Gæðingamót Andvara fer fram helgina 6. – 7. Júní. Skráning á mótið verður þriðjudagskvöldið 2.júní kl: 20-22. Einnig er tekið við skráningum í síma 896-8707 eða 868-5995 gegn kortanúmeri. Ekki er tekið við skráningum eftir þennan tíma. Skráningargjöld eru 3000 kr fyrir ungmenni, A- og B-flokk og unghross í tamningu, 2500 kr fyrir börn og unglinga, 2000 kr fyrir tölt og skeið og 1000 kr fyrir polla.
Eftirfarandi flokkar eru í boði ef næg þátttaka fæst:
Pollar
Börn
Unglingar
Ungmenni
A-flokkur
B-flokkur
Unghross í tamningu(fædd 2004 og 2005)
Tölt (opið)
100 m skeið (opið)
Mótanefnd auglýsir jafnframt eftir aðstoð á mótinu, riturum,hliðvörðum og fl. Endilega hafið sambandi við Má í síma 866-6068 eða Huldu í síma 868-5995 ef þið getið aðstoðað. og muna að skila farandbikurum þeir sem þá eru með!
Mótanefnd
















