Hágengur Klerkur

Klerkur frá Bjarnanesi heitir svartur 4 vetra foli í Hornafirði. Hann er undan Glampa frá Vatnsleysu og hinni þekktu klárhryssu Snældu frá Bjarnanesi, sem er alsystir stóðhestsins Þokka frá Bjarnanesi. Eigandi og ræktandi Klerks er Olgeir Ólafsson á Hornafirði. Eins...

Klerkur frá Bjarnanesi heitir svartur 4 vetra foli í Hornafirði. Hann er undan Glampa frá Vatnsleysu og hinni þekktu klárhryssu Snældu frá Bjarnanesi, sem er alsystir stóðhestsins Þokka frá Bjarnanesi. Eigandi og ræktandi Klerks er Olgeir Ólafsson á Hornafirði.

Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd sver Klerkur sig í ættirnar hvað fótaburðinn varðar, en Glampi og Snælda eru hvort um sig með hágengustu hrossum landsins — viljug og fasmikil oní kaupið. En Klerkur er til þess að gera lítið taminn og óvíst að hann fari í kynbótadóm fyrir FM07.

Hreyfingarnar eru miklar og erfitt fyrir svo ungan hesta að ná jafnvægi á tölti á fyrsta ári, eins og gefur að skilja. Olgeir gerir hins vegar ráð fyrir að vera með ræktunarhóp á FM07 og telur ekki ósennilegt að Klerkurinn fljóti þar með.

Um það hvort hann tæki þátt í opinni stóðhestasýningu vildi Olgeir ekkert segja um, ætlar að skoða það mál betur áður en hann tekur ákvörðun.