Gefinn hefur verið út DVD myndbandsdiskur á stafrænu formi þar sem gefin er greinargóð lýsing á yfir hundrað stöðum víðsvegar á Íslandi. Myndbandsdiskurinn ber heitið Íslenskir eftirlætisstaðir eða Iceland‘s Favourite Places.
Markmiðið með útgáfu DVD disksins er að bjóða upp á notendavænt og vandað efni á aðgengilegu formi sem gefur greinargóða og fróðlega lýsingu á mörgum af áhugaverðustu stöðum á Íslandi sem fólk getur notið á þægilegan og auðveldan hátt.
Svæðin sem gerð er grein fyrir á diskinum voru kvikmynduð á síðustu þremur árum og eru víðsvegar á landinu. Á myndskeiðunum er lýst náttúrufari, menningu og sögu hvers staðar eftir því sem við á hverju sinni. Myndefnið er tekið upp í mestu mögulegu myndgæðum, svokallaðri háskerputækni (HDV – high defination).
Á disknum er landinu skipt upp í sex hluta og er fjöldi staða í hverjum hluta. Hægt er að velja landsvæði af yfirlitskorti. Svæðin eru suðurland, austurland, norðurland, vesturland, vestfirðir og hálendi Íslands. Diskurinn er talsettur á 7 tungumálum sem notandinn getur valið um, en tungumálin eru auk íslensku; enska, franska, þýska, danska, japanska og kínverska.
Tónlistin á diskinum er sérstaklega samin af Sigtryggi Baldurssyni og Ben Frost.
Það er Profilm sem framleiðir diskinn en fyrirtækið sérhæfir sig gerð heimildamynda og videovefsíða ásamt því að sinna ýmsum öðrum kvikmyndaverkefnum hér á landi og erlendis.
http://igm.is/PRofilm/hestafrettir/video_1.flv
http://igm.is/PRofilm/hestafrettir/video_2.flv
Iceland‘s Favourite Places
Leikstjórn: Jóhann Sigfússon
Kvikmyndatökur: Jóhann Sigfússon, Kristinn H. Þorsteinsson
Klipping: Hilmar Darri Flygenring, Jóhann Sigfússon.
Útlit og hönnun: Hermann Karlsson
Handrit: Kristinn H. Þorsteinsson
Tónlist: Sigtryggur Baldursson, Ben Frost
Umsjón innlestrar: Hinrik Ólafsson
Framleiðandi : Anna Dís Ólafsdóttir














