Úrslit móta
18.4.2010 10:32

3.Vetrarmót Smára
Úrslit
Þriðja og síðasta vetrarmót Smára fór framm Laugardaginn 17 Apríl í Fínu veðri við reiðhöllina á flúðum. Mæting var með allra besta móti bæði af knöpum sem og áheyrendum. Hestakostur var  frábær bæði í eldri og yngri flokkum dómararnir áttu erfitt verk fyrir höndum en úrslit urðu eftirfarandi.
Lesa meira...
12.4.2010 19:44

Vetrarmóti hestamannafélagsins Grana lokið
Þá er síðasta vetrarmóti hestamannafélagsins Grana lokið, en opna smalamótið var haldið með látum fimmtudagskvöldið 8.apríl síðastliðið. Keppt var í 2. og 1. flokki og voru skráningar með ágætum. Mótið fór hratt af stað þar sem hver keppandinn á fætur öðrum þeyttist í gegnum stórskemmtilega smalabraut á mettíma.  
Lesa meira...
4.4.2010 00:03

Halldór Guðjónsson og Nátthrafn frá Dallandi sigra annað árið í röð!
Það var gríðarleg stemning í skautahöllinni í kvöld. Halldór Guðjónsson og Nátthrafn frá Dallandi sigruðu annað árið í röð með frábæra sýningu, hægatöltið og hraðabreytingarnar hafa verið aðall hjá þeim félögum en ekki vantaði neitt uppá fegurðar töltið. Annar varð Sigurður Sigurðarson og glæsihryssan Kjarnorka frá Kálfholti það var mikil spenna þegar tölur fóru á loft í lokin,
Lesa meira...
29.1.2010 14:36

Upptökur frá úrslitum Smala
Meistaradeild Vís
Hér má sjá upptökur frá úrslitum í Smala sem fram fór í gærkvöldi. En úrslit kvöldsins voru eftirfarandi:
    
Lesa meira...
26.8.2009 21:29

Skeiðleikar Skeiðfélagsins
Úrslit
Þá eru fjórðu og síðustu Skeiðleikum Skeiðfélagsins lokið í ár. Það var Sigurbjörn Bárðarson á Flosa frá Keldudal sem bar sigur úr býtum í 250m skeiði á tímanum 23,51. Jafnir í öðru sæti urðu þeir Ævar Örn Guðjónsson á Blossa frá Skammbeinsstöðum 1 og Árni Björn Pálsson á Ás frá Hvoli einnig á tímanum 23,51. Sigurbjörn Bárðarson á Flosa frá Keldudal er jafnframt samanlagður sigurvegari í 250m skeiði út úr mótum sumarsins. Sjá úrslit úr öllum greinum.
Lesa meira...
26.7.2009 15:35

Friðdóra Friðriksdóttir sigraði úrslitin í A-flokki gæðinga
Úrslit í A-flokki gæðinga
Friðdóra Friðriksdóttir sigraði úrslitin í A-flokki gæðinga á Vikari frá Torfastöðum með einkunnina 8.75, annar varð Eyjólfur Þorsteinsson á Ögra frá Baldurshaga með einkunnina 8.63 og sú þriðja varð Þórdís Erla Gunnarsdóttir á Tíbrá frá Auðsholtshjáleigu með einkunnina  8.56.
Lesa meira...
26.7.2009 14:53

Barnaflokkinn sigraði Dagmar Öder Einarsdóttir á Kjarki
Úrslit í barnaflokki
Dagmar Öder Einarsdóttir sigraði á Kjarki frá Ingólfshvoli með einkunnina 8.72, önnur varð Birta Ingadóttir á Frey frá Langholti með einkunnina 8.65 og í þriðja sæti varð Páll Jökull Þorsteinsson á Hróki frá Enni með einkunnina 8.40.    
Lesa meira...
26.7.2009 14:31
Það eru 1 skoðun/anir á þessari frétt
Sigursteinn Sumarliðason sigraði B-flokkinn
Úrslit í B-flokki
Sigursteinn gerði sér lítið fyrir og sigraði stórglæsilega á Ölfu frá Blesastöðum með einkunnina 8.73 en hún var í þriðja sæti eftir forkeppni. Sigursteinn var efstur eftir forkeppni á Borða frá Fellskoti en hann fékk Þórð Þorgeirsson til að ríða Borða fyrir sig í úrslitum og hafnaði hann í öðru sæti með 8.70, þriðji varð Eyjólfur Þorsteinsson á Klerki frá Bjarnanesi með einkunnina 8,68.
Lesa meira...
26.7.2009 13:46

Hinn efnilegi knapi Kári Steinsson sigraði unglingaflokkinn
Úrslit unglingaflokks
Kári Steinsson sigraði unglingaflokkinn á Tóni frá Melkoti með einkunnina 8,68, annar varð Steinn Haukur Hauksson á Silvíu frá Vatnsleysu með einkunnina 8,50, þriðja Jóhanna Margrét Snorradóttir á Djásn frá Hlemmiskeiði 3 með 8,48.  
Lesa meira...
26.7.2009 12:06

Jóhann G. Jóhannesson reið sig upp í A-úrslit
B úrslit í A-flokki gæðinga
Hörku flottir sprettir voru í b-úrslitum í A-flokki gæðinga. Sigurverari úrslitanna varð Jóhann G. Jóhannesson og Sinfónía frá Hábæ með einkunnina 8,48. Nú er komið hádegishlé og hefst dagskráin aftur eftir hádegi eða klukkan 13:00.
Lesa meira...
26.7.2009 11:32

Gæðingamót Sleipnis
úrslit ungmennaflokki
Úrslitin á opna gæðingamóti Sleipnis eru hafin. Byrjað var á B-úrslitum og sigraði Svanhvít Kristjánsdóttir á Vísi frá Syðri-Gróf 1. Sigurverari í B-flokki ungmenna varð Þórdís Jensdóttir á Grami frá Gunnarsholti með einkunnina 8,56, önnur Guðlaug Jóna Matthíasdóttir á Zorró frá Álfhólum með 8,47 og þriðja Vigdís Matthíasdóttir á Vila frá Engihlíð með 8,44.
Lesa meira...
18.7.2009 18:19

Viðar Ingólfsson sigraði töltið á Tuma með 9.0 í einkunn
Íslandsmót 2009
Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra-Hofi áttu stjörnusýningu. Þeir félagar mættu sterkir til leiks í úrslitum og bættu fyrir forkeppnina og fengu meðal annars 9,5 í einkunn fyrir hraðabreytingar og sigruðu með einkunmina 9.0.
Lesa meira...
18.7.2009 18:18

Daníel og Tónn sigruðu fimmganginn
Íslandsmót 2009
Daníel Jónsson er sannfærandi íslandsmeistari í fimmgangi á Tóni frá Ólafsbergi. Þetta er gott veganesti fyrir Daníel þar sem þeir félagar eru á leið á HM í Sviss. Annar varð Sigurbjörn Bárðarson á Stakki frá Halldórsstöðum sem varð annar og sá þriðji varð íslandsmeistarinn frá því í fyrra, Sigurður Vignir Matthíasson á Birtingi frá Selá.
Lesa meira...
18.7.2009 15:12

Snorri Dal og Oddur sigruðu fjórganginn
Íslandsmót 2009
Snorri Dal og Oddur frá Hvolsvelli sigruðu fjórganginn með einkunnina 8,17 á Íslandsmótinu í hestaíþróttum sem er nýlokið. Önnur varð Mette Mannseth á Happadísi frá Stangarholti með einkunnina 7,97. Þriðja varð Lena Zielinski á Golu frá Þjórsárbakka með einkunnina 7,63.
Lesa meira...
18.7.2009 15:11

Sigurður Sigurðarson íslandsmeistari í slaktaumatölti
Íslandsmót 2009

Sigurður Sigurðarson og Hörður frá Eskihollti eru nýkrýndir  íslandsmeistarar í slaktaumatölti. Þeir hlutu einkunnina 8,21. Annar var Eyjólfur Þorsteinsson á gæðings hryssunni Ósk frá Þingnesi með einkunnina 8,17. Þriðja varð Hulda Gústafsdóttir á Völsungi frá Reykjavík með einkunnina 7,96.

Lesa meira...
18.7.2009 15:10

Sigurbjörn og Teitur íslandsmeistarar í skeiði
Íslandsmót 2009
Það var Sigurbjörn Bárðarson á Flosa frá Keldudal sem bar sigur úr býtum í 250m skeiði á Íslandsmótinu í hestaíþróttum. Þeir félagar fóru á tímanum 23,52. Önnur varð Mette Mannseth á Þúsöld frá Hólum á tímanum 23,62 og þriðji varð Daníel Ingi Smárason á Óðni frá Efsta Dal á tímanum 23,85.  
Lesa meira...
18.7.2009 15:02

Lena sigraði B-úrslitin í fjórgangi
Íslandsmót 2009
Það var Lena Zielinski á Golu frá Þjórsárbakka sem sigraði B-úrslitin í fjórgangi í morgun. Lena hlaut 7,50 í einkunn. Brotabrotum fyrir neðan hana var Eyjólfur Þorsteinsson á Klerki frá Bjarnanesi 1 með einkunnina 7,47.
 
Lesa meira...
17.7.2009 23:35

Úrslit í gæðingaskeiði
Íslandsmót 2009
Sigurður Sigurðarson sigraði gæðingaskeiðið á Freyði frá Hafsteinsstöðum og annar varð Sigurbjörn Bárðarson á Flosa frá Keldudal . Sjá nánar úrslit.            
Lesa meira...
17.7.2009 18:40

Halldór Guðjónsson efstur eftir forkeppni í tölti
Íslandsmót 2009
Halldór Guðjónsson og Nátthrafn frá Dallandi sigruðu forkeppnina í tölti með einkunnina 8.43, annar varð Sigurður Sigurðarson Kjarnorku frá Kálfholti með einkunnina 8.40 og Þriðji varð Viðar Ingólfsson á Tuma frá Stóra-Hofi  með einkunnina 8.37, það er víst að hart verður barist í úrslitum þar sem þessir kappar hafa áður mæst í úrslitum og skipts á að sigra.
Lesa meira...
17.7.2009 15:13

Öll úrslit úr forkeppni í fimmgangi
Íslandsmót 2009
Daníel Jónsson og Tónn frá Ólafsbergi standa efstir eftir forkeppni í fimmgang með einkunnina 7,43. Daníel átti frábæra sýningu og vann forkeppnina með yfirburðum. Annar varð Sigurbjörn Bárðarson á Stakki frá Halldórsstöðum með einkunnina 7,17 og þriðji varð Eyjólfur Þorsteinsson á Ögra frá Baldurshaga  7,10. Eftirfarandi eru öll úrslit.  
Lesa meira...
8.7.2009 21:56

Úrslit í 250m skeiði á Skeiðleikum
Landsliðseinvaldurinn Einar Öder Magnússon á Davíð frá Sveinatungu bar sigur úr býtum í 250m skeiði á Skeiðleikum Skeiðfélagsins nú í kvöld. Þeir félagarnir fóru á tímanum 23,13. Í öðru sæti varð Sigurbjörn Bárðarson á Flosa frá Keldudal á tímanum 23,57 og þriðji varð Árni Björn Pálsson á Ás frá Hvoli á tímanum 23,64.  
Lesa meira...
5.7.2009 16:02

Máttur frá Torfunesi sigurvegari í A-flokki gæðinga
Máttur frá Torfunesi og Erlingur Ingvarsson sigraðu A-flokk gæðinga eftir frábæra úrslitakeppni sem rétt í þessu var að ljúka hér á Kaldármelum.  Hlutu þeir einkunnina 8,71. Máttur og Erlingur voru jafnframt hæstir í forkeppninni fyrr í vikunni.  Erlingur var að vonum ánægður með árangurinn og hampaði bikarnum hátt á lofti í sólinni og blíðunni á Kaldármelum í lok móts.
Lesa meira...
4.7.2009 14:37
Það eru 1 skoðun/anir á þessari frétt
Sigrún Rós á Biskupi frá Sigmundarstöðum sigraði barnaflokkinn
Fjórðungsmót Vesturlands
Gríðarlega skemmtilegri og spennandi keppni var að ljúka í barnaflokki.  Sigrún Rós Helgadóttir á Biskupi frá Sigmundarstöðum er sigurvegari flokksins með 8,51 í einkunn. Fast á hæla þeirra koma þau Guðný Margrét Siguroddsdóttir á Lyftingu frá Kjarnholtum með 8,50.  Þriðja sætið vermir Birta Ingadóttir á Frey frá Langholti II og hlutu þau einkunnina 8,47.  
Lesa meira...
29.6.2009 00:25

Íslandsmóti barna, unglinga og ungmenna
Þá er lokið Íslandsmóti barna, unglinga og ungmenna í hestaíþróttum árið 2009. Veðrið hélst að mestu gott en þó kom smá hitaskúr  um miðjan daginn, sem er alls ólík þeirri íslensku rigningu með tilheyrandi roki sem við Íslendingar eigum að venjast. Úrslit í öllum greinum fóru fram í dag og óhætt er að segja að glæsileg tilþrif hafi sést í öllum flokkum. 
 
Lesa meira...
28.6.2009 16:57

Rakel Natalie íslandsmeistari í tölti unglinga
Íslandsmeistaramót barna, unglinga og ungmenna
Rakel Natalie átti glæsilega sýningu á Vígari frá Skarði þau sigruðu með einkunnina 8,06, önnur varð Arna Ýr Guðnadóttir á Þróttir frá Fróni með einkunnina 7,44 og þriðji varð Arnar Bjarki Sigurðarson á Kamban frá Húsavík með einkunnina 7,33. Stórglæsilegar sýningar hjá unglingunum.
Lesa meira...
28.6.2009 16:36

Valdimar Bergstað íslandsmeistari í fimmgangi ungmenna
Íslandsmeistara barna, unglinga og ungmenna
Valdimar Bergstað sigraði fimmgang ungmenna á Oríon frá Lækjarbotnum með einkunnina 7,19, annar varð Teitur Árnason á Glað frá Brattholti með einkunnina 7,10 og þriðja varð Camilla Petra Sigurðardóttir á Hyllingu frá Flekkudal 6,67.
Lesa meira...
28.6.2009 16:23

Ólöf Rún íslandsmeistari í fimmgangi unglinga
Íslandsmeistari barna, unglinga og ungmenna
Ólöf Rún og Oddur urðu jöfn í 1-2 sæti, eftir að dómarar birtu sætaröðun hafði Ólöf Rún betur og sigrað fimmgang unglinga með einkunnina 6,55 á Toppi frá Vatnsholti, annar með sömu einkunn var Oddur Ólafsson á Litfara frá Feti og þriðji var Kári Steinsson á Funa frá Hóli með einkunnina 6,52.
Lesa meira...
28.6.2009 15:41

Valdimar Bergstað íslandsmeistari í tölt ungmenna
Íslandsmeistaramót barna, unglinga og ungmenna
Valdimar Bergstað varð íslandsmeistari í tölti ungmenna á Leikni frá Vakurstöðum með einkunnina 7,94, önnur varð Sigríður Sjöfn Ingvarsdóttir á Klaka frá Blesastöðum 1A með einkunnina 7,39 og þriðja varð Hekla Katharína Kristinsdóttir á Dáta frá Hrappstöðum 7,17.
Lesa meira...
28.6.2009 15:25

Róbert Bergmann íslandsmeistari í tölti barna
Íslandsmót barna, unglinga og ungmenna
Það má með sanni segja að Róbert Bergmann sé hástökkvari mótsins, hann sigraði b-úrslitin og varð íslandsmeistari með glæsilegri sýningu. Hann sigraði á Brynju frá Bakkakoti með einkunnina 7,22, frábær einkunn í barnaflokki. Gústaf Ásgeir Hinriksson varð annar á Knerri frá Syðra-Skörðugili með einkunnina 7,11 og þriðji varð Arnór Dan Kristinsson á Háfeta frá Þingnesi 6,67.
Lesa meira...
28.6.2009 15:19

Agnes Hekla íslandsmeistari í slaktaumatölti
Íslandsmót barna, unglinga og ungmenna
Agnes Hekla Árnadóttir varð íslandsmeistari í slaktaumatölti á Öðlingi frá Langholti með einkunnina 6,88, annar var Jón Bjarni Smárason á Vafa frá Hafnarfirði með einkunnina 6,83 og þriðji varð Oddur Ólafsson á Goða frá Hvoli með einkunnina 6,75. Arnar Bjarki varð fyrir því óláni að hestur hans fór útaf vellinum í slakataumnum.
Lesa meira...
28.6.2009 15:14

Camilla Petra íslandsmeistari í fjórgangi ungmenna
Íslandsmót barna, unglinga og ungmenna
Camilla Petra Sigurðardóttir er íslandsmeistari í fjórgangi ungmenna, hún sigraði á Kalli frá Dalvík með einkunnina 7,30, önnur var Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir á Blossa frá Syðsta-Ósi með einkunnina 7,10 og þriðji var Teitur Árnason á Hvin frá Egilsstaðakoti með einkunnina 7,00.
Lesa meira...
26.6.2009 19:35

Einkunnir frá opna punktamótinu á Vindheimamelum
Einkunnir frá opna punktamótinu á Vindheimamelum þann 24.júní síðastliðinn. Efstu í fjórgangi var Bjarni Jónasson á Kommu frá Garði með einkunnina 7,07



Lesa meira...
24.6.2009 15:27

Úrslit miðnæturmóts Hrings
Það er óhætt að segja að knapar, hestar áhorfendur og starfsfólk miðnæturmótisns hafið notið sín í minni Svarfaðardals við mjög góðar aðstæður á Hringsholtsvelli í gærkvöldi. Sólin lét þó ekki sjá sig fyrr en undir lok mótsins. Keppnin gekk mjög vel og stóðust tímasetningar en því ber m.a. að þakka knöpum fyrir mjög fagmanlega framkomu, þar sem þeir mættu undantekningarlaust á réttum tíma til keppni.
Lesa meira...
8.6.2009 14:09

Gæðingamót Andvara fór fram helgina 6.-7.júní
Gæðingamót Andvara fór fram helgina 6.-7.júní. Frábært veður var um helgina og gekk mótið mjög vel. Ólafur Ásgeirsson var með þrjá efstu hestana inn í úrslit í B-flokki, þá Sædyn frá Múla,Jódísi frá Ferjubakka og Líf frá Þúfu og var einnig með hest í úrslitum í A-flokki, hana Dömu frá Flugumýri II, góður árangur þar.
Lesa meira...
6.6.2009 18:52

Gæðingamóti Sörla lauk í dag í blíðskaparveðri á Sörlastöðum
Gæðingamóti Sörla lauk í dag í blíðskaparveðri á Sörlastöðum. Glæsilegir gæðingar sýndu hæfileika sýna við frábærar undirtektir í brekkunni. Mótanefnd Sörla þakkar öllum þeim sjálfboðaliðum, dómurum, keppendum, áhorfendum og síðast en ekki síst styrktaraðilum, sem voru Fagtak ehf. Tengi ehf. Og Kentucky Fried Chicken. Úrslit urðu eftirfarandi:
Lesa meira...
24.5.2009 17:01

Opið WR Íþróttamót Sörla
Opið WR Íþróttamót Sörla lauk í dag. Mótið gekk vel og eru úrslit eftirfarandi.
Lesa meira...
23.5.2009 16:02

Niðurstöður eftir forkeppni á íþróttamóti Andvara
Þá er forkeppni lokið á opna íþróttamóti Andvara. Hér eru heildarúrslit úr forkepnni í öllum flokkum.

Lesa meira...
18.5.2009 11:06

Opna íþróttamót Sóta - Úrslit
Veðrið lék við hvurn sinn fingur á opnu íþróttamóti hjá Sóta um helgina og óhætt er að segja að það hafi tekist með glæsibrag. Tímasetningar gengu upp, völlurinn hefur aldrei verið betri og hestakosturinn var frábær. Sótafélagar hafa lagt nótt við dag að gera mótið sem glæsilegast og vonandi eru gestir ánægðir með hvernig til tókst og að við fáum ennþá fleiri keppendur næst.
Lesa meira...
10.5.2009 11:59

A-úrslit í tölti og öll úrslit í forkeppni
Gæðingamót Fáks
Töltkeppnin í A-úrslitum í meistaraflokki voru æsispennandi, Sigurbjörn Bárðarsson og Berglind Rósa Guðmundsdóttir börðust um fyrsta sætið. Þau voru hnífjöfn, þau ákváðu að ríða ekki bráðabana. Þannig að dómarar röðuðu í sæti. Sigurbirni var oftar raðað í fyrsta sæti og var þar með sigurvegari.
Lesa meira...
8.5.2009 22:26

Stakkur og Sigurbjörn efstir í A-flokki
Gæðingamót Fáks
Áhorfendur fengu oft gæsahúð við það að horfa á A-flokk gæðinga á gæðingamóti Fáks. Ekki var það vegna veðursins heldur vegna þess að margir flugvakrir og glæsilegir  alhliðagæðingar fóru um brautina.
Lesa meira...
7.5.2009 23:25

Forkeppni í B-flokki gæðinga
Gæðingamót Fáks
Lokið er forkeppni í B-flokki gæðinga á Gæðingamóti Fáks. Margir af sterkustu klárhestum landsins þeystust eftir brautinni í dag og var keppnin spennandi. Eldjárn frá Tjaldhólum er efstur inn í úrslit en Kjarni frá Auðsholtshjáleigu fylgir fast á eftir og hinir koma ekki langt undan og ekki er að spyrja fyrr en að leikslokum. Úrslit verða riðin á sunnudaginn en þá verða bæði úrslit í áhugamannaflokki og opnum flokki riðin. 
Lesa meira...
4.5.2009 21:07

A-úrslit frá opna Íþróttamóti Sleipnis
Eins og fram koma á laugardaginn síðasta þá var hörku spennandi keppni hjá Hestamannafélaginu Sleipni á Selfossi. Met þátttaka og hestakosturinn hreint frábær. Keppt var í öllum greinum og flokkum. Hér fyrir neðan eru öll A-úrslit:
Lesa meira...
29.4.2009 13:31

Vetrarmót Loga og Trausta
Þriðja og seinasta vetrarmót Loga og Trausta var haldið á Hrísholti laugardagin 25.apríl. Mótið tókst í alla staði vel og veðurblíðan lék við keppendur og áhorfendur. Myndir frá mótunum má sjá á http://hestamannafelagidlogi.bloggar.is/album/54255/ og í barna og unglingaflokki inn á logakrakkarsíðunni http://logakrakkar.blogspot.com/ . Úrslitin réðust eftir stigasöfnun vetrarins og eru sem hér segir:
Lesa meira...
29.4.2009 09:30

Firmakeppni Sóta - Úrslit
Firmakeppni Sóta / Minningarmót Ása og Önnu fór fram síðastliðinn laugardag, kosningardaginn,  í dásamlegu veðri.  Mótið hófst á stuttri hópreið um Álftanesið sem endaði á vellinum þar sem allir keppendur og fleiri til, tóku þátt í.  Eftir að formaður setti mótið og minntist þeirra hjóna hófu börnin keppnina. 
Lesa meira...
28.4.2009 10:19

Úrslit úr Firmakeppni Gusts
Firmakeppni Gusts fór fram á reiðvellinum í Glaðheimum um helgina. Firmakeppnin er einn af stærstu viðburðum ársins í félaginu og er þátttaka ávallt mjög góð og mikill metnaður lagður í keppnina. Keppt er um veglega farandgripi, auk þess sem glæsilegasta parið er útnefnt af dómurum. Dagurinn hefst á fánareið og svo er tekið til við keppni í öllum flokkum. Að venju tók fjöldi fólks þátt og hestakostur gríðargóður í spennandi keppni. En úrslitin urðu eftirfarandi:
 
Lesa meira...
26.4.2009 22:58

Landsbankamótaröð Sörla
Landsbankamótaröð Sörla lauk um helgina með stórglæsilegu þrígangsmóti. Mikil skráning var á mótinu og var því mikið um frábærar sýningar í blíðskapar veðri. Mótanefnd Sörla vill þakka Landsbankanum fyrir veittan stuðning sem og öllum þeim félagsmönnum sem lögðu hönd á plóginn og að sjálfsögðu öllum keppendum og dómurum.
Lesa meira...
26.4.2009 22:29

Úrslit opna íþróttamóts Mána og TM
Mótið fór vel fram í alla staði og veður var frábært. Góð mæting var á mótið og gaman að sjá svona marga áhorfendur. Hestakostur var virkilega góður og keppendur allir til fyrirmyndar. Dómarar á mótinu voru: Einar Örn Grant, Hörður Hákonarson, Skúli Steinsson, Ann Winter og Bent-Rune Skulevold.
Lesa meira...
26.4.2009 22:23

Vetrarmót Smára
Þriðja og jafnframt síðasta vetrarmót Smára fór fram á velli félagsins í Torfdal á Flúðum laugardaginn 25. apríl.  Þátttaka var með minna móti en veðrið lék við keppendur og áhorfendur. Staðan í samanlögðum stigum var  æsispennandi fyrir mótið og mikil spenna til loka móts.
Lesa meira...
26.4.2009 11:25

Úrslit frá opna ALP/GÁK mótinu
Opna ALP/GÁK töltmótið fór fram á sumardaginn fyrsta í reiðhöll Gusts. Mótið fór vel fram og var gaman að fylgjast með unga fólkinu spreyta sig í keppninni. Keppt var í flokkum barna, unglinga og ungmenna og urðu úrslit eftirfarandi:

Lesa meira...
25.4.2009 23:36

Úrslit frá 3. Landbankamóti Sörla
Landsbankamótaröð Sörla lauk um helgina með stórglæsilegu þrígangsmóti. Mikil skráning var á mótinu og var því mikið um frábærar sýningar í blíðskapar veðri. Mótanefnd Sörla vill þakka Landsbankanum fyrir veittann stuðning sem og öllum þeim félagsmönnum sem lögðu hönd á plóginn og að sjálfsögðu öllum keppendum og dómurum.
Lesa meira...
24.4.2009 14:00

Úrslit frá Firmakeppni Fáks
Að venju var Firmakeppni Fáks haldinn á sumardaginn fyrsta og var þátttakan góð eða um hundrað keppendur í níu flokkum. Veður var heldur blautt og gekk á með miklum skúrum en það bjargaði málunum að logn var á meðan keppni stóð og líka það að Björn veisluhaldari reiddi fram dýrindis veitingar í félagsheimilinu.
Lesa meira...
23.4.2009 22:40

Úrslit í 150 m og gæðingaskeiði
Meistaradeild Vís
Þá er keppni lokið á næst síðasta móti Meistaradeildar VÍS. Keppnin fór fram í dag að Ármóti samhliða stóðhestakynningu. Hópur af fólki lagði leið sína að Ármóti og má ætla að þegar mest var hafi verið um 1.000 manns á svæðinu.
Lesa meira...
21.4.2009 10:50

Varmahlíðarskóli sigraði í glæsilegri keppni
Grunnskólamótið í hestaíþróttum
Síðasta Grunnskólamótið í hestaíþróttum fór fram á laugardaginn var í Arnargerði á Blönduósi og lauk með því að Varmahlíðarskóli sigraði með 178 stig. Keppnin í vetur var afar spennandi og greinilega mikið lagt í hestakostinn hjá krökkunum enda mátti sjá reynda keppnishesta á vellinum og glæsileg tilþrif keppanda.
Lesa meira...
20.4.2009 12:57

Heildarúrslit frá Framhaldskólamótinu
Ragnar Tómasson stigahæsti knapi mótsins
Framhaldskólamótið var haldið með pompi og prakt 11.apríl síðastliðin. 13 skólar tóku þátt í keppninni og stemningin var frekar góð. Mótið var virkilega sterkt eins og sérstaklega má sjá á einkunum í tölt úrslitunum. Meðfylgjandi eru öll úrslit mótsins.

Lesa meira...
20.4.2009 10:40

Úrslit úr forkeppni Kvennatölts
Hér á eftir fara heildarniðurstöður úr forkeppni Kvennatölts 2009 sem haldið var um helgina. Konurnar voru stórglæsilegar og sýndu þær fagmannlega og prúða reiðmennsku.
Lesa meira...
20.4.2009 09:27

Opið hestaíþróttamót Glaðs
Hestamannafélagið Glaður hélt sitt árlega íþróttamót laugardaginn 18. apríl s.l. í blíðskaparveðri.  Skráningar voru um 50 talsins en að þessu sinni ákvað mótanefnd félagsins að hafa mótið opið og komu nokkrir gestir að keppa við okkur sem var ánægjulegt. Samkaup strax, Sjóvá og Vís styrktu mótið og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
Lesa meira...
19.4.2009 23:02

Heildarúrslit frá Líflandsmóti Fáks
Stórglæsilegu Líflandsmóti æskulýðsnefndar Fáks lauk í kvöld. Mikil skráning var á mótið og áttu margir knapar glæsilegar sýningar.  Eftirfarandi eru öll úrslit frá mótinu.
Lesa meira...
10.4.2009 18:58

Heildarúrslit frá Æskulýðsmóti
Meðfylgjandi eru niðurstöður úr forkeppni og a- og b- úrslit gærdagsins á Ímóti æskunnar. Eins og áður hefur komið fram var Æskulýðsmót á ís haldið í gær 9. apríl í Skautahöllinni í Reykjavík. Mótið var haldið til styrktar æskulýðsstarfi LH og er fyrsta sinnar tegundar í þessum aldursflokkum. Keppt var í tveimur flokkum: 48 keppendur kepptu í unglingaflokki 14 – 17 ára og  28 keppendur kepptu í ungmennaflokki 18 – 21 árs.
Lesa meira...
10.4.2009 13:19

Æskulýðsmót á ís - úrslit
Æskulýðsmót á ís var haldið í gær 9. apríl í Skautahöllinni í Reykjavík. Mótið var haldið til styrktar æskulýðsstarfi LH og er fyrsta sinnar tegundar í þessum aldursflokkum. Keppt var í tveimur flokkum: 14 – 17 ára, 52 skráningar og 18 – 21 árs, 29 skráningar.

Lesa meira...
4.4.2009 23:36

Halldór og Nátthrafn þeir allra sterkustu
Ístölt - þeir allra sterkustu
Halldór Guðjónsson og Nátthrafn frá Dallandi eru þeir allra sterkustu. Sýningin hjá þeim félögum á ístölti - "þeir allra sterkustu" var engu lík, Nátthrafn dansaði á ísnum hjá Halldóri. Í öðru sæti var töltsnillingurinn Jóhann R. Skúlason á Höfða frá Snjallsteinshöfða sem var áður í eigu Halldórs, sýningin var frábær hjá þeim.
Lesa meira...
3.4.2009 10:37

Heildarúrslit í fimmgangi
Meistaradeild Vís
Eins og flestir vita þá sigraði Eyjólfur Þorsteinsson B-úrslitin og loks A-úrslitin á Ögra frá Baldurshaga. Halldór Guðjónsson og Sigurður Vignir Matthíasson fengu ógilda sýninga þar sem þeir gleymdu báðir að hneigja sig í upphafi sýningarinnar, mikil vonbrigði fyrir þá þar sem þeir voru báðir með mjög sterka hesta. Bylgja Gauksdóttir var efst inn í B-úrslit en þegar hún var að sýna stökk á hinni ungu og efnilegu Sögn frá Auðsholtshjáleigu, steig hryssan á skeifuna og flaug á hausinn með þeim afleiðingum að Bylgja féll af baki og sýningunni hjá þeim stöllum þar með lokið.
Lesa meira...
31.3.2009 22:33

Annað vetrarmót Loga og Trausta
Annað vetrarmót Loga og Trausta var haldið að Hrísholti laugardaginn 28. mars í mikilli snjókomu. Keppendur létu það ekkert á sig fá og tókst mótið allt hið besta þrátt fyrir leiðinlegt veður. Boðið var upp á heitt kakó og köku í húsi félagsins sem var notalegt eftir útiveruna. Minnum á heimasíðuna okkar http://hestamannafelagidlogi.bloggar.is/
Lesa meira...
30.3.2009 09:26

Úrslit af opnu vetrarmóti Keiluhallarinnar og Gusts
Lokamótið í mótaröð Keiluhallarinnar og Gusts fór fram sl. laugardag í Glaðheimum í Kópavogi. Mótið var opið að þessu sinni og lét góður fjöldi hestamanna sjá sig þrátt fyrir að kuldaboli biti hressilega í kinn þennan daginn. Keppt var í öllum flokkum og urðu úrslit sem segir hér að neðan, auk þess sem stigahæstu knapar þriggja vetrarmóta voru verðlaunaðir sérstaklega.
Lesa meira...
29.3.2009 09:23

Sjö knapar tryggðu sér þátttökurétt á Ístölt – Þeir allra sterkustu
Sjö knapar unnu sér rétt til þátttöku á Ístölti - Þeir allra sterkustu sem fram fer í Skautahöllinni í Laugardal laugardaginn 4. apríl. Jafnir í tveim efstu sætum voru Jón Páll Sveinsson á Losta frá Strandarhjáleigu og Valdimar Bergstað á Leikni frá Vakursstöðum. Komu þau úrslit ekki á óvart. Í þriðja sæti er Elmar Þormarsson á Þrennu frá Strandarhjáleigu.
Lesa meira...
29.3.2009 09:18

Úrslit íþróttamóts Fsu í hestaíþróttum
Mótið var haldið 27.mars í Ölfushöllinni. Úrslit úr forkeppni giltu sem farmiði inná Framhaldsskólamótið í hestaíþróttum sem haldið verður 11.apríl í Víðidalnum. Lið Fsu skipa: Rakel Nathalie Kristinsdóttir, Arnar Bjarki Sigurðsson, Hekla Katharína Kristinsdóttir, Bjarni Sveinsson og Bergrún Ingólfsdóttir.
Lesa meira...
23.3.2009 18:19

Grunnskólamótið í hestaíþróttum
Fyrsta grunnskólamótið í hestaíþróttum var haldið á Sauðárkróki laugardaginn síðasta. Mótið gekk vel í alla staði og var eftirtektarvert hvað krakkarnir voru vel ríðandi. Að sögn mótshaldara gekk allt upp þó um frumraun væri að ræða. Þeir hnökrar sem upp komu verða lagfærðir fyrir næsta mót sem verður þann 4. apríl á Blönduósi. Fóru leikar þannig: 
Lesa meira...
23.3.2009 11:16

Úrslit á Barkamótinu
Hátt í hundrað keppendur öttu kappi á árlegu Barkamóti í Reiðhöllinni í Víðidal. Keppt var í þremur flokkum í tölti og gaf Barki ehf. alla verðlaunagripi og einnig peningaverðlaun og Marstall fóðurbæti. Keppnin var hörð og urðu breytingar í öllum flokkum á toppnum eftir forkeppnina, nema í opnum flokki þar sem Eyjólfur á Ósk frá Þingnesi  lét ekki eftir efsta sætið enda 50 þús. krónur sem fylgdu því.
Lesa meira...
22.3.2009 19:25

K.Steinarsson - úrslit
K.Steinarsson mótið fór fram laugardaginn 21.mars. Mjög góð mæting var í pollaflokkana og mátti glöggt sjá marga framtíðarknapa félagsins. Einnig var góð þátttaka í barnaflokknum. Þar voru stúlkur allsráðandi fyrir utan einn dreng og eingöngu stúlkur í unglingaflokki.  
Lesa meira...
20.3.2009 00:57

Úrslit í gæðingafimi
Meistaradeild Vís
Fegurð, kraftur og glæsileiki lýsa best sýningunni hjá Jakobi Sigurðssyni og Auð frá Lundum í kvöld. Þeir sigruðu með yfirburðum, enda sýningin nær hnökralaus. Þeir hlutu í aðaleinkunn 8.25. Á eftir þeim eða í 2. sæti var Valdimar Bergstað og Leiknir frá Vakursstöðum með einkunnina 7.63. Í 3. sæti var Sigurður Sigurðarson og hin mikli brokkari Suðri frá Holtsmúla með einkunnina 7.45.
Lesa meira...
20.3.2009 00:49

Heildarúrslit í gæðingafimi
Meistaradeild Vís
Þá er stórglæsilegu móti lokið, keppt var í gæðingafimi. Virkilega flottar og vel útfærðar sýningar og einbeittir knapar prýddu augu áhorfenda í kvöld. Eftirfarandi eru heildarúrslit kvöldsins.
Lesa meira...
19.3.2009 09:29

Úrslit í fimmgangi
KS-deildin
Það má með sanni segja að áhorfendur hafi fengið eitthvað fyrir sinn snúð í gærkveldi. Þegar fimmgangur Meistaradeildar Norðurlands fór fram. Hólasveinnin Árni Björn Pálsson (annar í rásröð) gaf fyrsta tóninn og það var enginn feil tónn, því honum var hvergi haggað úr fyrsta sætinu út keppnina.
Lesa meira...
18.3.2009 09:11

Úrslit frá 2. vetrarmóti Glaðs
Hestamannafélagið Glaður hélt aðra vetrarleika sína laugardaginn 14.mars sl. á velli félagsins í Búðardal. Mótið fór vel fram og urðu úrslit eftirfarandi:
Lesa meira...
16.3.2009 15:14

Úrslit frá áskorendamóti Riddara norðursins
Eftirfarandi úrslit eru frá Áskorendamóti Riddara norðursins, sem haldið var í Reiðhöllinni Svaðastöðum laugardagskvöldið 14.mars. Í úrslitum var lið Eyfirðinganna jafnt Íbisliðinu í fyrsta sæti. Til að skera úr um sigurvegarann var ákveðið að fara í reipitog sem var hnífjafnt og átökin hrikaleg en að lokum höfðu Eyfirðingar sigurinn úr býtum við mikinn fögnuð áhorfenda.  Eftir mót var gleðskapur í höllinni fram eftir kveldi.
Lesa meira...
15.3.2009 22:23

Andvari sigraði í Bikarkeppninni
Lokamót Bikarkeppninnar var haldið í Reiðhöllinni í Víðidal á föstudagskvöldið. Mikil spenna var í stigakeppninni, en fyrir mótið var Fákur með nokkuð góða forystu en Andvaramenn voru ekki langt undan. Leikar fóru svo að allir þrír liðsmenn Andvaramanna náðu í úrslitin en Fáksmenn aðeins einum svo Andvari sigraði stigakeppnina  með nokkrum yfirburðum.
Lesa meira...
15.3.2009 13:29

2. vetrarmót Sóta 7. mars 2009 – úrslit og stigasöfnun
2.vetrarmót Sóta var haldið í bliðskaparveðri á velli félagsins, laugardaginn 7.mars.  Mun fleiri skráningar voru núna heldur er á 1.vetrarmóti, sérstaklega í barna – og ungmennaflokki.  Mótið gekk vel og boðið var uppá sannkallað hnallþórukaffi í félagshúsi þar sem verðlaunaafhending fór fram.  Úrslit urðu eftirfarandi:
Lesa meira...
13.3.2009 23:15

Meistaradeild UMFÍ - úrslit í fimmgangi & T2
Hörkuspenna var í Rangárhöllinni í kvöld og margar glæstar sýningar litu dagsins ljós. Arnar Bjarki Sigurðarson sigraði fimmgang á Segli frá Miðfossum og Gústaf Ásgeir Hinriksson sigraði T2 á Knerri frá Syðra-Skörðugili.
Lesa meira...
12.3.2009 09:20

Úrslit í tölti
Skagfirska mótaröðin
Annað mót í Skagfirsku mótaröðinni var haldið í gærkvöldi miðvikudagskvöldið 11. mars í Reiðhöllinni Svaðastöðum. Keppt var í tölti að þessu sinni og voru úrslit eftirfarandi:
Lesa meira...
9.3.2009 10:04
Það eru 1 skoðun/anir á þessari frétt
Straumversleikarnir- úrslit
Aðrir vetraleikar Andvara fóru fram laugardaginn 7.mars í glampandi sól og logni, það gerist varla betra. Þátttaka var mjög góð eða rúmlega 80 keppendur og greinlegt var að kreppan hefur engin árhrif hér á bæ því hestakostur var mjög góður.
Lesa meira...
9.3.2009 09:24

Úrslit af 2. vetrarmóti Sleipnis
2. vetrarmót Sleipnis veturinn 2009 var haldið á ís á Stokkseyri laugardaginn 7. mars sl. Þátttaka var mjög góð og úrslit urðu eftirfarandi:
Lesa meira...
9.3.2009 09:16

Vetrarmót Keiluhallarinnar og Gusts - úrslit
Annað mótið í vetrarmótaröð Keiluhallarinnar og Gusts fór fram í Glaðheimum í gær. Um er að ræða þriggja móta syrpu þar sem þátttakendur safna stigum og í lok þriðja mótsins verða samanlagðir sigurvegarar svo verðlaunaðir sérstaklega.
Lesa meira...
1.3.2009 19:52

Svellkaldar konur - heildarúrslit
Hið árlega ístöltsmót kvenna "Svellkaldar konur" fór fram í Skautahöllinni í Laugardal í gærkvöldi. Hundrað hestar og konur voru skráð til leiks á þessu vinsæla móti og var keppt í þremur styrkleikaflokkum. Konurnar mættu prúðbúnar á glæsilegum hestum sínum og mótið gekk mjög vel á allan hátt. Keppnin var jöfn og spennandi og nokkuð um það að knapar riðu sig upp í úrslitum.
Lesa meira...
23.2.2009 16:22

Úrslit þrígangsmóts Andvara
Opna þrígangsmót í reiðhöll Andvara fór fram laugardaginn 21.febrúar. Mikið rok var þennan dag en keppendur létu það ekki á sig fá. Tæplega 50 skráningar voru á mótið. Í yngri flokk var keppt í A-úrslitum og sigraði þar Andri Ingason á Mátt frá Austurkoti. Keppt var í A- og B- úrslitum í eldri flokknum þar sem Ragheiður Samúelsdóttir á Dúx frá Útnyrðingsstöðum endaði efst í B-úrslitum en Sigurvegari í A-úrslitum var Erla Guðný Gylfadóttir á Hrefnu frá Dallandi.  
Lesa meira...
23.2.2009 12:57

Vetrarleikar Fáks – úrslit
Rúmlega hundrað þátttakendur voru á vetrarleikum Fáks sem voru haldnir á sunnudaginn í fínu veðri.  Margir voru vel ríðandi og alltaf gaman að sjá áhugann hjá ungu knöpunum og hversu vel þau fara á hesti. Vetrarmótin eru frjálslegt og skemmtilegt keppnisform þar sem allir geta notið sín og tekið þátt. Sumir þátttakendurnir höfðu meira að segja fyrir því að safna saman í klapplið til að auka stemmninguna ef vel gengi og mættu líka í bleiku til að undirstrika konudaginn.
Lesa meira...
15.2.2009 21:33

Úrslit frá fyrsta vetramóti Sleipnis
Fyrsta vetrarmót Sleipnis fór fram á Brávöllum laugardaginn 14. febrúar í góðu veðri. Ekki var hægt að keppa á ís að þessu sinni en reynt verður að halda ísmót þegar aðstæður breytast. Þátttaka var góð á mótinu og þessir lentu í stigasæti.
Lesa meira...
9.2.2009 00:52

Úrslit fyrsta vetrarmóts Geysis
Fyrsta vetrarmót Hestamannafélagsins Geysis var haldið núna um helgina 7. febrúar 2009 og var þátttakan góð. Hér eru úrslit frá mótinu.
Lesa meira...
29.1.2009 16:55

Úrslit úrtökumóts KS Deildarinnar
Það var mikil spenna í Svaðastaðahöllinni þegar úrtaka KS -Deildarinnar  fór fram í gærkvöld.
Fjöldi áhorfenda fylgdist með. Keppt var um 7 laus sæti og þurftu knapar að keppa bæði í 4g og 5g. Samanlagður árangur úr þessum tveimur greinum  réð úrslitum.  
Lesa meira...
12.10.2008 16:35

Úrslit gæðingakeppni í Stenholmen
Um liðna helgi var haldin gæðingakeppni í Stenholmen í Svíþjóð. Hinrik Sigurðsson vann B flokk gæðinga á Hrafni frá Holtsmúla með 8,52. Fredrik Sandberg sigraði A flokk gæðinga á Ara wom Fortwald með einkunnina 8,41. Meðfylgjandi eru úrslit mótsins.
Lesa meira...
7.9.2008 18:23

Meistaramót Andvara 2008
Sigurbjörn Bárðarson sigraði A flokk á Stakk frá Halldórstöðum
Sigurður Sigurðarson sigraði B flokk á Kjarnorku frá Kálfholti
Meistaramóti Andvara lauk nú síðdegis í hundleiðinlegu veðri, rok og rigningu. Mótið tókst samt með miklum ágætum og eiga Andvaramenn heiður skilið fyrir gott mót eins og alltaf. Síðustu tvær greinar dagsins voru A úrslit í A og B flokk gæðinga. Það var Sigurbjörn Bárðarson sem sigraði A flokk á Stakk frá Halldórstöðum með 8,77 og Sigurður Sigurðarson sigraði B flokk á Kjarnorku  frá Kálfholti með einkunina 9,04. Meðfylgjandi eru úrslit í A og B flokk gæðinga, 150M og 250M skeiði.
Lesa meira...
29.8.2008 18:10

Suðurlandsmót 2008
Arnór Dan Kristinsson efstur eftir forkeppni í 4 gangi barna
Forkeppni í fjórgangi barna var að ljúka í roki og rigningu á Gaddstaðaflötum á Hellu. Efstur eftir forkeppni stendur Arnór Dan Kristinsson á Háfeti frá Þingnesi með 6,30. Í öðru sæti eru Jóhanna Margrét Snorradóttir á Djásn frá Hlemmiskeiði 3 ásamt Erlendi Ágúst Stefánssyni á Fjölni frá Reykjavík með 6,23 og í þriðja sæti eftir forkeppni í fjórgangi er Gústaf Ásgeir Hinriksson á Knörr frá Syðra-Skörðugili með 6,20. Meðfylgjandi eru úrslit.
Lesa meira...
29.8.2008 10:57

Suðurlandsmót 2008
Úrslit skeiðgreina á suðurlandsmóti á Hellu
Úrslit fimmtudags
Keppt var í skeiðgreinum á suðurlandsmóti í hestaíþróttum í gær á Hellu. Mesta athygli vöktu feiknagóðir tímar í 100 m skeiði en 7 hestar fóru undir 8 sek. Keppni hefst í dag klukkan 13:30  á forkeppni í opnum flokki í fimmgangi á B velli. Klukkan 16.00 hefst svo forkeppni í fjórgangi í barnaflokk á A velli. Meðfylgjandi eru úrslit skeiðgreina gærdagsins.
Lesa meira...
24.8.2008 23:01

Glæsilegu Glitnismóti Dreyra lokið
Það er óhætt að segja að Glitnismóti Dreyra sem lauk nú í kvöld hafi verið frekar blautt. Þrátt fyrir bleytu rok og rigningu þá sást á þessu móti tölur sem ættu helst heima á Landsmóti svo rausnarlegir voru dómara við keppendur. Mótið var allt hið glæsilegasta og skein bros á vörum allra sem þarna voru. Aðstandendur mótsins, starfsfólk og dómarar eiga heiður skilið fyrir mjög svo vandað og glæsilegt mót að Æðarodda.
Lesa meira...
24.8.2008 10:36

Úrslit laugardagsins á Glitnismóti Dreira
Glitnismót Dreyra stendur nú sem hæst og verða öll A úrslit riðin í dag. Meðfylgjandi eru öll úrslit úr forkeppnum, skeiðgreinum og B úrslitum sem riðin voru í gær laugardag.
Lesa meira...
21.8.2008 16:25

Úrslit úr tölti og skeiði á Landbúnaðarsýningu
Frábærir tímar náðust á nýrri kappreiðbraut á félagssvæði Léttfeta á  Sauðárkróki um síðustu helgi á Landbúnaðarsýningunni SveitaSælu.
Lesa meira...
21.8.2008 07:50

Úrslit skeiðleika Skeiðfélagsins
Þá er keppni lokið á fimmtu og síðustu Skeiðleikum Skeiðfélagsins og Glitnis. Sigurbjörn Bárðarson sigraði 250m skeiðið á Flosa frá Keldudal á tímanum 23,03. Teitur Árnason sigraði 150m skeið á Veigari frá Varmalæk á tímanum 14,47 og Sigurður Sigurðarson sigraði 100m skeið á Drífu frá Hafsteinsstöðum á tímanum 7,44. Feikna góðir tímar náðust í 100m skeiði og fóru 9 hestar á tímum undir 8,00. Meðfylgjandi eru úrslit leikanna.
Lesa meira...
13.8.2008 13:56

Aukastafir og hlutkesti í aðalhlutverki á Hestaþingi Snæfellings
Opið Hestaþing Snæfellings fór fram á Kaldármelum um síðustu helgi. Forkeppni í öllum greinum auk B- úrslita í tölti fóru fram á laugardeginum en úrslit voru síðan háð á sunnudegi. Alls bárust tæplega 100 skráningar  en mest var þátttakan í töltkepnninni en þar voru 24 mættir til leiks, enda til mikils að vinna því Húsasmiðjan á Vesturlandi gaf peningaverðlaun alls 120 þúsund í fyrstu þrjú sætin sem skiptist 60 – 40 – 20 þúsund.
Lesa meira...
10.8.2008 19:56

NM2008
Svíar sérfræðingar í slaktaumatölti
LH-Hestar/Jens Einarsson:
Svíar eru sérfræðingar í slaktaumatölti, tölti T2. Þeir hrepptu gull í öllum aldursflokkum. Eva-Karin Bengtsson á Kyndli frá Hellulandi sigraði af öryggi í fullorðinsflokki eins og gert var ráð fyrir, hlaut 7,42 en næstu keppendur, Ann Fornstedt á Putta frá Tungu, einnig frá Svíþjóð, og Daninn Fredrik Rydström á Króki frá Efri Rauðalæk urðu í öðru til þriðja sæti með 6,92. Í næstu tveimur sætum komu fleiri danskir keppendur, þau Annie Sofie Nielsen á Nökkva frá Ryethoj, Fengssyni frá Íbishóli, og Dennis Hedebo Johansen á Alberti frá Strandarhöfði. Agnar Snorri Stefánsson, Íslandi, á Rómi frá Búðardal varð sjötti.
Lesa meira...
10.8.2008 19:54
Það eru 1 skoðun/anir á þessari frétt
NM 2008
Heimir Gunnarsson og Örin í mark í fjórgangi
LH-Hestar/Jens Einarsson
Heimir Gunnarsson er Norðurlandameistari í fjórgangi á Ör frá Prestsbakka. Agnes Helga Helgadóttir, sem keppir fyrir Svíþjóð, varð önnur á Góðdísi frá Toven með 7,13. Þriðja varð Lilian Pedersen, Danmörku, á Þór frá Ketu með 7,10. Það var því mjótt á munum og engin leið að geta sér til um úrslitin fyrirfram, áður en röðin var lesin upp.
Lesa meira...
9.8.2008 16:44

NM 2008
100m skeið, Danir hirða gullið
LH-Hestar/Jens Einarsson
Guðmundur Einarsson á Sprota frá Sjávarborg vann ekki 100m fljúgandi skeið eins og flestir bjuggust við. Það var danska stúlkan Tania Höjvang Olsen á Sóloni frá Strö sem skaust fram fyrir keppinauta sína á 7,52 sekúndum. Sólon er undan DÁsu from Stutt. Hanegal, Höfða-Gustsdóttur frá Sauðárkróki. Guðmundur og Sproti urðu í öðru sæti á 7,55 sekúndum og Malu Logan á Skyggni frá Stóru-Ökrum þriðja á 7,59 sekúndum. Ragnheiður Hallgrímsdóttir á Júpíter frá Ragnheiðarstöðum varð þriðja í flokki unglinga.
Lesa meira...
9.8.2008 16:41

NM 2008
Hulda hélt ekki sætinu í B úrslitum í tölti
LH-Hestar/Jens Einarsson
Hulda Gústafsdóttir á Lokk frá Þorláksstöðum náði ekki að halda sæti sínu í B úrslitum í tölti fullorðinna á NM2008 og komast þar með í A úrslit. Íslendingar geta þó kæst því Denni Hauksson á Disu från Hocksbo, sem einnig keppir fyrir Ísland, tók hennar sæti. Jafn honum varð sænski keppandinn Jan Berntsson á Emblu från Smedjegården. Þeir keppa báðir í A úrslitum.
Lesa meira...
7.8.2008 13:03

NM 2008
Hekla Katarína efst í tölti
LH-Hestar/Jens Einarsson
Hekla Katharina Kristinsdóttir á Gusti frá Kjarri er efst í tölti ungmenna á NM2008 eftir forkeppni. Hún reið fumlaust á toppinn þegar nokkuð var áliðið á keppnina. Rétt á hæla henni er annar íslenskur keppandi, Edda Rún Guðmundsdóttir á Sporði frá Höskuldsstöðum með 6,57. Það er því mjótt á munum og stefnir í tvísýn úrslit. Edda Hrund Hinriksdóttir, sem einnig keppir fyrir Ísland, er í fjórða sæti á Tóni frá Hala með 6,37.
Lesa meira...
7.8.2008 13:01

NM 2008
T2 Tölt fullorðinna
LH-Hestar/Jens Einarsson
Eva-Karin Bengtsson á Kyndli frá Hellulandi er með afgerandi yfirburði í slaktaumtölti fullorðinna á NM2008. Hún er með 7,80 í einkunn en næsti keppandi með 7,07. Hún keppir fyrir Svíþjóð. Kyndill 
er undan Andvara frá Ey og Dvöl frá Syðri-Brekkum, Viðarsdóttur frá Viðvík. Hann er vel taminn og þjálfaður hestur, orðinn sérfræðingur í þessari grein hjá Evu-Karin, sem hefur þjálfað sig og hestinn af mikilli natni og nákvæmni. Íslenski keppandinn Agnar Snorri Stefánsson á Rómi frá Búðardal er fimmti inn í A úrslitin með 6,37 í einkunn.
Lesa meira...
7.8.2008 12:57

NM 2008
Tölt T2 – Unglingar og ungmenni
LH-Hestar/Jens Einarsson
Valdimar Bergstað er fimmti inn í A úrslit í slaktaumatölti unglinga og ungmenna, en þeim flokkum er steypt saman í þessari grein. Valdimar reið hestinum Gauk frá Kílhrauni. Teitur Árnason og 
Ragnheiður Hallgrímsdóttir eru í níunda og tíunda sæti. Erlendu keppendurnir hafa greinilega lagt mun meiri rækt við þessa grein. Linda Antonsson á Isak från Dirhuvud og Amalie Møller-San Pedro á Heiki frá Kjartansstöðum riðu sitt prógram mjög vel og eru vel yfir sex í einkunn.
Lesa meira...
6.8.2008 23:59

Úrslit Skeiðleika Skeiðfélagsins
Þá er fjórðu Skeiðleikum Skeiðfélagsins og Glitnis lokið. Árni Björn Pálsson á Ás frá Hvoli sigraði tvöfalt í kvöld. Þeir félagarnir sigruðu 250m skeið á tímanum 22,70 og 100m skeið á tímanum 7,87. Það var síðan Sigurður Sigurðarson á Spá frá Skíðbakka 1 sem sigruðu 150m skeiðið á tímanum 14,83. Meðfylgjandi eru niðurstöður kvöldsins.
Lesa meira...
6.8.2008 19:30

NM2008
Guðmundur Einarsson með yfirburði í gæðingaskeiði
LH-Hestar/Jens Einarsson
Guðmundur Einarsson á Sprota frá Sjávarborg hafði algjöra yfirburði í gæðingaskeiði fullorðinna á NM2008 í Seljord. Hann fékk 8,71 í einkunn. Hann keppir fyrir Svíþjóð. Næsti keppandi, Sigurður Óskarsson á Kolbeini frá Þóroddsstöðum, fékk 8,04 í einkunn. Sproti, sem er ellefu vetra, er undan Galsa frá Sauðárkróki og Hervarsdótturinni Heru frá Neðra-Ási. Sproti er yfirburða sjéní á skeiði, bæði fimur og fljótur, fór báða sprettina undir átta sekúndum.
Lesa meira...
6.8.2008 19:26

NM2008
Gæðingaskeið ungmenna, gullið til Svía
LH-Hestar/Jens Einarsson
Teitur Árnason á Hraunari frá Kirkjuferjuhjáleigu var hársbreidd frá  Norðurlandameistaratitli í gæðingaskeiði ungmenna á NM2008 í Seljord. Niðurhæging í fyrri spretti mistókst en seinni spretturinn var mjög góður. Hann hafnaði í öðru sæti. Það var hins vegar Svíinn Hedvig 
Larsson sem hreppti gullið með nokkrum yfirburðum, fékk 6,30 í einkunn. Arnar Bjarki Sigurðsson á Snar frá Kjartansstöðum varð fjórði.
Lesa meira...
6.8.2008 19:01

NM2008
Gull til Íslands í gæðingaskeiði unglinga
LH-Hestar/Jens Einarssson
Ragnheiður Hallgrímsdóttir er Norðurlandameistari í gæðingaskeiði  unglinga. Hún reið hestinum Júpíter frá Ragnheiðarstöðum, sem er  undan Kolskeggi frá Kjarnholtum og Venusi frá Skarði, sem Sigurður  Matthíasson reið sig frægan á um árið. Árangur ungu knapanna í gæðingaskeiðinu var að vonum misjafn. Fáir  hafa yfir að ráða auðveldum og snjöllum vekringi. Ekki er hægt að  segja um Júpíter að hann sé barnaleikfang, mikill hestur og  skeiðlagið fremur þungt.
Lesa meira...
6.8.2008 18:58

NM2008
Heimir efstur í fjórgangi fullorðinna
LH-Hestar/Jens Einarsson
Heimir Gunnarsson á Ör frá Prestsbakka er efstur í fjórgangi   fullorðinna á NM2008 eftir forkeppni með 6,97 í einkunn. Hann átti  hnökralitla og heilsteypta sýningu og allir dómarar nokkuð sammála í  einkunnum. Næstur er Jóhann Skúlason á Kiljan frá Blesastöðum 1A með  6,90. Báðir keppa fyrir Ísland, báðir búsettir í útlöndum.
Lesa meira...
5.8.2008 18:15

Úrslit hestaþings Loga
Hestaþing Loga var haldið um verslunarmannahelgina í blíðskaparveðri. Þátttaka var góð og mátti sjá mikið af góðum hestum. Mótið gekk vel fyrir sig,  þakkar mótstjórn öllum þeim sem unnu og komu að mótinu fyrir sitt framtak.
Lesa meira...
2.8.2008 18:07

Unglingalandsmót UMFI í hestaíþróttum
Unglingalandsmót UMFI í hestaíþróttum var haldið á félagssvæði Háfeta í Þorlákshöfn
laugardaginn 2. ágúst. Keppni hófst kl 10.00 og lauk kl.17.00  Keppt var í 4gangi og tölti barna og unglinga. Mikill skráning var á mótið eða 55 sem er mesta skráning í hestaíþróttum á UMFI móti til þessa. Mótið tókst vel, veður var gott og aðstaða fyrir hross var góð.
Lesa meira...
29.7.2008 07:43

Vel heppnað félagsmót Storms
Félagsmót hestamannafélagsins Storms fór fram á Söndum í Dýrafirði dagana 18.og 19.júlí s.l. Á föstudeginum fór fram forkeppni í öllum flokkum. Henni lauk ekki fyrr en um kl.21:30 vegna fjölda keppenda. Af þeim sökum seinkaði kvöldvöku sem hefjast átti í reiðhöllinni kl. 20:30. Það kom þó ekki að sök þar sem menn voru vel vakandi og kátir. Kvöldvakan hófst með glæsilegri töltsýningu og svo tók við keppni í fljúgandi skeiði þar sem knapar lögðu hesta sína á skeið í gegnum reiðhöllina. þar mátti sjá glæsileg tilþrif.
Lesa meira...
27.7.2008 15:44

Íslandsmót
A-úrslit úr 6 greinum Íslandsdmótsins
Íslandsmótið í Víðidal er senn á enda og eru úrslit ljós í nokkrum greinum og þar af leiðandi Íslandsmeistarar krýndir í þeim flokkum. Þar má nefna Snorra Dal á Oddi frá Hvolsvelli en þeir eru Íslandsmeistarar í fjórgangi meistara. Jón Ó. Guðmundsson og Erpir frá Mið-Fossum eru Íslandsdmeistarar í tölti í 1. flokki og Þórdís Gunnarsdóttir á Ösp frá Enni eru Íslandsmeistarar í tölti T2 í 1. flokki.
Lesa meira...
22.7.2008 10:30

Úrslit frá gæðingamóti Neista
Félagsmótið  Neista var haldið á Neistavelli 20. júlí. Góð þátttaka var og frábært veður. Viljum við þakka öllum þeim sem að mótinu stóðu kærlega fyrir, áhorfendum að koma, þátttakendum að sjálfssögðu fyrir að taka þátt og sérstakar þakkir eru  til gestaknapa sem tóku þátt í keppni.
Lesa meira...
21.7.2008 14:01

Faxagleði 2008 – Úrslit
Gæðingakeppni Faxa var haldin Laugardaginn 19.júlí að Mið-Fossum í Borgarfirði,veðrið var eins og best getur verið sól og blíða. Þátttaka var ekki mikil og var keppnin óhefðbundin að því leiti að einungis var riðin úrslitakeppni.
Lesa meira...
21.7.2008 00:11

Fákaflugi 2008 lokið
Þá er vel heppnuðu Fákaflugi lokið en mótið var haldið á Vindheimamelum í Skagafirði í veðurblíðu. Mótið var vel sótt og mikil þáttaka. Meðfylgjandi eru úrslit mótsins.
Lesa meira...
17.7.2008 22:18

Fyrsta keppnisdegi FEIF Ungmennabikarsins lokið
FEIF Youth Cup
Eftir miklar rigningar um morguninn varð veðrið betra þegar leið á setningu mótsins kl. 14:00. Anne Svantesson, framkvæmdastjóri FEIF Ungmennakeppninnar, bauð ungu keppendunum hjartanlega velkomna og þakkaði einnig skipulagsnefndunum fyrir góðan undibúning. Bæjarstjórinn Hr. Hans Bütikofer benti á mikilvægi fyrir svæðið að Ungmennabikarinn (Youth Cup)  væri haldinn á sama stað og Heimsmeistaramótið 2009 í Brunnadern/Neckertal.
Lesa meira...
17.7.2008 11:26

Úrslit skeiðleika Skeiðfélagsins
Skeiðleikar Skeiðfélagsins voru haldinir á Brávöllum á Selfossi. Það kom ekki á óvart að Sigurður Sigurðarson sigraði á Drífu frá Hafsteinsstöðum á tímanum 7,60 í 100m skeiði. Meðfylgjandi eru úrslit mótsins.
Lesa meira...
25.6.2008 09:40

Fjölmennt á Hestaþingi Glaðs í Búðardal
Hestaþing Glaðs sem haldið var í Búðardal s.l. helgi fór vel fram í blíðskapar veðri. Skráningar voru framar öllum vonum og mótshaldarar í Glað að vonum ánægðir með fjölmennt og stórgott mót. Heimamenn fjölmenntu bæði í keppni og í áhorfendabrekkuna og gestir úr hestamannfélögum víða að gerðu slíkt hið sama.  Skráningar voru tæplega 100 í gæðingakeppni, tölti og kappreiðum samanlagt.
Lesa meira...
22.6.2008 12:28

Úrslit félagsmóts Stíganda
Félagsmótið fór fram í blíðskaparveðri á Vindheimamelum laugardaginn 21.júní  Dómarar voru Arndís Brynjólfsdóttir, Sandra Marin og Sara Reykdal. Skráning var góð og margir góð hross sem riðu brautina þennann daginn. Hófst keppnin á forkeppni í B-flokk kl.13:00 og riðið fram eftir degi.
Lesa meira...
16.6.2008 18:22

Opið íþróttamót Faxa-Úrslit
Opið íþróttamót Faxa var haldið Laugardaginn 14.júní og var þátttaka nokkuð góð. Keppt var einungis í opnum flokki og unglingaflokki, þrjú börn voru skráð til keppni og kepptu þau í unglingaflokki og stóðu sig með miklum sóma, þau Sigrún Rós Helgadóttir, Konráð Axel Gylfason og Auður Ása Hreiðarsdóttir riðu öll úrslit í tölti unglinga og Sigrún Rós reið einnig úrslit í fjórgangi. Efnileg börn þarna á ferð.
Lesa meira...
16.6.2008 15:48

Úrslit gæðingamóts og úrtöku Hrings fyrir landsmót 2008
Á laugardaginn var haldið gæðingamót sem jafnframt var úrtökumót Hrings fyrir komandi Landsmót á Hellu. Blíðskapar veður var í Holti og kunnu bæði hestar og menn vel við sig, þó svo að dræm þátttaka hafi verið í mótinu. Hér fyrir neðan er að sjá þrjá efstu hesta í hverjum flokki sem jafnfram eru fulltrúar Hrings á Landsmóti 2008.
Lesa meira...
16.6.2008 12:57

Úrslit félagsmóts og úrtöku Freyfaxa 2008
Félagsmót Freyfaxa og úrtaka fyrir Landsmót 2008 var haldið dagana 14 og 15 júní á Stekkhólma. Meðfylgjandi eru úrslit mótsins.
Lesa meira...
16.6.2008 10:15

Félags og úrtökumót Hornfirðings
Félagsmót Hornfirðings var haldið um liðna helgi dagana 14. og 15. Júní. Forkeppnin var haldin á laugardag og var hún úrtaka fyrir landsmót og voru úrslit síðan riðin á sunnudeginum. Meðfylgjandi eru úrslit mótsins.
Lesa meira...
16.6.2008 09:34

Úrslit íþróttakeppni í Færeyjum
Færeyska íslandshestafélagið hélt sína þriðju íþróttakeppni í Havnardal í Þórshöfn 14 og 15 júní síðastliðin. Keppt var í byrjendaflokk, B flokk, A flokk og Tölti. Meðfylgjani eru úrslit mótsins.
Lesa meira...
16.6.2008 09:01

Úrslit úr gæðingakeppni Funa og Léttis
Gæðingarkeppni Funa og Léttis var haldin á Melgerðismelum um helgina.  Mikið var um góðann hestakost.Einnig var þetta úrtaka fyrir Landsmót hestamanna sem verður á Hellu í júlí. Þar mega Léttismenn hafa fimm fulltrúa í hverjum flokki en Funi tvo. Hestamannfélagið Þjálfi var einnig með í forkeppninni.
Lesa meira...
14.6.2008 21:51

Gæðingamót Geysis - úrslit
Gæðingamót Geysis fór fram í blíðviðri í dag á Gaddstaðaflötum.  Þátttakan var frekar dræm og ljóst að úrtakan um síðustu helgi hafði þar áhrif.  Þeir sem mættu stóðu sig með prýði og margir hverjir voru að æfa sig fyrir landsmót og aðrir að reyna tryggja sér þátttökuseðilinn í tölti.
Lesa meira...
11.6.2008 23:03

Úrslit í 150m skeiði og tölti á Skeiðleikum Skeiðfélagsins
Þá er keppni lokið í 150m skeiði. Logi Þór Laxdal sigraði á Glettu frá Bringu á tímanum 14,70 sem er jafnframt besti tími sumarsins í 150m skeiði samkvæmt stöðulistum. Meðfylgjandi eru úrslitin í 150m skeiði.
Lesa meira...
11.6.2008 21:31

Úrslit í 250m skeiði á Skeiðleikum Skeiðfélagsins
Meðfylgjandi eru úrslit í 250m skeiði á Skeiðleikum Skeiðfélagsins og Glitnis. Blíða er á Selfossi og náðust góðir tímar hér á Selfossi. Daníel Ingi Smárason sigraði á Óðni frá Efsta-Dal á tímanum 23,02 sem er jafnframt besti tími ársins.
Lesa meira...
10.6.2008 21:05

Úrtökumót í Skagafirði
Úrtökumót fjögurra hestamannafélaga í Skagafirði var haldið um liðna helgi á aðal Landsmótsstað Íslendinga, Vindheimamelum. Meðfylgjandi er listi yfir landsmótsfara Glæsis, Léttfeta, Svaða og Stíganda.
Lesa meira...
8.6.2008 23:32

Gæðingakeppni Sóta - Úrslit
Gæðingakeppni Sóta, sem jafnframt var úrtaka fyrir Landsmót, fór fram á velli félagsins síðastliðinn laugardag í úrhellisrigningu og leiðindaveðri sem óneitanlega setti svip sinn á bæði menn og hross. Þó hafa áhorfendur sjaldan verið eins margir enda bauð kaffinefnd uppá glæsilegt kaffihlaðborð og hópur frá norrænum vinabæjum Álftaness kíkti í heimsókn.
Lesa meira...
8.6.2008 21:11

Úrslit á Gæðingamóti Andvara 2008
Úrslitin fóru fram í frábæru veðri að Kjóavöllum í dag. Fjölmenni var í brekkunni og skemmti fólk sér konunglega endi mikið að góðum hestum í brautinni. Það er ljóst að það kemur sterkur hópur frá Andvara á Landsmót í öllum flokkum. Glæsilegasta par mótsins voru valin þau Birna Ósk Ólafsdóttir og Smyrill frá Stokkhólma.
Lesa meira...
8.6.2008 21:10

Úrtaka Geysis, Ljúfs, Smára og Loga
Það má segja að áhorfendur hafi fengið forsmekkinn að því sem koma skal á væntanlegu Landsmóti hestamanna nú um helgina á Gaddstaðaflötum. Margar stórglæsilegar sýningar heilluðu áhorfendur og dómarar svöruðu með háum tölum á úrtökumóti Geysis, Ljúfs, Smára og Loga. Meðfylgjandi eru úrslit mótsins.
Lesa meira...
8.6.2008 17:21

Úrslit Gæðingamóts Harðar og Vís
Gæðingamót Harðar var haldið nú um helgina í Mosfellsbæ. Meðfylgjandi eru öll úrslit mótsins.
Lesa meira...
8.6.2008 04:52

Gæðingamót og úrtaka fyrir Landsmót hjá Andvara
Seinni umferð í úrtöku fyrir Landsmót hjá hestamannafélaginu Andvara í Garðabæ fór fram í gærkveldi. Það er því orðið ljóst hvaða knapar og hestar munu keppa fyrir hönd félagsins á Landsmótinu. Mikil spenna var á úrtökunni og mjótt á mununum hjá knöpum og hestum í flestum flokkum .
Lesa meira...
7.6.2008 09:46

Úrslit forkeppni gæðingamóts Andvara 2008
Í gærkveldi fór fram fyrri umferð úrtöku fyrir Landsmót hjá Andvara. Þessi umferð er einnig Gæðingakeppni félagsins og því hafa sex efstu knaparnir unnið sér rétt til að ríða til úrslita á sunnudaginn í Gæðingamótinu. Seinni umferð úrtökunar fer hinsvegar fram á morgun, laugardag og enn getur orðið breyting á því hvaða knapar og hestar vinna sér þátttökurétt á Landsmóti en Andvari á rétt á því að senda 6 fulltrúa á Landsmót.
Lesa meira...
2.6.2008 00:11

Úrslit úr úrtöku á Vesturlandi
Laugardaginn 31.maí héldu hestamannafélögin á Vesturlandi, Adam, Dreyri, Faxi, Glaður, Skuggi og Snæfellingur sameiginlegt úrtökumót fyrir landsmót og opið töltmót að Miðfossum í Andakíl.
Hér að neðan eru niðurstöður úr forkeppni auk úrslita í opna töltmótinu:
Lesa meira...
1.6.2008 19:46

Úrslit sunnudags á TM Gæðingamóti Fáks 2008
Þá er lokið TM Gæðingamóti Fáks 2008 sem jafnframt var úrtaka félagsins fyrir Landsmót. Mótið hófst sl. fimmtudag á B flokki með Suðurlandsskjálfta sem var yfir 6 á Richter. Meðfylgjandi eru úrslit sunnudags. Úrslitin voru riðin í hvínandi roki og rykmekki en knapar og hestar létu það ekki á sig fá og áttu stórgóðar sýningar. Mótið tókst vel og frábærir gæðingar og knapar sem keppa fyrir Fáks hönd á Landsmóti í öllum flokkum.
Lesa meira...
1.6.2008 11:18

Úrslit gæðingamóts Sörla
Gæðingamót Sörla var haldið dagana 29.-31. Maí að Sörlastöðum í Hafnarfirði Þessi úrtaka fyrir landsmót gekk vel og er Sörli vel "hestaður" fyrir landsmótið. Að þessu sinni sendir Sörli 7 hesta til keppni á Landsmóti. Stjórn Sörla heiðraði Atla Guðmundsson fyrir frábæran og farsælan feril í  þágu félagsins. Atli hefur til að mynda keppt fyrir Sörla á síðustu 10 landsmótum, og var um helgina að ríða sig inn á það ellefta. Sem sagt frábær 30 ára ferill. 
Lesa meira...
1.6.2008 09:25

Úrslit í Forkeppni gæðingamóts Gusts
Forkeppni gæðingamóts Gusts var haldin í gær. Meðfylgjandi eru úrslit úr forkeppn.i Það eru svo sex efstu úr hverjum flokki sem ríða úrslit í dag.
Lesa meira...
1.6.2008 09:00

Niðurstöður úr forkeppni hjá Fáki
Forkeppni gæðingamóts Fáks var haldin í gær laugardag. Meðfylgjandi eru niðurstöður úr forkeppni dagsins ásamt þeim úrslitum sem riðin voru.
Lesa meira...
1.6.2008 08:49

Úrslit gæðingamóts Gusts
Gæðingakeppni Gusts var haldin um liðna helgi. Meðfylgjandi eru úrslit mótsins.
Lesa meira...
31.5.2008 14:42

Undanúrslit í Gæðingakeppni Sörla
Mikil stemning er búin að vera á Sörlavöllum í gær og í dag og talsvert um tilþrif í spennandi keppni. Nú liggja fyrir undanúrslit í öllum flokkum nema unghross. Á morgun hefst keppni kl. 10.00 árdegis á unghrossum en úrslit í barnaflokki hefjast kl. 11.00, þá taka við úrslit í unglingaflokki. Eftir hádegið hefst keppni í pollaflokki, ungmennin taka við og svo B-flokkur og að lokum A-flokkur gæðinga. Sörlafélagar fjölmennum í brekkuna og hvetjum knapa og hross til dáða.
Lesa meira...
30.5.2008 07:20

Úrslit úr B-flokki úrtökumóts hestamannafélagsins Fáks og TM
Hér eru niðurstöður úr B-flokki úrtökumóts hestamannafélagsins Fáks og TM. Þetta eru heildar niðurstöður og fara 14 hestar á Landsmót og 8 hestar í úrslit. Einnig eru niðurstöður úr áhugamannaflokki og 5 hestar í úrslit.
Lesa meira...
26.5.2008 15:42

Úrslit frá Íþróttamóti Andvara 2008
Íþróttamót Andvara var haldið um helgina og var þátttaka góð. Veðrið lék við keppendur og áhorfendur sem skemmtu sér vel. Mikið var um góðar sýningar og opni flokkurinn feikna sterkur í öllum greinum. Yngri flokkarnir hjá Andvara eru sterkir í ár og það verður gaman að fylgjast með því hvernig krakkarnir spjara sig á mótum sumarsins.
Lesa meira...
26.5.2008 12:53

Úrslit íþróttamóts Sóta
Vel heppnað íþróttamót Sóta fór fram á velli félagsins síðastliðinn laugardag. Stemning var góð meðal félagsmanna og væru flestir mættir í sínu fínasta pússi með ungmennafélagsandann í farteskinu.  Boðið var uppá nýbakaðar vöfflur ásamt fleira góðgæti áður en úrslit fóru fram og notuðu menn tækifærið og keyptu sér nýju Sótahúfurnar sem félagar munu skrýðast á LM í sumar.
Lesa meira...
26.5.2008 09:35

Landsmótsfarar Mána
Gæðingakeppni Mána og Sparisjóðsins var haldin um helgina á Mánagrund í Keflavík. Ásmundur Ernir Snorrason og Djásn frá Hlemmiskeiði 3 voru valin glæsilegasta parið. Meðfylgjandi eru úrslit mótsins ásamt lista yfir þá knapa og hesta sem fara fyrir hönd Mána á Landsmót 2008.
Lesa meira...
20.5.2008 20:20

Úrslit í Firmakeppni Léttfeta
Firmakeppni Léttfeta var haldin nú á dögunum. Lydía Gunnarsdóttir sigraði Barnaflokk á Tengil frá Hofsósi. Í öðru sæti varð Hlynur Óli Haraldsson á Glæsi frá Gili og hafnaði Ragnheiður Óladóttir í þriðja sæti í barnaflokki á Presley frá Hofi. Meðfylgjandi eru úrslit mótsins.
Lesa meira...
20.5.2008 07:51

Úrslit Íþróttamóts Gusts
WR Íþróttamót Gusts var haldið um síðsatliðna helgi. Særós Ásta Birgisdóttir og Saga frá Stóra Sandfelli II sigruðu þrígang, Ylfa Guðrún Svafarsdóttir og Gammur enduðu í öðru sæti og Hafþór Hreiðar Birgisson  og Jörð frá Meðalfelli höfnuðu í þriðja sæti.
Lesa meira...
19.5.2008 13:00

Úrslit úr opna Austurlandsmótinu
Opna Austurlandsmótið í hestaíþróttum fór fram í blíðskaparveðri um í Stekkhólma á Héraði um helgina. Hér fylgja úrslit mótsins:
 
Lesa meira...
19.5.2008 09:35

Úrslit Íþróttamóts Geysis
Íþróttamót Geysis var haldið um liðna helgi eða dagana 17-18 maí á Gaddstaðaflötum á Hellu. Meðfylgjandi eru öll úrslit mótsins.   
Lesa meira...
18.5.2008 21:20

Úrslit úr Goðamóti Léttis
Goðamót Léttis var haldið í dag í Breiðholtshverfinu í góðu veðri og var margt um manninn. Öllum var boðið í pylsur og kók í hádeginnu í Skeifunni. Gekk mótið mjög vel og gaman var að sjá hve vel krakkarnir voru ríðandi. Það verður spennandi að fylgjast með þessum ungu og  efnilegu knöpum á landsmótsárinu.
Lesa meira...
18.5.2008 20:34

Úrslit frá opnu WorldRanking Íþróttamóti Sörla
Opið World Ranking Íþróttamót Sörla 2008 var haldið að Sörlastöðum í Hafnarfirði dagana 17.- 18. Maí. Mótanefnd Sörla vill þakka styrktaraðilum fyrir. Þeir voru eftirfarandi: Húsasmiðjan, Góa/Linda,     Ísrör og Fjarðakaup. Einnig vill nefndin þakka öllum þeim sjálfboðaliðum sem og dómurum fyrir frábær störf. Meðfylgjandi eru úrslit mótsins.
Lesa meira...
18.5.2008 19:00

Úrslit sunnudagsins á Íþróttamóti Harðar og Glitnis
Vel heppnuðu Íþróttamóti Harðar og Glitnis sem fram fór nú um helgina er lokið. Vakti það athygli hversu jafnir og góðir hestar voru mættir til leiks. Meðfylgjandi eru öll úrslit dagsins.
Lesa meira...
17.5.2008 22:41

Íþróttamót Harðar og Glitnis – öll úrslit laugardagsins
Þá er öðrum degi lokið á Íþróttamóti Harðar og Glitnis sem haldið er í Mosfellsbæ. Á morgun hefst keppni  klukkan 10.00 á A úrslitum í T2 og strax á eftir hefjast A úrslit í fjórgangi. Meðfylgjandi eru öll úrslit dagsins í dag laugardag.  
Lesa meira...
17.5.2008 20:19

Firmakeppni Hrings úrslit
Í dag fór fram firmakeppni Hrings þar sem 22  knapar voru skráðir til leiks, og fór mótið fram í blíðskaparveðri á Hringsholtsvelli. Hestar og menn voru í góðum gír og áttu góðan dag saman. Verðlaun voru veitt fyrir 5 efstu sæti í hverjum flokki. Hér fyrir neðan má sjá úrslit dagsins. Hringur óskar sigurvegurum til hamingju með árangur dagsins og þakkar styrktaraðilum fyrir þátttökuna.
Lesa meira...
16.5.2008 19:59

Fjölnir og Lukkublesi sigra 150M skeiðið á Íþróttamóti Harðar
Hinn ungi og efnilegi skeiðknapi Fjölnir Þorgeirsson sigraði 150M skeiðið á Íþróttamóti Harðar og Glitnis sem hófst í dag í Mosfellsbæ. Lukkublesi kom kallinum unga í mark og í fyrsta sætið á 16,05 sek. Daníel Ingi Smárason sigraði 250M skeiðið á Óðni frá Efsta-Dal I. Meðfylgjandi eru úrslit úr 150 og 250M skeiði.
Lesa meira...
16.5.2008 19:50

Öll úrslit úr fokeppnum dagsins á Íþróttamóti Harðar og Glitnis
Þá er fyrsta degi lokið á Íþróttamóti Harðar og Glitnis sem haldið var í Mosfellsbæ í dag. Meðfylgjandi eru öll úrslit úr forkeppnum dagsins.
Lesa meira...
14.5.2008 21:29

Úrslit fyrstu skeiðleika Skeiðfélagsins
Fyrstu skeiðleikar ársins hjá Skeiðfélaginu voru haldnir í kvöld að Brávöllum félagssvæði Sleipnis á Selfossi. Daníel Ingi Smárason sigraði 250M skeiðið á Óðni frá Efsta-Dal I. Sigurður Óli Kristinsson sigraði 150M skeiðið á Blökk frá Kílhrauni og svo var það Sigurður Sigurðarson sem sigraði 100M skeiðið á Drífu frá Hafsteinsstöðum. Meðfylgjandi eru úrslit mótsins.  
Lesa meira...
13.5.2008 22:52

Firmakeppni Freyfaxa - úrslit
Firmakeppni Freyfaxa var haldin þann 10. maí síðastliðin á Stekkhólma. Meðfylgjandi rtu úrslit mótsins.
Lesa meira...
13.5.2008 12:53

Úrslit úr vormóti Léttis 2008
Vormót Léttis var haldið á Hlíðarholtsvelli í dag í frábæru veðri. Hitinn 14- 16°C og logn. Það var margt um manninn og hestinn. Þór Jónsteinsson og Moli frá Skriðu sigruðu í töltinu og glöddu augu áhorfenda. Einnig vann Þór 100 m skeið og gæðingaskeið á Seifi frá Skriðu. Stefán Friðgeirsson og Dagur frá Strandarhöfði sigruðu í fimmgangi með glæsibrag.
Lesa meira...
12.5.2008 17:08

Úrslit Hestaíþróttamóts UMSS
Hestaíþróttamót UMSS var haldið á Hólum dagana 9 og 10 maí. Veðrið lék nú ekki við knapa og áhorfendur á föstudeginum en þá snjóaði og var hvasst og kalt. Mótið gekk þó vel og var öll aðstaða til fyrirmyndar og feikna flottir hestar. Meðfylgjandi eru úrslit mótsins.
Lesa meira...
6.5.2008 22:44

Úrslit í firmakeppni Hornfirðings
Firmakeppni  Hornfirðings fór fram í talsverðum vindi ( allir hafa talað um blíðskaparveður ) en það kom ekki að sök því að hestakosturinn var góður að venju. Fjölmörg fyrirtæki  styrktu mótið  og vill félagið færa  þeim  kærar þakkir fyrir stuðninginn.   Þau nýmæli voru höfð á mótinu að riðinn var  tví og þrígangur.
Lesa meira...
5.5.2008 19:20

Firmakeppni Dreyra 1.maí 2008
Firmakeppni Dreyra var haldin á Æðarodda 1. maí, sem einmitt er afmælisdagur félagsins sem stofnað var 1947.  Dómendur keppninnar, sem litla reynslu hafa af dómstörfum tengda hrossum, voru Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar, Gunnar Sigurðsson forseti bæjarstjórnar Akranes og Ólafur Þ. Hauksson  sýslumaður.  Þau þóttu standa sig með afbrigðum vel í störfum sínum.
Lesa meira...
5.5.2008 14:45

Firmakeppni Mána 2008
Firmakeppni Mána fór fram sunnudaginn 4.maí og var þátttaka góð. Verðlaun voru afhent í samkomuhúsinu.  Kvennadeildin var þar með sitt margrómaða kaffihlaðborð sem klikkar ekki og var vel veitt. Þökkum fyrirtækjunum stuðninginn. Úrslit urðu eftirfarandi:
Lesa meira...
5.5.2008 09:43

Skemmtilegri firmakeppni Adams lokið
Þá er skemmtilegri  firmakeppni Adams lokið.  Keppnin fór farm í blíðskaparveðri og skartaði Hvalfjörðurinn sínu fegursta.  Þegar keppnin átti að hefjast gerðist nokkuð óvænt en skemmtilegt. Konungur háloftanna, sjálfur haförninn, ákvað að heiðra keppendur með tilkomumiklum loftfimleikum. Örninn sýndi allar gerðir af aðflugi, flikk-flakki, og dýfum þannig að menn setti í roga stans.
Lesa meira...
5.5.2008 09:40

Firmakeppni Sóta - Úrslit
Hin árlega firmakeppni Sóta fór fram á velli félagsins síðastliðinn laugardag 03.maí. Formaður setti mótið og sagði nokkur orð um nýlátin félaga, Ársæl Karl Gunnarsson og heiðruðu félagar með einnar mínútu þögn. Mótanefnd gerði það að tillögu sinni að næstu firmakeppnir verði hér eftir minningarmót þeirra hjóna, Ása og Önnu.
Lesa meira...
3.5.2008 18:55

Úrslit firmakeppni Sörla
Firmakeppni Sörla og Feðga 2008 var haldin í blíðskaparveðri að Sörlastöðum í Hafnarfirði. Fólk kom í sínu fínasta pússi og sýndi frábæra takta. Í pollaflokk fengu allir knapar verðlaun enda varla hægt að gera upp á milli þeirra. Þau voru eftirfarandi. (ekki í sætaröðun):
Lesa meira...
2.5.2008 15:48

Úrslit Æskulýðsleika Andvara 2008
Æskulýðsleikarnir fóru fram í frábæru veðri þann 1. maí. Keppt var í Polla, Barna, Unglinga og Ungmennaflokki og var þátttakan góð. Þetta var Gæðingamót og riðin á sama hátt og úrtaka fyrir Landsmót en keppendur höfðu leyfi til að koma með eins marga hesta og þau vildu.
Lesa meira...
29.4.2008 19:17

Skeifudagurinn 2008
Skeifudagurinn 2008 var haldinn hátíðlegur á Mið-Fossum í Andakíl fyrir skömmu. Þar kynntu nemendur í hrossarækt árangur vetrarstarfsins í frumtamningar- og reiðmennskunáminu við Landbúnaðarháskóla Íslands. Gaman var að fylgjast með nemendum þennan dag og stóðu þeir sig mjög vel. Kennari þeirra í vetur var tamningameistarinn Reynir Aðalsteinsson.
Lesa meira...
28.4.2008 23:13

Úrslit úr firmakeppni Gusts
Firmakeppni Gusts fór fram sl. laugardag í blíðskaparveðri í Glaðheimum. Að venju var mikil þátttaka og hestakostur gríðarlega góður enda hafði dómari keppninnar orð á því að þetta væri ein alsterkasta firmakeppni sem hann hefði séð og ætti það jafnt við um alla flokka.
Lesa meira...
28.4.2008 23:04

Úrslit íþróttamóts Mána og TM
Opið íþróttamót Mána og TM fór fram um helgina á Mánagrund í Keflavík. Þátttaka á mótinu var góð og allir keppendur til fyrirmyndar. Mótið var styrkt af TM sem gaf öll verðlaun ásamt því að allir keppendur fengu endurskinsmerki. Allir keppendur í pollaflokki fengu bikar og endurskinsvesti.
Lesa meira...
28.4.2008 22:51

Úrslit frá töltmóti Loga, Trausta og Smára
Töltmót Loga , Trausta og Smára var haldið miðvikudagskvöldið 16. apríl síðastliðinn í Ölfushöllinni. Keppt var í barna, unglinga og fullorðins flokki. Gunnlaugur Bjarnason og Tvistur frá Reykholti sigruðu barnaflokk og Kristbjörg Guðmundsdóttir og Blær frá Efsta-Dal sigruðu unglingaflokk. Meðfylgjandi eru öll úrslit mótsins.
Lesa meira...
28.4.2008 22:50

Lokaúrslit vetrarmóts Loga og Trausta
Seinasta vetrarmót Loga og Trausta var Haldið að Hrísholti laugardaginn 26. apríl. Þáttaka var góð og voru skráðir 40. þáttakendur. Meðfylgjandi eru úrslit úr lokamótinu og samanlagður árangur.
Lesa meira...
25.4.2008 19:02

Firmakeppni Fáks – úrslit
Firmakeppni Fáks var haldin að venju á sumardaginn fyrsta sem bar upp á 24. apríl í ár. Firmakeppnisfyrikomulagið er einkar skemmtilegt þar sem allir geta tekið þátt og sýnt það sem hestur og knapi eru bestir í enda sáust fjölbreytt tilþrif að venju.
Lesa meira...
20.4.2008 12:03

III. Landsbankamót vetrarins Hjá Sörla
III. Landsbankamót vetrarins hjá Sörla var haldið 18.-19. apríl, í blíðskaparveðri að Sörlastöðum í Hafnarfirði. Mótanefnd Sörla vill þakka Landsbankanum kærlega fyrir stuðninginn á þessari mótaröð. Hestkostur var mikill og góður og urðu úrslit eftirfarandi.
Lesa meira...
20.4.2008 11:10

Úrslit Líflandsmóts Fáks
Líflandsmót æskulýðsnefndar Fáks fór fram í gær 19.apríl og óhætt er að segja að mótið hafi tekist vel í alla staði og voru dómarar, mótsgestir, mótshaldarar og keppendur mjög ánægðir með framkvæmdina í mótslok í gærkvöldi.  Að venju voru krakkarnir mjög vel ríðandi og stóðu sig með miklum sóma og ljóst að gaman verður að sjá þau á keppnisvöllunum í sumar.
Lesa meira...
19.4.2008 12:15

Úrslit lll vetrarmóts Smára
lll vetrarmót Smára var haldið í góðu veðri síðastliðin föstudag og var mjög gfóð þáttaka. Sigurbjörg Bára Björnsdóttir  sigraði barnaflokkin á Evitu frá Vorsabæ II. Meðfylgjandi eru úrslit mótsins.
Lesa meira...
17.4.2008 09:12

Vetrarleikar Faxa-Úrslit
Fjórðu vetrarleikar hestamannafélagsins Faxa voru haldnir í gærkveldi. Sigrún Rós Helgadóttir og Biskup frá Sigmundarstöðum sigruðu barnaflokkin og Heiðar Árni Baldursson og Breki frá Króki sigruðu unglingaflokk, meðfylgjandi eru úrslit mótsins.
Lesa meira...
15.4.2008 21:59

Úrslit framhaldsskólamótsins í hestaíþróttum
Versló stigahæsti skólinn
Framhaldsskólamótið í hestaíþróttum var haldið síðastliðin laugardag i Ölfushöllinni á Ingólfshvoli. Verslunarskóli Íslands varð stigahæsti skólinn á mótinu með 227,5 stig, Fjölbrautaskóli Suðurlands varð í öðru sæti með 209,5 stig og Fjölbrautaskóli Vesturlands hafnaði í þriðja sæti með 128,5 stig. Meðfylgjandi eru úrslit mótsins.
Lesa meira...
14.4.2008 23:09

Stjörnur á Kvennatölti
Kvennatölt Gusts fór fram um helgina og var feikna þátttaka að venju, en keppt var í fjórum styrkleikaflokkum. Töluvert var um nýjar stjörnur í efstu sætum og þótti hestakostur mjög góður.Í byrjendaflokki sigraði Silja Hrund Júlíusdóttir örugglega á Hregg frá Hátúni, en í flokknum minna vanar var það Guðrún H.Valdimarsdóttir sem sigraði á Rauðanúp frá Sauðárkróki. Báðar leidddu þær eftir forkeppni og héltu fyrsta sætinu í úrslitum.
Lesa meira...
14.4.2008 10:22

Bakkatölt úrslit
Annað Bakkatölt Sóta fór fram á Bökkunum við Breiðumýri síðastliðinn laugardag í fínu veðri. Fyrirhugað var að halda vetrarleika á vellinum en sökum bleytu var mótið fært á Bakkana þar sem síðasta mót þótti takast sérlega vel.  Mótið fór vel fram en haft var á orði að þetta hefði verið sannkallað hraðmót þar sem aðeins tók um 40 mínútur að keppa í öllum flokkum.
Lesa meira...
13.4.2008 20:00

Úrslit vetrarmóts Harðar
N1 vetrarmót Harðar var haldið í gær í blíðskaparveðri í Mosfellsbæ. Reynir Örn Pálmason sigraði opna flokkinn á Baldvin, Alexander Hrafnkelsson varð í öðru sæti á Gutta Pet og  Lúther Guðmundsson hafnaði í þriðja sæti á Gými. Meðfylgjandi eru úrslit mótsins.
Lesa meira...
9.4.2008 17:10

úrslit 3. vetrarmóts Geysis
Þriðja vetrarmót Geysis var haldið á Gaddstaðaflötum í allnokkrum norðangarra laugardaginn 5. apríl s.l. Mæting var í meðallagi og hestakostur almennt góður. Úrslit voru sem hér segir:
Lesa meira...
7.4.2008 15:40

Úrslit í Karlatölti Andvara 2008
Karlatölt Andvara var haldið sl. föstudag í reiðhöll Andvara. Góð skráning var í alla flokka á mótinu og skemmtileg stemmning í húsinu. Það var Meistaradeildarknapinn Páll Bragi Hólmarsson sem sigraði Opna flokkinn nokkuð örugglega en annar knapi úr Meistaradeildinni Jón Ó Guðmundsson sótti fast að honum. Landsmótssigurvegarinn Snorri Dal varð svo þriðji.
Lesa meira...
7.4.2008 10:00

Úrslit frá Vetrarleikum Fáks
Aðrir Vetrarleikar Fáks fóru fram sl. laugardag í blíðskaparveðri, blanka logni og sól. Á meðan vöfflu- og kakóilmurinn frá bakstri æskulýðsdeildar barst áhorfendum þá öttu knapar kappi niður á velli og var ekkert gefið eftir. Þátttakan var mikil og hafa unglingar verið sérlega duglegir að taka þátt í vetrarleikunum og hafa þeir verið fjölmennasti flokkurinn á vetrarleikunum í vetur.
Lesa meira...
6.4.2008 15:39

Úrslit af opnum vetrarleikum í Gusti
Í gær, laugardaginn 5. apríl, fóru fram opnir vetrarleikar í Glaðheimum í Kópavogi. Þátttaka var góð og nutu knapar og hestar sín vel í blíðskaparveðri. Þó vakti athygli að einn vinsælasti keppnisflokkurinn, Konur II, lagðist af en skýringin mun þó felast í óvissuferð kvennadeildarinnar sem einnig var á dagskrá í dag. Hart var barist í öllum flokkum og í nokkrum þeirra voru riðið sérstök úrslit til að hægt væri að skera endanlega úr um röðun og urðu niðurstöður eftirfarandi:
Lesa meira...
6.4.2008 15:30

Úrslit af flugbrautinni í Kjós
Flugbrautarleikum Adams er lokið og flugumferð í Kjósinni komin í eðlilegt ástand aftur. Leikarnir sem styrktir voru af hinum spræku smiðum hjá Nýbyggð og náttúrubúinu; Bio Búi tókust bara vel. Ja ef frá er talið flugið sem sá skjótti tók sem var þó slysalaust þar til koma að lendingu; en sá skjótti gerði sér lítið fyrir og tók flugið ekki aðeins að hestakerru eiganda sins, heldur inn í kerruna.
Lesa meira...
1.4.2008 09:47

Annað vetrarmót Loga og Trausta - Úrslit
Annað vetrarmót Loga og Trausta var haldið í Ölfushöllinn laugardaginn 29. mars. Þáttaka var með eindæmum góð og skráðu sig alls 37 keppendur. Mótið tókst vel til og þökkum við bæði keppendum, dómurum og öðrum sem að mótinu komu kærlega fyrir. Úrslitin voru sem hér segir:
Lesa meira...
30.3.2008 02:22

Viðar og Siggi Sig eru þeir allra sterkustu
Ísmótið Þeir allra sterkustu var haldið  á skautasvellinu í Laugardal í gærkveldi fyrir fullu húsi. Það var stórhestabóndinn Sigurður Sigurðsson sem sigraði töltkeppnina á Kjarnorku frá Kálfholti og í öðru sæti varð Þórdís Erla Gunnarsdóttir á Ösp frá Enni og í þriðja sæti hafnaði Halldór Guðjónsson á Nátthrafni frá Dallandi.
Lesa meira...
28.3.2008 09:42

MDV fimmgangur A og B úrslit
Eins og áður hefur komið fram hér á Hestafréttum þá var það Hulda Gústafsdóttir sem sigraði fimmganginn í Meistaradeild VÍS í gærkveldi á Galdri frá Flagbjarnarholti. Öll A og B úrslit mótsins eru meðfylgjandi.
Lesa meira...
28.3.2008 08:33

Úrslti úr svarfdælsku mótaröðinni
Annað mótið í Svarfdælsku mótaröðinni í hestaíþróttum var haldið í Hringsholti í gærkveldi. Keppt var í  fjórgangi og tölti í opnum flokki  og tölti og þrígangi í unglingaflokki. Meðfylgjandi úrslit mótsins.
Lesa meira...
27.3.2008 17:09

Ístöl í Svíþjóð
Istölt Elit 2008
Í Svíþjóð  var haldið  ísmót ( Istölt Elit 2008 ) síðastliðinn sunnudag, páskadag.  Mótið var haldið i blíðskapar veðri,  mitt inn í Uppsala borg. Keppt var í tölti, fjórgang, fimmgang og speed skeiði (ekki var riðið stökk og fet í 4g og 5g). Stemningin var frábær og rúmlega 2000 manns sátu á áhorfendapöllunum. Frábært mót í alla staði og er von allra að þetta verði árlegt ísmót Svía.
Lesa meira...
27.3.2008 08:38

Frábær skemmtun í Svaðastaðahöllinni
Það var boðið uppá mikla skemmtun í Svaðastaðahöllinni þegar fimmgangskeppni KS-Deildarinnar fór fram. Úrslitin réðust ekki fyrr en á síðustu stundu því mjög jafnt var á miili hesta fram að skeiðinu. Það fór þó svo að sigur úr býtum báru Stefán Friðgeirsson og Dagur frá Strandarhöfði. Þeir félagar kunna mjög vel við sig á þessum stað,  því þeir hafa verið nær ósigrandi í fimmgangi í Svaðastaðahöllinni.
Lesa meira...
25.3.2008 08:32

Ístöltmót Loga
Það tókst loksins að halda ístölt þó varla mætti tæpara standa, ísinn á hröðu undanhaldi. Það var síðast haldið mót árið 2002 svo það var kominn tími til. Mótið var haldið á bökkunum fyrir neðan Fellskot laugardaginn 22. mars. Keppt var í tveimur flokkum fullorðinsflokki og börnum 16 ára og yngri. Úrslit voru þessi:
Lesa meira...
25.3.2008 08:29

3 vetrarleikar Faxa úrslit
Úrslit þriðju vetrarleika Faxa voru haldnir um helgina. Í barnaflokki sigruðu Íris Ragnarsdóttir og Spóla frá Svínafelli II, Gyða Helgadóttir og Hermann frá Kúskerpi sigruðu pollaflokk og Heiðar Árni Baldursson og Fálki frá Múlakoti sigruðu unglingaflokk. Meðfylgjandi eru úrslit mótsins.
Lesa meira...
24.3.2008 11:24

Hemlumótið ístölt og skeið
Góð mæting var á fyrsta Hemlumótinu sem sem haldið var við Hemlu í gær. Keppt var í ístölti og skeiði.  Veður var með ágætum frábært landslag og hestakostur góður. Frábært framtak hjá Vigni Lottu og Guðmundi. Vonandi verður þetta árlegur viðburður. Meðfylgjandi eru úrslit mótsins.
Lesa meira...
23.3.2008 11:35

Þórdís Erla sigraði Stjörnutöltið
Þórdís Erla Gunnarsdóttir sigraði Stjörnutöltið sem haldið var í Skautahöllinni á Akureyri síðastliðið laugardagskvöld á Hespu frá Eystra Súlunesi. Þetta er annað árið í röð sem Þórdís sigrar Stjörnutöltið. FT norður veitti Þórdísi viðurkenningu fyrir prúðmannlega reiðmennsku. Meðfylgjandi eru 5 efstu knapar og hross.
Lesa meira...
18.3.2008 12:00
Það eru 2 skoðun/anir á þessari frétt
Úrslit 2. Landsbankamóts Sörla
2. Landsbankamót vetrarins var haldið 15. febrúar síðastliðin að Sörlastöðum í Hafnarfirði í frábæru veðri. Úrslit urðu eftirfarandi: Í pollaflokki voru átta keppendur og var ekki hægt að raða þeim í sæti og fengu þeir allir verðlaun.
Lesa meira...
17.3.2008 08:13

Úrslit Barkarmótsins
Barkamótið 2008 var haldið í Reiðhöllinni, Víðidal og var mikið af sterkum hestum skráðir til leiks. Sara Sigurbjörnsdóttir sigraði flokkinn 17 ára og yngri á Melódíu frá Möðrufelli, Þórdís Jensdóttir sigraði áhugamannaflokk á Gram frá Gunnarsholti og Lena Zielinski sigraði opna flokkinn á Einingu frá Lækjarbakka. Með sigrinum unnu Lena og Eining sér þátttökurétt á ”Þeir allra sterkustu” sem haldið verður í Skautahöllinni, Laugardal 29. mars n.k.
Lesa meira...
14.3.2008 15:56

Úrslit úr svarfdælsku mótaröðinni
Í gærkvöldi var fyrsta umferð í Svarfdælsku mótaröðinni.  Margt var um manninn og  góð þátttaka og virðist mótið vera orðinn fastur liður hjá mörgum Eyfirskum knöpum. Næsta umferð verður haldin 27.mars
Lesa meira...
14.3.2008 15:41

Úrslit úr Svarfdælsku mótaröðinni
Í gærkvöldi var fyrsta umferð í Svarfdælsku mótaröðinni.  Margt var um manninn og  góð þátttaka og virðist mótið vera orðinn fastur liður hjá mörgum Eyfirskum knöpum. Næsta umferð verður haldin 27.mars. Úrslit eru eftirfarandi:
Lesa meira...
Eldri fréttir