Athugasemdir hafa borist frá eftirlitsdýralæknum sem taka á móti íslenskum hestum á flugvellinum í Billund í Danmörku um aðstöðu og ástand hrossanna og hafa íslenskir dýralæknar óskað eftir breytingu á reglugerð um útflutning á hrossum. Vilja þeir að hross yngri en tveggja vetra séu bandvön áður en þau eru flutt úr landi.
Er reglugerðin nú til endurskoðunar hjá landbúnaðarráðuneytinu.
Dönsku dýralæknarnir hafa greint frá því að oft sé mjög erfitt að skoða hross við komuna til landsins og engar aðstæður séu til þess á flugvellinum. Um 1.300-1.500 hross voru flutt út í fyrra.
Starfsmaður flugvallarins í Billund, Carsten Lissau, gerir í bréfi sem birt er á vefsíðunni urvalshestar.is, athugasemdir við ástand íslenskra hesta sem fluttir eru í gegnum flugvöllinn. Í bréfinu, segir Carsten unga hesta illa undir ferðalagið búna og starfsmenn flugvallarins eiga í erfiðleikum með að ráða við þá. Hann segir hestana oft ferðast dögum saman til nýrra heimkynna í Evrópu og þola það misvel, sumir séu í slæmu ástandi, styggir, þreyttir og uppþornaðir. Ráðleggur hann útflutningsaðilum hér á landi að undirbúa hrossin betur.
Í athugasemd við bréf Carstens á heimasíðu Úrvalshesta bendir Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma, á að breytingar á reglugerð um útflutning hrossa sem hvatt hefur verið til, eigi m.a. að draga úr hræðslu og stressi hjá hestunum.
Betri aðstaða í Svíþjóð
Gunnar Örn Guðmundsson, héraðsdýralæknir í Reykjavík, segir rétt sem komið hafi fram í gagnrýni dýralækna ytra að aðstaðan í Billund sé ekki góð. Hins vegar séu nú flestir hestar fluttir í gegnum flugvöllinn í Norköping í Svíþjóð. Þar sé aðstaðan mun betri. Almennt sé aðbúnaður hesta sem fluttir eru út í góðu lagi.
Áður en lagt sé af stað með dýrin skoði dýralæknir þau og segir Gunnar Örn að fyrir komi að hætt sé við útflutning sé heilsufari þeirra ábótavant.
Með því að bandvenja hest er átt við að hægt sé að teyma hann og hann sé nokkuð vanur umgengni við fólk. Í núgildandi reglugerð um útflutning eru engin ákvæði um tamningu hrossa, en flest þeirra fara tamin úr landi. Gunnar Örn segir sérstöðu íslenskra hesta m.a. felast í því að þeir alast upp frjálsir úti í haga fyrstu misserin og eru því oft óvanir umgengni við menn. Hann segir útflytjendur hvatta til að bandvenja hross fyrir útflutning en að dýralæknar vilji ganga lengra og að slík ákvæði séu sett inn í reglugerð. „Þá höfum við möguleika á að hafna útflutningi séu dýrin ekki bandvön,“ segir Gunnar Örn.
Hrossin eru flutt út fimm saman í gámi. Þau eru ekki bundin og fyrir kemur að þau slasi hvert annað og sjálf sig á ferðalaginu. „Við höfum orðið varir við að þeir fái sár á fætur og höfum tekið á því með því að gera ráðstafanir til að snyrta hófa þeirra sem geta verið beittir.“
Gunnar Örn segir ferðalag milli landa álag fyrir hesta en „það er alveg ótrúlegt hvað þeir eru rólegir. Ég held að það skýrist af því að íslenski hesturinn er sterkur andlega“.














