Að gefnu tilefni skal mótshöldurum og dómurum bent á að þátttaka í 100 m skeiði er ekki heimil keppendum í barnaflokki, sbr grein 4.1 bls 36 í lögum og reglum LH. Einnig skal ítrekað varðandi samanlagðan fimmgangssigurvegara móts að parið verður að taka þátt í einni grein úr hverjum flokki til að geta talist sigurvegari.
Finnist ekki slíkt par hlýtur enginn titilinn. Greinin sem um ræðir er nr 8.3.9.2 í lögum og reglum LH.
Sama á við um samanlagða sigurvegara barnaflokks, hafi enginn keppandi tekið þátt í öllum tilteknum greinum fellur titillinn niður. Um þetta fjallar í grein 8.3.9.3. Í unglingaflokki telja 4 bestu greinar til samanlagðra stiga, sbr. grein 8.3.9.3.
















