Grunnskólamót hestamannafélaganna

Keppt var um þennan glæsilega bikar sem gefinn var af sparisjóðunum á Hvammstanga, Skagafirði og Siglufirði Æskulýðsnefndir hestamannafélaganna í Skagafirði og Húnavatnssýslum funduðu fyrir helgi og ákváðu fyrirkomulag Grunnskólamóts Hestamannafélaganna í vetur. Samskonar stigafyrirkomulag verður í vetur eins og á...

Keppt var um þennan glæsilega bikar sem gefinn var af sparisjóðunum á Hvammstanga, Skagafirði og Siglufirði Æskulýðsnefndir hestamannafélaganna í Skagafirði og Húnavatnssýslum funduðu fyrir helgi og ákváðu fyrirkomulag Grunnskólamóts Hestamannafélaganna í vetur.

Samskonar stigafyrirkomulag verður í vetur eins og á fyrra ári þar sem krakkarnir safna stigum fyrir sinn skóla. Ákveðið var að keppa í pollaflokki og skeiði á hverjum stað.
Grunnskólamót Hestamannafélaganna verða á: Blönduósi, 21. febrúar. Keppt verður í smala, pollaflokki og skeiði. Hvammstanga, 7. mars. Keppt verður í þrígangi – fjórgangi, pollaflokki og skeiði. Sauðárkróki, 18. apríl. Keppt veður í tölti, pollaflokki og skeiði.