Sjötíu skráningar eru á opið félagsmót Snæfellings um helgina. Dagskráin hefst kl. 10 á laugardagsmorgun með forkeppni í barnaflokki. En síðan rekur dagskráin sig fram eftir degi og endað verður á úrslitum í Töltkeppninni, er þar eru peningaverðlaun í boði fyrir efstu þrjú sætin.
Það er Húsasmiðjan á Vesturlandi sem gefur töltverðlaunin og skiptast þau þannig að sigurvegarinn hlýtur 50.000 kr. sá sem verður í 2. sæti fær 30.000 kr og þriðja sætið gefur 20.000 kr. Yfirdómari á mótinu verður Sveinn Jónsson og mótsþulur Eysteinn Leifsson.
Mótanefnd.
Laugardagur 21. júlí.
Kl. 10.00 Barnaflokkur Forkeppni
- 11.00 Unglingaflokkur Forkeppni
- 11.30 Ungmennaflokkur Forkeppni
- 12 – 12.30 Hádegishlé
Kl. 12.30 B- flokkur gæðinga Forkeppni
- 13.30 A- flokkur gæðinga Forkeppni
- 15.00 Töltkeppni Forkeppni
- 17.30 100 m skeið (fljúgandi skeið) Verlaunaafhending að lokinni keppni.
- 18.30 Töltkeppni Úrslit Verðlaunaafhending.
Sunnudagur 22. júlí.
Kl. 13.00 B- flokkur gæðinga Úrslit
- 13.40 Barnaflokkur Úrslit
- 14.20 Unglingaflokkur Úrslit
- 15.10 Ungmennaflokkur Úrslit
- 15.30 A- flokkur gæðinga Úrslit




















