Ómar Diðriksson, rakari á Hellu, var kosinn formaður hestamannafélagsins Geysis í Rangárvallasýslu í fyrra. Tvær reiðhallir eru í byggingu á félagssvæðinu og Landsmót 2008 verður haldið á Gaddstaðaflötum, félagssvæði Geysis. Ómar er hress og kraftmikill maður og miklar ekki fyrir sér þau stóru verkefni sem framundan eru.
Hann segir það alls ekki óraunhæft að byggja tværreiðhallir á félagssvæðinu þótt ekki séu nema tíu til fimmtán kílómetrar á milli þeirra. „Hella og Hvolsvöllur eru helstu byggðarkjarnarnir á félagssvæði Geysis. Á báðum stöðum er íþróttahús og sundlaug. Af hverju ekki reiðhöll? Það er einfaldlega liðin tíð að kennsla og þjálfun íþrótta fari fram utan dyra í vondum veðrum. Hestaíþróttin er ekkert öðruvísi. Þetta er bara eðlileg þróun.“ En hefði ekki verið rétt að staðsetja reiðhöllina á Hellu – við hesthúsahverfið? „Það er nú komið á hreint að núverandi hverfi fær að standa áfram, alla vega um sinn. Það er hins vegar á skipulagi að nýtt hverfi rísi á Gaddstaðaflötum, nærri reiðhöllinni. Reiðhöllin á Gaddstaðaflötum, Rangárhöllin, er mun stærri en sú á Hvolsvelli og er ekki síður hugsuð sem sýningarhöll og að hún muni nýtast við almennt sýningahald og stórmót á Gaddstaðaflötum.“
ENN ÞÁ FJÖLSKYLDUVÆNNA LANDSMÓT
Ómar sér mikil tækifæri fyrir byggðarlagið felast í landsmótshaldinu. Það sé þó spurning um að kunna að nýta sér það. „Það er alveg á hreinu að mót af þessari stærðargráðu skiptir máli fyrir sveitarfélagið, fyrir verslanir og þjónustufyrirtæki, gistiheimili og ferðaþjónustuna. Það er ekki verið að halda Landsmót í fyrsta sinn hér á Hellu, þannig að það eru margir þættir í föstum skorðum. Ég held þó að það mætti nýta þennan slagkraft enn þá betur með meiri undirbúningi og samstarfi við mótshaldara. Það er einmitt það sem við stefnum á núna; koma á sambandi milli mótshaldara og sveitarstjórnarmanna og íbúanna á svæðinu.“ Landsmótið 2008 hefur verið auglýst sem fjölskylduhátíð. Ætlið þið Geysismenn að gera eitthvað sérstakt til að skapa betri aðstöðu með tilliti til þess? „Já, við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að hjálpa til við að gera LM2008 eins fjölskylduvænt og unnt er. Hvað það verður nákvæmlega hefur ekki verið ákveðið, en við munum vinna að því í samstarfi við framkvæmdastjóra mótsins. Geysir er stærsti hluthafinn í Rangárbökkum ehf. og ber því eðlilega töluverða ábyrgð á því hvernig umgjörðin verður.“
ÖLL FJÖLSKYLDAN Í HESTAMENNSKU
Ómar er ekki einsamall í hestamennskunni. Eiginkona hans, Guðrún Elín Svansdóttir, og þrjú börn þeirra eru öll í sportinu. „Við byrjuðum á þessu fyrir tilviljun,“ segir Guðrún Elín. „Við vorum í sumarbústaðaferð í Borgarfirði 1997 og einhver fékk þá hugmynd að fara til Guðrúnar Fjeldsted og leigja hesta. Við fengum öll hestabakteríuna með það sama og höfum verið í þessu síðan. Dæturnar tvær, Kristbjörg Arna og Lilja Margrét, eru alveg forfallnar. Bróðir þeirra Svanur hefur líka gaman af hestum og kemur með í hestaferðir og annað slíkt. Hestamennska er hrein snilld, sérstaklega þegar öll fjölskyldan er í þessu saman, þá er enginn að stela tíma frá hinum. Það er líka alveg á hreinu að hestamennskan hefur forvarnargildi hvað snertirvímuefni og þess háttar. Það er mjög hollt fyrir börn og unglinga að umgangast dýr og mynda tilfinningabönd við þau. Svo eru vinir okkar á kafi í þessu líka, þannig að betra getur þetta eiginlega ekki verið,“ segir þessi hressa fjölskylda að lokum.














