Hrossarækt 2006

Ráðstefnan Hrossarækt 2006 verður haldin í Sunnusal, Hótel Sögu laugardaginn 11. nóvember næstkomandi og hefst hún klukkan 12:30. Ráðstefnan sem haldin er af Fagráði í hrossarækt er öllum opin þeim sem láta sig íslenska hrossarækt varða jafnt fagfólki sem áhugamönnum....

Ráðstefnan Hrossarækt 2006 verður haldin í Sunnusal, Hótel Sögu laugardaginn 11. nóvember næstkomandi og hefst hún klukkan 12:30. Ráðstefnan sem haldin er af Fagráði í hrossarækt er öllum opin þeim sem láta sig íslenska hrossarækt varða jafnt fagfólki sem áhugamönnum. Víkingur Gunnarsson er ráðstefnustjóri.

Dagskrá:
12:30 Setning – Kristinn Guðnason formaður Fagráðs í hrossarækt

12:35 Hrossaræktarárið 2006 – Nýtt kynbótamat – Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur

13:00 Tilnefningar til ræktunarverðlauna 2006

13:30 Erindi:
- Ágrip hjá íslenskum kynbótahrossum, Friðrik Már Sigurðsson, LBHÍ
- Hönnun hesthúsa og aðbúnaður hrossa á húsi, Sigtryggur Veigar Herbertsson og
Snorri Sigurðsson, LBHÍ
- Atvinnusköpun í hestamennsku, Sigurlaugur Gíslason, Bifröst
- DNA-greining íslenska hrossastofnsins, Sigríður Hjörleifsdóttir, Prokaria

15:30 Kaffihlé

16:00 Umræður – orðið laust um erindin og ræktunarmál almennt

Ráðstefnunni lýkur kl. 17:00

Fagráð í hrossarækt