Héraðssýning kynbótahrossa á Vesturlandi 2011

Héraðssýning kynbótahrossa á Vesturlandi verður að Mið-Fossum, Borgarfirði dagana 6.-10. júní næstkomandi. Tekið er við skráningum hjá Búnaðarsamtökum Vesturlands dagana 26.-27. maí og 30.- 31. maí í síma 437-1215. Við skráningu þarf að koma fram númer, nafn og uppruni hrossanna,...
Héraðssýning kynbótahrossa á Vesturlandi verður að Mið-Fossum, Borgarfirði dagana 6.-10. júní næstkomandi. Tekið er við skráningum hjá Búnaðarsamtökum Vesturlands dagana 26.-27. maí og 30.- 31. maí í síma 437-1215. Við skráningu þarf að koma fram númer, nafn og uppruni hrossanna, nafn og kennitala knapa og sími.
Sýningargjald á hvert hross er kr. 15.000,- fyrir fulldæmd hross en kr. 10.500 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm eða hæfileikadóm.
Sýningargjöld skal greiða á skrifstofu BV á Hvanneyri eða á reikning nr. 0354-26-100, kt.: 461288-1119. Ef greitt er í gegnum netbanka þarf að senda greiðslukvittun á netfangið bv@bondi.is. Nauðsynlegt er að fram komi nafn og númer hrossa sem greitt er fyrir. Ef ekki er greitt í gegnum netbanka, er mikilvægt að faxa greiðslukvittun á númerið 437-2015. Endurgreiðsla sýningargjalda kemur aðeins til greina að forföll séu tilkynnt áður en dómar hefjast.
Hafi greiðsla ekki borist fyrir hádegi 1. júní verður viðkomandi hross ekki skráð á sýninguna.
Við skráningu þurfa eftirfarandi atriði að vera í lagi:
Öll hross sem koma til kynbótadóms skulu vera grunnskráð í WorldFeng og einstaklingsmerkt.
Allir stóðhestar sem koma til dóms skulu vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra, s.s. þess er krafist að allir stóðhestar hafi sannað ætterni.
Úr stóðhestum 5 vetra og eldri þarf að hafa verið tekið blóðsýni.
Röntgenmyndir þurfa að hafa verið teknar af hæklum allra stóðhesta sem náð hafa fimm vetra aldri. Hestur hlýtur ekki dóm nema myndataka hafi farið fram og niðurstöður liggi fyrir í Worldfeng.
Búnaðarsamtök Vesturlands