Frá brautskráningu Háskólans á Hólum

Í gær föstudaginn 22. maí var brautskráning í Háskólanum á Hólum og voru brautskráðir samtals 60 nemendur, 51 úr hestafræðideild, átta úr ferðamáladeild og einn úr fiskeldis- og fiskalíffræðideild. Áður en sjálf útskriftarathöfnin hófst var reiðsýning hestafræðideildar. Hún var glæsileg...

Í gær föstudaginn 22. maí var brautskráning í Háskólanum á Hólum og voru brautskráðir samtals 60 nemendur, 51 úr hestafræðideild, átta úr ferðamáladeild og einn úr fiskeldis- og fiskalíffræðideild.

Áður en sjálf útskriftarathöfnin hófst var reiðsýning hestafræðideildar. Hún var glæsileg og ekki spillti veðrið fyrir.

Við brautskráninguna lék Harmonikkusveit Tónlistarskólans í Varmahlíð.
Skúli Skúlason hélt ræðu og nemendurnir Kristján Benediktsson og Þórdís Erla Gunnarsdóttir ávörpuðu samkomuna. Deildarstjórar útskrifuðu nemendur sína þau Helgi Thorarensen sem jafnframt stjórnaði athöfninni, Guðrún Helgadóttir og Víkingur Gunnarsson.

Eftir athöfnina var haldið í hátíðarkaffi í skólahúsinu. Það var ljúft. Óli kokkur og Ella kunna sitt fag!

Viðurkenningar fyrir góðan námsárangur hlutu:

Ragnhildur
Skeifuhafinn í ár var Ragnhildur Haraldsdóttir. Hin svokallaða Morgunblaðsskeifa er veitt fyrir besta samanlagða árangur í reiðmennskunámskeiðum vetrarins á 1. ári. Ragnhildur fékk einnig reiðmennskuverðlaun FT. Hestur Ragnhildar er Villi frá Hvítanesi.

Sigurvegarar skeifukeppni
Í 2. og 3. sæti í skeifukeppninni voru þær Sylvía Sigurbjörnsdóttir á Ísak frá Oddhóli (í miðið) og Ingunn Birna Ingólfsdóttir á Veru frá Kálfholti (til vinstri).

Eiðfaxabikarinn
Eiðfaxabikarinn hlaut Sylvía Sigurbjörnsdóttir.
Sylvía fékk einnig viðurkenningar fyrir hæstu aðaleinkunn (9,5) og hæstu einkunn í kennslufræði á leiðbeinendastigi.

Gæðingafimi
Árni Björn Pálsson sigraði úrslit í gæðingafimi á hryssunni Líf frá Möðrufelli.
2. sæti Sylvía Sigurbjörnsdóttir og Ísak frá Oddhóli
3. sæti Ragnhildur Haraldsdóttir og Villi frá Hvítanesi
4. sæti Ingunn Birna Ingólfsdóttir og Vera frá Kálfholti
5. sæti Svana Ingólfsdóttir og Spyrnir frá Grund
6. sæti Daníel Ingi Larsen og Lótus frá Tóftum.

Ft-bikarinn
Sigvaldi Lárus Guðmundsson fékk tamningabikar FT fyrir hæstu einkunn (9,2) á 2. ári. Hann er hér ásamt konu sinni Mörtu Gunnarsdóttir og Elísabetu dóttur þeirra.

Sören
Sören Agerskov Madsen fékk Morgunblaðshnakkinn fyrir hæstu einkunn (9,1) á 3. ári. Einnig fékk hann Ástundarhestinn fyrir bestan árangur í reiðmennsku og LH-styttuna fyrir hæstu einkunn í reiðkennslu. Sören situr hér Töfra frá Hafragili.

Reiðkennarar og þjálfarar
Nýútskrifaðir reiðkennarar og þjálfarar ásamt Eyjólfi yfirreiðkennara (t.v.), Þórarni reiðkennara og Víkingi deildarstjóra.

Árangur nemenda var mjög góður og aukast gæðin með hverju árinu. Ljóst er að skólanum er að takast vel upp í því að veita góða menntun.

Nemendur frá Háskólanum á Hólum eru eftirsóttir þegar út á vinnumarkaðinn er komið. Það hefur sýnt sig og sannað að menntun þeirra stendur vel með þeim. Frá Háskólanum á Hólum brautskrást upp til hópa mjög færir einstaklingar.

Nemendur við Háskólann á Hólum eru menntaðir til fjölbreyttra og ólíkra starfa. Hestamennska, ferðaþjónusta og fiskeldi eru þó atvinnugreinar sem eiga það allar sammerkt að vera ört vaxandi og í þeim eru ótal tækifæri sem ekki síst núna er horft sterklega til í uppbyggingu þjóðfélagsins. Í þessum greinum er unnið með verðmætar auðlindir og hjá Háskólanum á Hólum er hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og vandaðra viðskiptahátta lögð til grundvallar nýtingu þeirra.

Það er stór stund þegar við sleppum hendinni af nemendum okkar og horfum á eftir þeim út í þjóðfélagið. Við fylgjumst með þeim og frammistaða þeirra hefur jafnan fyllt okkur sem störfum við Háskólann á Hólum bjartsýni og krafti.


Myndir: Guðrún St og Vigdís
Texti: Guðrún St. og Sólrún

/holar.is