Hrossakjöt á diskinn þinn/minn?

Hesturinn okkar flokkast undir matvæli ! Vissir þú það ? Þess vegna er málið snúið í höndum heilbrigðisyfirvalda sem fara um málið eins og köttur í kringum heitan graut. Það má helst ekki notast við fúkkalyf við lækningu hóstapestarinnar. Vegna...

Hesturinn okkar flokkast undir matvæli ! Vissir þú það ? Þess vegna er málið snúið í höndum heilbrigðisyfirvalda sem fara um málið eins og köttur í kringum heitan graut. Það má helst ekki notast við fúkkalyf við lækningu hóstapestarinnar. Vegna þess að það spillir matvælunum sem hesturinn er! Hvað færð þú fyrir kílóið af hrossakjötinu sem sláturhúsið greiðir þér? Veist þú það? það er svo lág upphæð að hún sést ekki á reikningnum nema að vel sé skoðað!! Það er að mínu mati ekki rétt að flokka hestinn undir matvæli! Í flestum löndum tíðkast ekki að leggja hrossakjöt sér til munns! Virðingin fyrir hestinum er með allt öðrum hætti t.d. í Bandaríkjunum hvað þetta varðar. Menn borða ekki hestinn sinn í USA.

Ég hlustaði á viðtal við Sigríði Björnsdóttur, dýralækni hjá Matvælastofnun hér á Hestafréttum! Ekki fannst mér blessuð konan vera fagmannleg í svörum í upphafi viðtalsins en óx ásmegin er á leið. Þrátt fyrir hennar skíringar þá eru menn henni ekki sammála varðandi umfang þessarar hóstaveiki í hrossunum. Nú má ekki kalla þetta „pest“ því að það er víst þannig að ef orðið „pest“ er þítt yfir á önnur tungumál þá er málið mun alvarlegra í meðförum ! Og alvarleikinn meiri og stærri en ef talað er um „veiki“ . Ja nú tala ég við Jóhann sagði mamma stundum þegar henni blöskraði eitthvað, en það vissi enginn hver þessi Jóhann var. Þess þá heldur, hvað vissu menn um alvarleika málsins þegar hæst stóð og öll hross nánast orðin fárveik á liðnum vordögum og allt starf og undirbúningur fyrir Landsmót í uppnámi ! Málið var verulega uggvænlegt á að líta. Ég les það á hestavefnum hestar 847 að penninn „Datt það í hug“ átelur stjórn Landssambandsins fyrir það að fresta Landsmóti 2010. Og að þau mót sem haldin voru í sumar hafi nánast farið hnökralaust fram. Öll hross hafi verið heilbrigð og ekki sést hor í nös!

Ef svo er þá er það vel. En eins og ástandið var á vordögum og fram eftir sumrinu þá var ekki stætt fyrir Landssambandið annað en að fresta mótinu. Þar liggja margar ástæður að baki. Þar má nefna alla þá umfjöllun sem komin var á stað bæði innanlands sem og erlendis. Heilbrigðisyfirvöld hjálpuðu nú ekki mikið til í þessu máli heldur þögðu þunnu hljóði sem var afar slæmt. Þau vissu nákvæmlega ekki hvað þarna var á ferðinni. Það voru allir í sjálfheldu varðandi ástandið. En aðal atriðið er þetta að hrossastofninn var meira og minna allur sýktur ! Hestamenn hafa sagt mér að folaldadauði sé mun meiri en dýralæknirinn hjá matvælastofnum segir. Menn hafa talað um að veikin sé komin í kindur og lömb hafi drepist í stórum stíl. Sögur fara af því að hrossin hafi komið talsvert veik af fjalli í stóðréttir ! Svona sögur fara um eins og eldur um sinu. Ég hef ekki neinar sannanir fyrir þessum sögum en „sjaldan lýgur almannarómur“ ef við vitnum í málsháttinn!!

Að fólk sé smitað af þessari veiki í meira mæli en getið sé um í fréttum! Að hundar og kettir séu einnig smitaðir í meira mæli en talað sé um í fréttum!! Hverju eigum við að trúa í þessu máli? Er ekki nokkur leið fyrir okkur íslendinga að koma hreint fram við hvort annað og segja sannleikann! Sannleikurinn sigrar alltaf að lokum hvort sem er!! Ég get alla veganna ekki samþykkt það að rétt hafi verið af aðildarfélögum Landssambandsins að halda mót í ljósi þess hversu hrossastofninn var illa á sig kominn. Ég get að lokum upplýst það að ég sá grænt í nös í hesti sem var í keppni á Reykjavíkurmótinu síðla sumars svo að það er ekki algilt að öll hross á velli hafi verið heilbrigð ! Við eru bara þannig þjóð að við viljum ekki láta segja okkur „fyrir verkum“ heldur höldum áfram eins og lamin í hausinn !!
Mér dettur líka ýmislegt í hug !!

Kveðja frá USA
Gunnar Andri