Fréttir af Blæ frá Torfunesi.

Sumarið byrjaði vel. Blær með Þorvar Þorsteinsson sem knapa styrkti stöðu sína á Sörlastöðum í Hafnarfirði 20. maí, bætti kynbótadóm sinn bæði fyrir byggingu og hæfileika. Hann fór úr 8,08 í 8,17 í byggingardómi og fyrir hæfileika úr 8,54 í...

Sumarið byrjaði vel. Blær með Þorvar Þorsteinsson sem knapa styrkti stöðu
sína á Sörlastöðum í Hafnarfirði 20. maí, bætti kynbótadóm sinn bæði fyrir
byggingu og hæfileika.

Hann fór úr 8,08 í 8,17 í byggingardómi og fyrir hæfileika úr 8,54 í 8,80.
Aðaleinkunn fór úr 8,36 í 8,55. Þar með er Blær kominn í hóp hæst dæmdu
stóðhesta til þessa dags. Athygli hlýtur að vekja hversu jafnvígur hann er. 9,5
fyrir brokk, umsögn: rúmt, öruggt, taktgott, 9,0 fyrir skeið, 9,0 fyrir vilja og
geðslag og síðan 8,5 fyrir tölt, stökk, fet og fegurð í reið.

Byggingareinkunn
hækkaði fyrir háls og réttleika en lækkaði úr 9,0 í 8,5 fyrir hófa.Umsögn um
háls / herðar/ bóga: reistur, skásettir bógar, þykkur, fyllt kverk. Hesturinn,
eins og eðlilegt er hefur stækkað og þroskast, hann mælist nú 6 vetra 141 cm á
stangarmál. Var 137 cm 4 vetra og 140 cm 5 vetra. Notkun á Blæ hefur verið góð
og einnig árangur hvað varðar fyljun . “Á húsi” á Bægisá komu til Blæs 11
hryssur og þar af fyljuðust átta. Í Bakkakoti í Borgarfirði, fyrra gangmál
sumarsins, voru 29 hryssur og þar af 25 fyljaðar og í síðara gangmáli á Bægisá
fyljaði hann 22 af 26 hryssum. Samtals eru þetta 66 hryssur og 55 fyljaðar eða
um 85%. 6 hryssur ófyljaðar fengu úrskurð dýralækna um að þær væru með legbólgur
og aðra vankanta. Ef þær eru dregnar frá er fyljunarprósentan liðlega 90%.

Eins
og heitið var fær hæst dæmda hryssan sem til hans kom frían “folatoll”. Þessi
hryssa er Gletta frá Ytra-Vallholti sem er með aðaleinkunn 8,49 (8,10-8,75).
Síðasta sumar var hæst dæmda hryssan sem fékk frían “folatoll”, Sara frá Dalvík
með aðaleinkunn 8,30 (8,52-8,15). Margar hryssur sem Blær sinnti eru með háan
dóm. Á haustfundi Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga var ræktanda Blæs
Baldvini Kr. Baldvinssyni veitt viðurkenning fyrir hæst dæmda stóðhest svæðisins
(8,55) en hæfileikaeinkunn Blæs 8,80 er um leið hæsta einkunn stóðhests á árinu.
Samkvæmt nýútkomnu kynbótamati hefur Blær hækkað úr 122 stigum í 123 stig.
Markús frá Langholtsparti faðir hans hefur nú sterkasta stöðu stóðhesta sem eiga
yfir 15 dæmd afkvæmi. Hann er með 124 stig fyrir 18 dæmd afkvæmi. Blær er hæst
dæmda afkvæmi Markúsar. Þrjú elstu afkvæmi Bylgju frá Torfunesi, móður Blæs eru
nú með vel yfir 8 í aðaleinkunn og næstu tveir folar, geldingar, komnir vel á
veg í tamningu og þjálfun. Á þessu ári var stofnað hlutafélag, Torfunes-Blær
ehf. þar sem eru 70 hlutir. Auk Baldvins og Gísla B. Björnssonar sem eiga 30
hluta hvor og Þorvar sem á nú 8 hluti, hafa tveir einstaklingar bæst í hópinn
með einn hlut hvor.

Fleiri hlutir eru til sölu ef fast er eftir leitað.
Hesturinn er nú á heimaslóð í Torfunesi en um áramótin verður hann tekinn á hús
og fer í þjálfun hjá Þorvari á Bægisá. Stefnt er með hann á landsmótið næsta
sumar. Í nýrri úttekt Guðlaugs V. Antonssonar hrossaræktarráðunauts um
kynbótasýningar 2005 í Frey (6.tbl.) segir:” Blær fékk góðar
byggingaeinkunnir…sannkallaður listagæðingur, flugrúmur garpur á gangi.”
Ákveðið er að Blær verði á Torfastöðum í Biskupstungum, strax eftir landsmót
næsta sumar. Teknar verða 25 hryssur í fyrsta hóp og “sónarskoðað” eftir 4-5
vikur. Síðan verður bætt við hryssum eftir aðstæðum. Verð hefur verið ákveðið
kr. 40.000 “folatollur” á fengna hryssu, + girðingargjald 7000 kr. + sónarskoðun
2000 kr.+ vsk. Eigendur taka við pöntunum. Baldvin Kr. Baldvinsson GSM 863-9222
/ 464-3622 Netfang: [email protected] Gísli B. Björnsson 896-1635/ 562-1635
[email protected] Þorvar Þorsteinsson 893-9491 [email protected] Nánari
upplýsingar hjá Ólafi Einarssyni, Torfastöðum sími: 862-9320