Nú líður senn að aðalfundi Sörla en 63. starfsári félagsins er að ljúka. Árið hefur verið gott og viðburðaríkt á flestum sviðum hestamennskunnar enda landsmótsár. Þetta eru tímamót svipuð og áramót eru í lífi fólks og þá er gott að staldra við, fara yfir það sem liðið er, meta árangur og íhuga svo næstu skref. Félagið er stórt, það er orðið næststærsta hestamannafélag landsins, hefur vaxið og þanist út að öllu leyti – eða er það ekki?
Ég veit það ekki alveg sjálfur, sumt finnst mér ekki hafa þróast sem skyldi. Það gætu reyndar verið vaxtaverkir, en mér finnst samheldnin og þátttaka í félagstörfum ekki hafa aukist í réttu hlutfalli við félagatalið. Maður spyr sig, hvort félagið hleypi ekki nýju fólki svo auðveldlega að störfum, eða hvort fólk hafi bara ekki áhuga á að vinna að félagsmálum lengur. Að halda úti félagsstarfi gerist ekki af sjálfu sér, frekar en annað.
Það er fullt af fólki sem leggur mikið – já, mjög mikið á sig – til að við getum öll fundið okkur eitthvað við hæfi á vettvangi félagsins. Það er rekið öflugt æskulýðsstarf, fjölbreytt mótahald er starfrækt og unnið er að reiðvegamálum, ferðamálum, skemmtanahaldi, fræðslumálum og mörgu fleiru.
Stjórnunar- og nefndastörf í félagi eins og okkar er allt unnið í sjálfboðavinnu og leiðir þetta starfsframlag fólks til betra lífs, bæði í tómstundum og starfi. Ég sat um daginn fund í stjórn ÍBH, þar sem Þórdís Gísladóttir flutti magnað erindi um verðmæti sjálboðaliðastarfs innan íþróttahreyfingarinnar, fyrir bæjarfélög sem og þjóðfélagið allt. Erindið var unnið úr lokaritgerð hennar í háskólanámi. Hún lagði fram ótrúlegar tölur varðandi verðmæti vinnuframlags innan íþróttahreyfingarinnar og er þá ekki annað talið en krónur og aurar.
Enn verðmætara er framlag sjálfboðaliðanna sem forvarnargildi í íþrótta- og félagsstarfi. Í Sörla starfa, fyrir utan stjórn félagsins, 9–10 fastanefndir og ráð, síðan bætast við fullt af sjálfboðaliðum í tiltekin verkefni. Trúlega eru það u.þ.b. 120 manns sem að meðaltali funda og starfa við tiltekin verkefni félagsins, 10–12 sinnum á ári. Ef við gerum ráð fyrir að fundir taki að meðaltali 3 klst. með undirbúningi, þá eru þetta u.þ.b. 5000 vinnustundir að lágmarki. Það er talsvert framlag til okkar allra sem stundum hestamennsku í Sörla.
Ég vil hvetja menn að spyrja sig, hvort ekki sé rétt að leggja á sig smá aukavinnu og taka þátt í félagsstarfinu. Fleira fólk fær meiru áorkað, hugmyndaauðgi eykst, meira fjör verður í starfinu sem skilar svo örugglega betri árangri og öflugra félagi.
Við gerum miklar kröfur um að allt sé á besta veg, ef við ætlum að keppa, fara á námskeið, taka þátt í hestaferð, fara á fræðslufund eða þorrablót. Við ætlumst til að þeir sem standa fyrir atburðinum séu búnir að undirbúa hann af kostgæfni, allt sé klárt þegar við mætum. En erum við alltaf sanngjörn við það fólk sem er að störfum og kunnum við að þakka það sem vel er gert? Hver félagi þarf að spyrja sig þessara spurninga. Ef fólk gerir eins og það getur best er erfitt að fara fram á meira, við verðum að vera sanngjörn í kröfum okkar til annarra. Ég held að hollt sé að hugsa: „Hvað get ég gert fyrir félagið?“, en ekki „Hvað getur félagið gert fyrir mig?“
Nú er verið að auglýsa eftir fólki til starfa í nefndum á vef félagsins. Ég hvet alla sem áhuga hafa á framgangi félagsins að gefa sig fram. Það er margt í farvatninu hjá Sörla eins og alltaf. Við sækjum um að halda Íslandsmót á næstu árum, bæði fullorðins- og unglingamót, sitt hvort árið. Við ætlum okkur að gera það þannig að sómi verði af bæði fyrir okkur sjálf og bæjarfélagið.
Stækkun á félagsaðstöðu okkar til íþróttaiðkunar er fyrirhuguð. Fyrir dyrum stendur mikil hugmyndavinna varðandi skipulagsmál á svæðinu, við þurfum að hugsa til framtíðar – hugsa stórt. Nýverið auglýsti Sörli starf yfirþjálfara til umsóknar. Yfirþjálfara er ætlað að vinna við og stýra uppbyggingu fræðslumála innan félagsins. Þetta mun styrkja tengingu félagsins við IBH, ÍSÍ, Hfb. og ekki síst við menntakerfi þjóðarinnar. Það verður gífurlega spennandi að fylgjast með þessu nýja starfi í mótun og sjá hvert það leiðir okkur.
Sameinumst um að gera gott félag betra, komum með hugmyndir um hvað eina sem gæti fleytt okkur fram veginn. Við verðum að sýna í verki samstöðu og framsýni og styrkja stöðu okkar í öllu sem félaginu viðkemur, hvort sem um er að ræða íþróttaiðkun, útreiðar, fræðsluuppbyggingu eða skipulagið s.s. reiðvegi, hesthús og aðstöðu alla á okkar frábæra svæði – svæði Hestamannafélagsins Sörla í Hafnarfirði.
Siggi Ævarss
Greinin var birt í nýjasta fréttabréfi Hestamannafélagsins Sörla
Heimild www.sorli.is














