Glitnis pg Íshestamót Sörla, gæðinga og töltkeppni hefst á morgun 17. júlí og stendur til fimmtudags. Keppni hefst kl. 18.00 á mótadögunum. Seinni skráningardagur á mótið er í kvöld 16. júlí milli klukkan 19:00 og 21:00 í dómpalli.
Skráningargjald er 2.000,- fyrir börn, unglinga og ungmenni en 3.000,- fyrir fullorðna. Símar í dómpalli: 898 3031, 698 3168 og 699 0512. Dagskrá mótsins er hér:
OPIN GÆÐINGAKEPPNI OG TÖLT
MÓTARÖÐ GLITNIS
GLITNIS OG ÍSHESTAMÓT SÖRLA
17. -19. JÚLÍ Á SÖRLASTÖÐUM
Dagskrá:
Þriðjudagur 17/7
Börn, ungmenni, A-flokkur opinn og áhugamenn, tölt meistara, 1. og 2. flokkur
Miðvikudagur 18/7
Unglingar, B-flokkur opinn og áhugamenn og 100 m. Skeið
Fimmtudagur 19/7
Úrslit
Nokkrir punktar um mótið:
Í barna, unglinga, ungmenna og áhugamannaflokkum má knapi keppa með fleiri en einn hest en velur einn í úrslit.
Í áhugamannaflokki er aldurstakmark knapa 18 ára og eldri.
Rafrænn tímatökubúnaður í skeiði
5 dómarar dæma
8 hestar keppa til úrslita í öllum flokkum. A og B úrslit í tölti ef næg þátttaka fæst.
Allir sem lenda i úrslitum fara í pott þar sem dregið verður um vegleg verðlaun í mótslok.
















