Hestamannafélagið Snæfellingur heldur félagsmót sitt að Kaldármelum dagana 21. – 22. júlí nk. Um er að ræða opna keppni í A og B flokki gæðinga sem og Tölti ennfremur verður keppt í 100 m. skeiði. Forkeppni fer fram á laugardegi en úrslit á sunnudegi.
Skráningar berist Gunnari Kristjánssyni á netfangið hrannarb@simnet.is í síðasta lagi miðvikudaginn 18. júlí. Skráningargjald er kr. 1000 fyrir hverja skráningu en í 500 kr í barnaflokki. Gefa þarf upp kt. knapa og IS númer hests sem og GSM síma þess sem skráir. Skráningargjald leggist inn á reikning Snæfellings 0191-26- 876 kt. 440992-2189.
Mótanefnd Snæfellings.




















