Glitnismót Dreyra 2007

Opna Glitnismót Dreyra verður haldið á félagssvæði Dreyra, Æðarodda dagana 25-26 ágúst. Mótið er World Ranking mót. Keppt er í öllum flokkum. Mótanefnd Dreyra áskilur sér rétt til þess að fella niður þær greinar sem ekki fæst næg þátttaka í....

Opna Glitnismót Dreyra verður haldið á félagssvæði Dreyra, Æðarodda dagana 25-26 ágúst. Mótið er World Ranking mót. Keppt er í öllum flokkum. Mótanefnd Dreyra áskilur sér rétt til þess að fella niður þær greinar sem ekki fæst næg þátttaka í.

Þeir keppendur sem hafa skráð sig í viðkomandi grein verða færðir upp um flokk eða flokka. Ef ekki fæst nægt þátttaka í viðkomandi grein í meistaraflokk verða þeir keppendur færðir niður í opinn flokk.

Skráning fer fram mánudagskvöldið 20. ágúst klukkan 20:00-24:00, í símum 868-7606 (Karen), 697-3193 (Ólöf). Aðeins er tekið við skráningum gegn kreditkortanúmeri, og þarf keppandi að gefa upp kennitölu sína og IS númer hests.

Skráningargjöld: Börn, Unglingar, ungmenni 2.000 kr. Fullorðnir 3000 kr.
Athugið að ekki verður tekið við skráningum nema gegn greiðslu skráningargjalda.

Öll hross þurfa að vera grunnskráð í World Feng og gefa þarf upp ISnúmer við skráningu.

Kveðja,
Mótanefnd Dreyra.