Hörð keppni í tölti atvinnumanna á FM 07

Óhætt er að segja að mjög sterkir keppendur hafi tekist á í forkeppni í tölti atvinnumanna á FM07. Viðar Ingólfsson á Tuma frá Stóra-Hofi átti góða sýningu á Tuma frá Stóra-Hofi. Hann er efstur með 7,73 í einkunn. Hann er...

Óhætt er að segja að mjög sterkir keppendur hafi tekist á í forkeppni í tölti atvinnumanna á FM07. Viðar Ingólfsson á Tuma frá Stóra-Hofi átti góða sýningu á Tuma frá Stóra-Hofi. Hann er efstur með 7,73 í einkunn. Hann er þó langt í frá búinn að tryggja sér 100 þúsund kallinn því á hæla honum koma nokkrir stórlaxar sem mun sækja hart á toppinn í millirðli og úrslitum.

Sigurður Óli Kristinsson er með tvo hesta í milliriðli, þau Blæju frá Háholti 7,50, og hinn fagra Sleipni frá Gunnarsholti, 7,47. Hans Kjerúlf á hinum 17 vetra Laufa frá Kollaleiru er þriðji með 7,50 og Baldvin Ari Guðlaugsson á Erni frá Grímshúsum fimmti með 7,16. Tryggvi Björnsson er einni með tvo hross í milli riðli, Óratóría frá Syðri-Sandhólum 6,9 og Erlu frá Gauksmýri, 6,7.

Þar sem tíundi og ellefti hestur eru hnífjafnir að stigum fara ellefu keppendur í milliriðilinn. Siggi Sig kemur því inn með Æsu frá Flekkudal.

1 Viðar Ingólfsson / Tumi frá Stóra-Hofi 7733
2 Sigurður Óli Kristinsson / Blæja frá Háholti 7500
3 Hans Kjerúlf / Laufi frá Kollaleiru 7500
4 Sigurður Óli Kristinsson / Sleipnir frá Gunnarsholti 7467
5 Baldvin Ari Guðlaugsson / Örn frá Grímshúsum 7167
6 Mette Mannseth / Bragi frá Hólum 7100
7 Tryggvi Björnsson / Óratóría frá Syðri-Sandhólum 6933
8 Katla Gísladóttir / Hárekur frá Vindási 6933
9 Birgir Árnason / Týr frá Yzta-Gerði 6800
10 Tryggvi Björnsson / Erla frá Gauksmýri 6767
11 Sigurður Sigurðarson / Æsa frá Flekkudal 6767

12 Jakob Svavar Sigurðsson / Hálfmáni frá Skrúð 6733
13 Sigurður Sigurðarson / Spyrnir frá Hemlu 6733
14 Leó Geir Arnarson / Þula frá Litlu-Reykjum 6733
15 Lúther Guðmundsson / Frami frá Víðidalstungu II 6667
16 Súsanna Ólafsdóttir / Garpur frá Torfastöðum II 6567
17 Þorbjörn Hreinn Matthíasson / Nanna frá Halldórsstöðum 6567
18 Magnús Bragi Magnússon / Punktur frá Varmalæk 6500
19 Viðar Bragason / Lilja frá Möðruvöllum 6433
20 Hans Kjerúlf / Glymur frá Stóra-Sandfelli 2 6400
21 Elsa Albertsdóttir / Gustur frá Syðra-Vallholti 6333
22 Lúther Guðmundsson / Þumall frá Stóra-Hofi 6133
23 Jón Herkovic / Gestur frá Vatnsleysu 6067
24 Ómar Ingi Ómarsson / Von frá Horni I 6067
25 Ásdís Helga Sigursteinsdóttir / Hlynur frá Hofi 6033
26 Sæmundur Sæmundsson / Dropi frá Bjarnanesi 1 5933
27 Vignir Sigurðsson / Þráinn frá Þinghóli 5933
28 Þór Jónsteinsson / Skelfir frá Skriðu 5700
29 Einar Víðir Einarsson / Össur frá Heiðarbót 5500
30 Ríkarður G. Hafdal / Kyndill frá Glæsibæ II 5467
31 Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir / Afródíta frá Akureyri 3000
32 Olil Amble / Svaki frá Holtsmúla 1 0,000