd og reiði, uppgjöf og vonleysi. Ásakanir fljúga á milli manna. Glæpamenn! Ræningjar! Landráðamenn! Menn skrifa hatursfulla netpistla undir nafnleynd. Menn grýta lögreglu, andlitslausir, huldir grímum.  
Lesa meira...
27.1.2009 00:32

Óður til sérvitra
Pistill eftir Elku Guðmundsdóttir
Ég fékk að vera viðstödd skemmtilegt afmæli um helgina, Magnús Einarsson, bóndi í Kjarnholtum 1 varð sextugur. Haldin var veisla þar sem hvergi var til sparað, glæsilegar veitingar og kvöldið stútfullt af ræðum og skemmtiatriðum. Frábært kvöld í alla staði. Ég þekki Magnús ekki persónulega og því var það sérstaklega ánægjulegt að kynnast honum með þessum hætti, að heyra vini hans og kunningja lýsa honum eins og hann er. 
Lesa meira...
21.1.2009 22:14

Að skella saman skoltum
Pistill eftir Magnús Lárusson
“Hvaða hljóð er þetta sem hesturinn gefur frá sér?” spurði ég reiðkennarann minn og benti í laumi á umræddan hest niðri á vellinum. Við sátum uppi í áhorfendastúkunni og biðum eftir því að kennslustundinni lyki hjá hópnum sem var á undan okkur.  “Hesturinn skellir saman kjaftinum í sífellu” svaraði minn meistró “og tannaskellirnir bergmála vegna holrúmsins í hausnum á hestinum.”
Lesa meira...
16.1.2009 19:55

Á vínartónleikum
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Glæsilegar auglýsingar vekja athygli á ævintýrunum sem bíða okkar erlendis. Í stórborgum og sólríkum löndum. Í sumri og sól. En ævintýrin búa ekki í útlöndum. Þau verða til í okkar eigin huga og hjarta.
Lesa meira...
8.1.2009 11:41

Manndráps-brokkararnir
Pistill eftir Jónas kristjánsson
Manndráps-brokkararnir
Níu ár eru síðan nýtt dómkerfi kynbótahrossa var tekið upp. Það var gert með samkomulagi hrossabænda og Ágústs Sigurðssonar ráðunautar, sem nú er rektor á Hvanneyri. Þetta kerfi var til mikilla bóta, en er nú orðið barn síns tíma. Það tekur ekki nógu hart á höstum hrossum.
Lesa meira...
7.1.2009 20:27

Nokkur orð um þolþjálfun
Pistill eftir Magnús Lárusson
“No pain, no gain” var yfirskrift þjálfunaraðferða íþróttamanna vel fram yfir miðja síðustu öld.  Því var trúað að framfarir íþróttamanna yrðu litlar sem engar nema viðkomandi píndi sig áfram við æfingar. Að herða íþróttamanninn upp frá fyrsta degi var talinn besti undirbúningurinn fyrir þau verkefni sem framundan voru. Sama hugsun hefur gilt varðandi þjálfun hrossa.   
Lesa meira...
7.1.2009 20:26

Koma tímar, koma ráð...
Pistill eftir Ragnar Tómasson
Hvað er okkur efst í huga í byrjun nýs árs?
Mörg okkar óttast árið 2009. Óttast kreppuna. Okkur er sagt að það versta sé eftir. Við vorum ein ríkasta þjóð í heimi.  En hvað skeði? Hvar er allur aurinn?
Lesa meira...
30.12.2008 17:00

Saga Meistaradeildar Vís
Pistill eftir Elku Guðmundsdóttur
Í byrjun febrúar fer af stað Meistaradeild VÍS í fjórða skiptið með því sniði sem nú er.  Meistaradeildin er búin að vinna sér sess í hugum hestamanna, bæði keppenda og áhorfenda.  Upphafsmenn hennar hafa náð þeim markmiðum sem sett voru. 
Lesa meira...
29.12.2008 10:04

Hrossafár á Íslandi
Pistill eftir Ingimar Sveinsson Hvanneyri
Íslenskir hestar eru yfirleitt hraustir og heilsugóðir og því var það mikið áfall fyrir hestafólk og skyggði á jólagleðina að frétta að tugir hesta í Mosfellssveit hefðu sýkst og margir drepist nú fyrir og um jólin. Talið er að um sé að ræða salmonellu sýkingu frá fóðri eða vatni. 
Lesa meira...
Eldri fréttir