2.9.2010 20:32

Sextíu og tvö hross hafa hlotið 9.5 fyrir fegurð í reið
Sextíu og tvö hross fædd á Íslandi hafa hlotið 9.5 fyrir fegurð í reið og ekkert hross hefur hlotið 10 fyrir þann eiginleika, hvorki fædd á Íslandi né í öðru landi. Það verður spennandi að sjá hvort og hvenær það gerist.
Lesa meira...
2.9.2010 14:44

Meistaramót Andvara
Ráslitar og dagskrá
Ráslistar og dagskrá Meistaramóts Andvara má sjá hér fyrir neðan. Meistaramótið verður haldið núna um helgina 3-5 september. Tíu forstjórar eru skráðir í forstjóratöltið og verður gaman að sjá hvaða forstjóri ber sigur úr bítum, en engir smá hestar eru skráðir þar til leiks.
Lesa meira...
2.9.2010 11:34

Sölusýning HEST.IS og Hestafrétta
Fimmtudaginn 23. september kl. 19.00
Næsta sölusýning Hest.is og Hestafrétta verður haldin 23. september næstkomandi, sem er fimmtudagskvöld fyrir Laufskálarétt. Eins og áður hefur tíðkast veður sýningin tekin upp og sýnd hér á Hestafréttum.
Lesa meira...
1.9.2010 23:52

Sölusýning í Hestheimum
Sunnudaginn 12. September kl. 14:00.
Áður en sölusýning hefst, kl. 13:30 , verður Guðmar dýralæknir í Sandhólaferju með áhugaverðan fyrirlestur, ókeypis aðgangur. Fjöldi glæsilegra hesta verður sýndur og von á fjölda gesta, rífandi stemming ! Skráningargjald er 3.500 á hvern hest.
Lesa meira...
1.9.2010 19:37

Gæðingakeppni Léttis og Goða
Gæðingakeppni Léttis og Goða hefst á laugardag kl. 10:00 og hefst á Tölti fullorðinna. Hér er dagsskrá mótsins og ráslistar.    
Lesa meira...
1.9.2010 13:59

Meistaramót framlenging á skráningu
Framlenging á skráningu til 20:00 í kvöld miðvikudag. Hægt er  að hringja inn skráningu í eftirtalin númer. 893-4425, 692-1058. Og leggja inn á á reikning félagsins: 318-26-15502 kt:4410830419 senda staðfestingu á andvari@andvari.is og setja í skýringu nafnið á knapa.
Lesa meira...
1.9.2010 09:02

Meistaradeild UMFÍ
Upptaka af úrslitum í tölti
Í gærkvöldi lauk keppni í meistaradeild UMFÍ.  Leiknum lauk með sigri Gústafs Ásgeirs Hinrikssonar í tölti og 100 metra skeiði. Fjöldi manns fylgdist með í Rangárhöllinni, þar sem ungmennin sýndu gæðinga sína. Samanlagður sigurverari varð Arnar Bjarki Sigurðarson með 82,0 stig og í því öðru Gústaf Ásgeir Hinriksson 72,5 stig. Hestafréttir voru á staðnum og tóku upp A-úrslitin í tölti, hér má sjá video.
Lesa meira...
1.9.2010 01:03

Fjölskylduferð Loga á Grænhól
Hestamannafélagið Logi
Farin var fjölskylduferð nú á dögunum á vegum æskulýðsstarfsins hjá hestamannafélaginu Loga.  Ferðin hófst á að heimsækja  Gunnar Arnarsson og Kristbjörgu Eyvindsdóttur á Grænhól. En þau hlutu landbúnaðarverðlaunin 2010 og hafa hlotið heiðursviðurkenninguna Hrossaræktarbú ársins alls fjórum sinnum.
Lesa meira...
31.8.2010 17:26

Meistaradeildar UMFÍ verður haldið í kvöld
Rásröð
Síðasta mótið í mótaröð meistaradeildar UMFÍ verður haldið í kvöld í Rangárhöllinni og hefst stundvíslega kl. 18.  Hér meðfylgjandi er rásröð keppenda. Við hvetjum hestamenn til að fjölmenna í kvöld og standa við bakið á knöpum og ræktunarbúunum sem þau keppa fyrir.  Glæsilegar veitingar á staðnum. Frír aðgangur.

Lesa meira...
31.8.2010 17:25

Frumtamningarnámskeið
Hestamannafélagið Fákur og Róbert Petersen reiðkennari verða með frumtamningarnámskeið sem hefst í Reiðhöllinni í Víðidal 6. september nk.  

Lesa meira...
31.8.2010 15:33

Meistaradeild UMFÍ
Rásröð

Síðasta mótið í mótaröð meistaradeildar UMFÍ verður haldið í kvöld í Rangárhöllinni og hefst stundvíslega kl. 18.  Hér meðfylgjandi er rásröð keppenda. Við hvetjum hestamenn til að fjölmenna í kvöld og standa við bakið á knöpum og ræktunarbúunum sem þau keppa fyrir.
Lesa meira...
31.8.2010 14:23

Gæta skal vel að heilbrigði hrossa í fjallferðum og göngum
Mikilvægt er að smalahross séu frísk þegar lagt er af stað og hafi ekki umgengist hross með einkenni smitandi hósta í a.m.k. 2 vikur (algengur meðgöngutími sjúkdómsins).

Lesa meira...
31.8.2010 08:51

Lokaskráning á meistaramót Andvara
Skráning í fullum gangi á meistaramót Andvara. Lokað verður fyrir skráningu á miðnætti í kvöld þriðjudaginn 31. ágúst Skráningin fer rafrænt fram á eftirfarandi slóð.  http://gustarar.is/skraning.aspx?mode=add  
Lesa meira...
30.8.2010 15:46

Afmælishátíð FT frestað
Stjórn og afmælisnefnd Félags Tamningamanna hefur ákveðið að fresta afmælishátíð félagsins sem fyrirhugað var að halda þann 11.september 2010. Áætlað er að halda hátíðina í  lok janúars 2011.


Lesa meira...
30.8.2010 15:44

Meistaramót Andvara 3-5 september
Skráning í fullum gangi á meistaramót Andvara. Lokadagur skráninga er þriðjudagurinn 31. ágúst Skráningin fer rafrænt fram á eftirfarandi slóð. http://gustarar.is/skraning.aspx?mode=add

Lesa meira...
30.8.2010 12:56

Meistaramót Andvara 3-5 september
Skráning í fullum gangi á meistaramót Andvara. Lokadagur skráninga er  þriðjudagurinn 31. ágúst Skráningin fer rafrænt fram á eftirfarandi slóð.  http://gustarar.is/skraning.aspx?mode=add  
Lesa meira...
30.8.2010 09:33

Sónað hjá Mídasi
Stóðhestavefur Hestafrétta
Sónað verður frá Mídasi á morgun mánudag 30.ágúst á Kaldbak og eru hryssueigendur beðnir að sækja hryssur sínar. Sónun verður lokið kl. 3.30
 
Lesa meira...
30.8.2010 09:30

Meistaradeild UMFÍ
Eins og menn rekur minni til, varð að fresta meistaradeild UMFÍ sem átti að ljúka í lok apríl.  Þá hafði hestapestin tekið sér bólfestu á nokkrum stöðum hér Sunnanlands og ekki talið ráðlegt að boða til síðasta mótsins í mótaröðinni.  Nú hefur hins vegar verið blásið til leiks og mun síðasta mótið verða haldið í Rangárhöllinni þriðjudaginn 31. ágúst og hefst kl. 18.00. 
Lesa meira...
29.8.2010 20:05

Sónað frá Natan frá Ketilsstöðum
Stóðhestavefur Hestafrétta
Mánudaginn 30. ágúst verður sónað frá Natan frá Ketilsstöðum.  Hryssurnar verða reknar heim að Galtastöðum og byrjað klukkan 14:00.  Fólk er vinsamlegast beðið um að ná í  merarnar samdægurs.  Þær merar sem ekki eru fylfullar geta verið áfram.


Lesa meira...
29.8.2010 17:55

Kona datt af hestbaki
Kona frá Svíþjóð slasaðist er hún datt af hestbaki í Grænadal fyrir ofan Hveragerði í dag. Lögregla var kölluð út og konan flutt á sjúkrahús. Að sögn lögreglunnar á Selfossi er ekki talið að konan hafi slasast alvarlega en hún var flutt á slysadeild Landspítala í Fossvogi.
Lesa meira...
29.8.2010 13:52

Opið gæðingamót Léttis og Goða
Gæðingamót Léttis og Goða verður haldið daganna 3-5 sept og er mótið opið öllum. Skráning er á lettir@lettir.is og lýkur skráningu kl. 12:00 á hádegi 1. sept. Skráningagjald er 2.000 kr. á hverja grein í fullorðinsflokki og á sölusýninguna. Frítt er fyrir börn, unglinga og ungmenni.
Lesa meira...
29.8.2010 13:23

Íslandsmeistaramót í hestaíþróttum 2010
Myndband af æsispennandi A-úrslitum í tölti

Æsispennandi tölt úrslit voru á Íslandsmeistaramótinu núna um helgina. Aldrei hafa jafn mörg hross barist um fyrsta sætið. Það var mjög mjótt á munum á milli fjóru efsta hrossanna, það munaði aðeins 0.01 kommu á milli þeirra efstu. En Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra-Hofi sigruðu með einkunnina 8.43. Hér fyrir neðan má sjá mynband af úrslitunum.
Lesa meira...
29.8.2010 11:15

Eyjólfur Þorsteinsson sigurvegari í samanlögðum fjórgangs- og fimmgangsgreinum á Íslandmóti
Eftir A úrslit í  fjórgangi í gær voru afhent verðlaun fyrir besta samanlagðan árangur í fjórgangs- og fimmgangsgreinum í forkeppni á Íslandsmóti. Það var Sörlafélaginn Eyjólfur Þorsteinsson sem gerði sér lítið fyrir og vann báða þessa titla.

Lesa meira...
29.8.2010 09:47

Glæsilegu Íslandsmóti er lokið á Sörlavöllum
Veðrið lék við keppendur og áhorfendur á lokadegi Íslandsmóts. Fjöldi áhorfandi var í brekku og stúku og fylgdist með frábærum íþróttasýningum okkar bestu knapa en A-úrslitum var sjónvarpað beint á RÚV. Veður og aðstæður á mótsvæði voru hinar bestu alla mótsdagana.
Lesa meira...
28.8.2010 20:54

Banvæn sýking í hesti af völdum jarðvegsþráðorms í heila
Banvæn sýking í hesti af völdum jarðvegsþráðorms (Halicephalobus gingivalis) í heila. Í ágúst 2010 greindist graðhestur með einkenni frá miðtaugakerfinu. Hesturinn leitaði til hægri, missti jafnvægið, fékk hita og varð daufur; versnaði hratt og var aflífaður. Í vefjaskoðun fundust litlir þráðormar, Halicephalobus gingivalis, fundust í heila og hálsmænu. Þáðormurinn Halicephalobus gingivalis lifir annars í jarðvegi. Ormurinn getur smitað hross; sýking algengust í miðtaugakerfinu. Þetta er annað tilfelli af banvænni jarðvegsþráðormasýkingu sem greinist hér á landi í hrossi; fyrsta tilfellið var greint árið 2006
Lesa meira...
28.8.2010 20:18

Streptococus zooepidemicus líklega orsök smitandi hósta í hestum
Rannsóknir á Keldum að undanförnu á orsökum smitandi hósta í hrosssum hafa rennt frekari stoðum undir þá tilgátu að bakterían Streptococcus equi subsp. zooepidemicus (S.zooepidemicus) sé orsök veikinnar. Engar vísbendingar hafa hingað til komið  fram um að veirusýking séu frumorsök sjúkdómsins eins og menn héldu í fyrstu.
 
Lesa meira...
28.8.2010 17:35

Íslandsmeistaramót í hestaíþróttum 2010
Hinrik Bragason og Glymur frá Flekkudal Íslandsmeistarar í fimmgangi
A-úrslit í fimmgangi
A-úrslitum í fimmgangi var að ljúka rétt í þessu. Hinrik Bragason og Glymur frá Flekkudal sigruðu með einkunnina 8,16 en þeir voru efstir eftir forkeppni og sigruðu örugglega. En það voru hástökkvararnir Stefán Friðgeirsson og Dagur frá Strandarhöfði sem höfnuðu í 2. sæti með einkunnina 7,92 en þeir sigruðu  B-úrslitin í gær. Úrslit eru eftirfarandi:

Lesa meira...
28.8.2010 17:31

Íslandsmeistaramót í hestaíþróttum 2010
Jakob Svavar Sigurðsson og Alur frá Lundum II íslandsmeistarar
Úrslit í slaktaumatölti á Íslandsmóti
Jakob Svavar Sigurðsson og Alur frá Lundum II sigruðu örugglega slakatauma töltið með einkunnina 8,83. Augljóst er að slaktaumatölt á sívaxandi vinsældum að fagna enda sýna þessar glæsilegu það. Úrslit eru eftirfarandi:


Lesa meira...
28.8.2010 17:25

Íslandsmeistaramót í hestaíþróttum 2010
Úrslit í fjórgangi á Íslandsmóti
A-úrslitum í fjórgangi var að ljúka. Mette Mannseth og Happadís frá Stangarholti  sigruðu með einkunnina 8,04. Elvar Þormarsson og Þrenna frá Strandarhjáleigu og Eyjólfur Þorsteinsson og Klerkur frá Bjarnanesi voru jafnir í 2 sæti með einkunnina 8,03, keppnin var mjög jöfn og spennandi.  Úrslit eru eftirfarandi:    
Lesa meira...
28.8.2010 15:32

Íslandsmeistaramót í hestaíþróttum 2010
Viðar varði titilinn
A-úrslit í tölti
Viðar Ingólfsson sigraði A úrslitin í tölti en það var spenna frá byrjun til enda og enginn hafði hugmynd hver myndi hampa titlinum í þetta sinn, en í öðru til þriðja sæti hníf jafnir urðu Jakob og Árborg og Sigurbjörn og Jarl.
Lesa meira...
28.8.2010 12:23

Íslandsmeistaramót í hestaíþróttum 2010
Sigurður Sigurðarson og Drífa frá Hafsteinsstöðum Íslandsmeistarar í 100 m skeiði
Úrslit í 100 m skeiði Sjá Video
Sigurður Sigurðarson og Drífa frá Hafsteinsstöðum sigruðu 100 metra skeiðið á tímanum 7,83. Mikil breidd er orðin í skeiðinu og keppnin orðin hörð í topp sætunum. Úrslit eru eftirfarandi og sjá upptöku af seinni spretti Sigga og Drífu.


Lesa meira...
27.8.2010 22:30

Íslandsmeistaramót í hestaíþróttum 2010
Keppendur í A-úrslitum á laugardag
Eftirfarandi keppendur eiga að mæta til A-úrslita sem hefjast kl. 15.00 á morgun. Við hvetjum hestamenn og alla áhugasama um að fjölmenna í stúku og brekku - hér verður mikil veisla. Úrslitunum verður sjónvarpað beint á RÚV.
Lesa meira...
27.8.2010 21:31

Íslandsmeistaramót í hestaíþróttum 2010
Frábær föstudagur á Íslandsmóti
Dagskrá morgundagsins
Nú er keppni dagsins lokið og hefur mótið gengið mjög vel. Veðrið hefur leikið við okkur og stemningin í stúku og brekku með eindæmum góð. Fjöldi áhorfenda fylgdust með keppni í B-úrslitum og síðan skeiðkappreiðum í kvöldsólinni á Sörlavöllum. Nú er lokdadagur mótsins framundan, hér kemur dagskrá morgundagsins - minnum á að A-úrslit hefjast kl. 15.00. Hér er einnig að finna uppfærðan ráslista í 100 m skeiði sem hefst kl. 11.00 í fyrramálið.

Lesa meira...
27.8.2010 20:27

Íslandsmeistaramót í hestaíþróttum 2010
Sigurbjörn Bárðarson þrefaldur Íslandsmeistari í skeiði
Það má segja að Sigurbjörn beri nafn með réttu, en hann er svo sannarlega sigurvegari eða sigur-björn. Hann er búinn að sigra gæðingskeiðið, 250 metra skeiðið og var nú rétt í þessu að sigra 150 metra skeiðið á Óðni frá Búðardal á tímanum 14,67.
Lesa meira...
27.8.2010 19:45

Íslandsmeistaramót í hestaíþróttum 2010
Enn einn titillinn til Sigurbjörns Bárðarsonar
Úrslit í 250 m skeiði
Sigurbjörn Bárðarson sigraði 250 m skeiðið á tímanum 23,03 á Flosa frá Keldudal. Nú er að hefjast keppni í 150 m skeiði.


Lesa meira...
27.8.2010 18:35

Íslandsmeistaramót í hestaíþróttum 2010
Sigurður Óli Kristinsson og Svali frá Feti sigruðu B-úrslit í tölti
B-úrslit í tölti
Nú liggja fyrir B-úrslit í tölti eftir glæsilega og jafna keppni. Sigurður Óli Kristinsson og Svali frá Feti sigruðu með einkunnina 8,12 og flytjast upp í A-úrslit.




Lesa meira...
27.8.2010 18:33

Íslandsmeistaramót í hestaíþróttum 2010
John Sigurjónsson og Kraftur frá Strönd II sigruðu B-úrslit
B-úrslit í slaktaumatölti
B-úrslit í slaktaumatölti

Þá liggja fyrir B-úrslit í slaktaumatölti en John Sigurjónsson og Kraftur frá Strönd II sigruðu með einkunnina 7,28. 






Lesa meira...
27.8.2010 16:42

Íslandsmeistaramót í hestaíþróttum 2010
Elvar Þormarsson og Þrenna frá Strandarhjáleigu sigruðu B- úrslitin
Fjórgangur B úrslit 1. flokkur -
Nú liggja fyrir B-úrslit í fjórgangi en Elvar Þormarsson og Þrenna frá Strandarhjáleigu flytjast upp í A-úrslit með einkunnina 7,73.
 
Lesa meira...
27.8.2010 16:41

Íslandsmeistaramót í hestaíþróttum 2010
B-úrslit í fimmgangi úrslit
Nú liggja fyrir B-úrslit í fimmgangi. Reynsluboltarnir Stefán Friðgeirsson og Dagur frá Strandarhöfði sigruðu og færast því upp í A-úrslit sem fara fram á morgun laugardag. Úrslit eru eftirfarandi:
 

Fimmgangur   
B úrslit 1. flokkur
  
Sæti Keppandi  
1 Stefán Friðgeirsson / Dagur frá Strandarhöfði 7,55  
2 Sigurður Vignir Matthíasson / Birtingur frá Selá 7,22  
3 Eyjólfur Þorsteinsson / Ögri frá Baldurshaga 7,17  
4 Haukur Baldvinsson / Falur frá Þingeyrum 7,13  
5 Sindri Sigurðsson / Sturla frá Hafsteinsstöðum 7,10  
6 Viðar Ingólfsson / Már frá Feti 7,05  
7 Guðmundur Björgvinsson / Skjálfti frá Bakkakoti 6,72 

Lesa meira...
27.8.2010 15:04

Íslandsmeistaramót í hestaíþróttum 2010
Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra Hofi efstir eftir forkeppni
Töltkeppni - Forkeppni 1. flokkur
Nú liggja fyrir úrslit eftir forkeppni í tölti. Efstur er Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra Hofi. Viðar og Tumi áttu frábæra sýningu og hlutu 8,50. Í öðru sæti er Sigurður Sigurðsson og Kjarnorka  með einkunnina 8,10 og  í því þriðja varð Jakob Svavar Sigurðsson á Árborg frá Miðey með 8,00. Meðfylgjandi eru úrslit.
Lesa meira...


Eldri fréttir