Það eru sannkallaðir hákarlar sem koma til með að berjast um glæsileg peningaverðlaun í opnum flokki í tölti á Fjórðungsmóti Austurlands. Tveir Íslandsmeistarar eru skráðir þar til leiks, Viðar Ingólfsson á Tuma frá Stóra-Hofi og Hans Kjerúlf á hinum 17 vetra höfðingja Laufa frá Kollaleiru.
Einnig eru fleiri keppendur sem hafa staðið í toppbaráttunni í hestaíþróttum og má þar nefna Baldvin Ara Guðlaugsson á Erni frá Grímshúsum, Olil Amble á Svaka frá Holtsmúla 1, Mette Mannseth á Braga frá Hólum, og svo Eyjólf Þorsteinsson á hinni 6 vetra Kommu frá Bjarnanesi, sem er með eina hæstu einkunn B flokks hrossa inn á Fjórðungsmót.
Eins og greint hefur verið frá eru í boði há peningaverðlaun í tölti, 100 þúsund krónur fyrir fyrsta sætið og 50 þúsund krónur fyrir annað og þriðja sætið.














