Hestasölugrunnur Hestafrétta er miðlægur sölugrunnur fyrir þá aðila sem nota vefumsjónarkerfi og vefi frá Aicon og Hestafréttum. Vefirnir sem Hestafréttir bíður uppá eru sérhannaðir fyrir hestafólk, tamningamenn, ræktunarbú, stóðhesta, söluaðila á hrossum og fl. Hestasölugrunnurinn virkar þannig að þegar hestur er skráður til sölu á vef viðkomandi aðila þá birtist hann á tveimur stöðum á vef Hestafrétta, annarsvegar í flipaglugga undir fyrstu frétt á forsíðu og svo á vefnum Hestasölugrunnur en þar birtast allir hestar frá þeim aðilum sem eru með vefsíðu frá Aicon og Hestafréttum.
Með þessu þá birtist þín auglýsing á þremur stöðum, á eigin vefsíðu, í flipaglugga á forsíðu Hestafrétta og svo á miðlæga Hestasölugrunninum og fyrir þetta borgar notandi ekki neitt því þessi þjónusta er innifalin í verðinu þegar keypt er síða hjá Aicon og Hestafréttum.
Kaupendur hrossa þurfa nú aðeins að fara á einn stað til að leita og það er á miðlægan Hestasölugrunn þar sem ÞINN hestur er auglýstur til sölu.
Notendavefsíða hjá Aicon og Hestafréttum kostar aðeins 200.000 krónur plús VSK. Innifalið í því verði er standart uppsetning vefs með litum, grafík og (logoi) merki kaupanda, fullbúin síða með öllu sem þarf.
Á bláu valstikunni lengst til hægri er hægt að smella á Hestasölugrunn af Forsíðu. Einnig með því að smella á þessa slóð http://www.hestafrettir.is/forsida/hestasolugrunnur
Leitið nánari upplýsinga með því senda fyrirspurn á [email protected] eða að hringja í síma 6968880 eða 8960006.
Vertu sjáanleg(ur) á netinu og náðu árangri með Aicon og Hestafréttum.








