Grímutölt í Reiðhöllinni

Á laugardaginn verður Grímutölt í Reiðhöllinni kl. 16:00. Það er skilyrði að mæta í grímubúningi til að geta tekið þátt.Keppnisformið er hægt tölt og fegurðartölt. Keppt verður í tveimur aldursflokkum og tveimur styrkleikaflokkum innan hvers aldursflokks. Pollaflokkur, (teymingaflokkur), allir fá...

Á laugardaginn verður Grímutölt í Reiðhöllinni kl. 16:00. Það er skilyrði að mæta í grímubúningi til að geta tekið þátt.Keppnisformið er hægt tölt og fegurðartölt. Keppt verður í tveimur aldursflokkum og tveimur styrkleikaflokkum innan hvers aldursflokks.

Pollaflokkur, (teymingaflokkur), allir fá þátttökuverðlaun og flottustu 5 búningarnir verðlaunaðir sérstaklega.

15 ára á árinu og yngri (fædd 1997 eða síðar)
*Keppnisvanir
*Minna keppnisvanir

16 ára og eldri (fædd 1996 eða fyrr)
*Keppnisvanir
*Minna keppnisvanir

Fimm flottustu grímubúningarnir í hvorum aldurflokki fyrri sig verða verðlaunaðir.

Einnig keppa 5 efstu í hverjum styrkleikaflokki til úrslita í tölti þar sem dæmt verður hægt tölt og fegurðartölt.

Skráning í Reiðhöllinni kl. 13:30-14:00
15 ára og yngri hefja keppni kl. 16:00
Skráningagjald er kr. 1.000 fyrir 16 ára og eldri – ekkert fyrir yngri þátttakendur.

Höfum gaman að þessu og tökum þátt eða komum og horfum á skemmtilega keppni – frítt inn.