Hugleiðingar um Íslandsmót

Ég kíkti á Íslandsmótið í Reykjavík í síðustu viku. Ljómandi gott mót, mikið um nýjan spennandi hestakost í bland við gamlan. Það var gaman að sjá kynbótahross frá Landsmóti koma fram á þessu móti og standa sig vel. Það er...

Ég kíkti á Íslandsmótið í Reykjavík í síðustu viku. Ljómandi gott mót, mikið um nýjan spennandi hestakost í bland við gamlan. Það var gaman að sjá kynbótahross frá Landsmóti koma fram á þessu móti og standa sig vel. Það er mjög mikilvægt að þessir heimar passi saman, við verðum að geta ræktað hross í keppni, markaðurinn vill þannig hross. En ég ætla að velta upp umræðu sem ég heyrðu útundan mér á mótinu og er fyllilega sammála. Þarf ekki að fara að breyta fyrirkomulaginu á Íslandsmóti?

Á Íslandsmótið ekki að vera uppgjör þeirra bestu? Hver er tilgangurinn með að flokkaskipta þessu stærsta og merkilegasta íþróttamóti ársins? Meistaraflokkur og 1. Flokkur. Þetta er gott og gilt á öllum öðrum mótum sem haldin eru víðsvegar um landið, en með þessu er verið að gengisfella Íslandsmeistaratitil, það á að vera mesti heiðurinn að verða Íslandsmeistari í hestíþróttum eins og öðrum íþróttum.

Sjáið þið fyrir ykkur að hljóta Íslandsmeistaratitil í 2. deild karla í knattspyrnu? það á bara að vera einn íslandsmeistari í hverri íþróttagrein, þú átt ekki að vera íslandsmeistari þeirra „sem eru ekki alveg jafn góðir og þeir bestu…“ Burt með flokkaskiptingu á Íslandsmóti, það eiga allir að vera að keppa um sama titilinn.

Það er gríðarlegur fjöldi af íþróttamótum um landið á ári hverju, nú velti ég upp þeirri spurningu hvort það eigi ekki frekar að vera lágmörk inná mótið, þú þyrftir að hafa náð ákveðinni einkunn á árinu til að fá þátttökurétt á Íslandsmóti. Þannig yrði mótið mun áhugaverðara fyrir áhorfendur og fjölmiðla. Það yrði líka áhugaverðara fyrir margan keppandann sem sæi frekar tilgang sinn í að kynna sig og hestinn sinn á móti sem er ekki aðgengilegt nema þeim bestu. Hliðstætt dæmi er Landsmótið, þegar lágmörkum er náð er nánast formsatriði að mæta.

Maður getur spurt sig hvort þetta sé spurning um peninga… þörfin til að ná inn skráningargjöldum til að tryggja rekstur mótsins. Ef svo er þá þykir mér það ekki gild ástæða, Meistaradeild í Hestaíþróttum hefur sýnt að hægt er að reka mót þeirra bestu án þess að treysta á skráningargjöld. Ef mótin eru gerð áhugaverð fyrir almenning og fjölmiðla þá selja þau sig sjálf, slíkt mót á að vera kjörinn vettvangur fyrir þá fjölmörgu auglýsendur sem vilja ná til okkar hestamanna.

Ég vil þó alls ekki gera lítið úr þætti Fáks í að halda þetta mót, þar var vel að verki staðið og frábært að tryggja úrslitin í sjónvarpi, við fjölskyldan lágum spennt yfir sjónvarpinu á sunnudeginum með popp og kók, enda löng keyrsla í Kaupstaðinn og eflaust enn lengra fyrir marga aðra.

En þessar vangaveltur eru sprottnar af umræðum keppenda mótsins…. Er ekki kominn tími til að hefja Íslandsmót uppá hærri stall???