Búið er að ryðja braut fyrir okkur okkur hestamenn á Rauðavatninu. Góður ís er á vatninu og ekkert er skemmtilegra en að láta kasta toppi á góðum reiðhesti á ís. Hestarnir eru aldrei skemmtilegri, hágengir, fasmiklir og kátir.
Þó það sé líka gaman að láta gamminn geysa þá verður að fara varlega því ísreið er erfið fyrir hestana og meiri líkur á að þeir fái harðsperrur eftir svoleiðis útreiðartúr en ella.
Hestamenn notum þetta skemmtilega tækifæri, ekki er víst að það vari lengi því það er spáð rigningu seinnipartinn á föstudaginn.
Fákur www.fakur.is














