Íslandsmót 2007

Framkvæmdanefnd Íslandsmóts 2007 í hestaíþróttum hafa borist ábendingar um að of ungir knapar séu skráðir til leiks á Íslandsmóti 2007. Samkvæmt reglum þurfa knapar að vera orðnir 22 ára til að geta keppt á Íslandsmóti fullorðinna, nema í 150 m...

Framkvæmdanefnd Íslandsmóts 2007 í hestaíþróttum hafa borist ábendingar um að of ungir knapar séu skráðir til leiks á Íslandsmóti 2007. Samkvæmt reglum þurfa knapar að vera orðnir 22 ára til að geta keppt á Íslandsmóti fullorðinna, nema í 150 m skeiði og 250 m skeiði, þar sem ekki var boðið upp á þær greinar á Íslandsmótinu í yngri flokkum.

Því verða þeir knapar sem fæddir eru 1986 og síðar afskráðir úr mótinu. Í reglugerð LH fyrir Íslandsmót (8.3.10) segir að Þátttaka í öllum greinum er á ábyrgð keppanda. Hvorki FEIF, LH né mótshaldari taka ábyrgð á nokkurn hátt.

Þá segir um aldursflokkaskiptingu (4.1) keppandi þarf þá að vera fæddur
’1985 eða fyrr (22 ára hið minnsta) til að keppa í fullorðinsflokki!

Í grein 5.2 segir: Á Íslandsmóti fullorðinna skal keppt í meistarflokki og 1. flokki. Knapa á Íslandsmóti fullorðinna er einungis heimilt að keppa í einum styrkleikaflokki í hverri grein.

Á Íslandsmóti skal keppt í þeim greinum hestaíþrótta sem skilgreindar eru í kafla 8 til 8.8 í alþjóðlegum keppnisreglum LH. Íslandsmóti skal skipta upp í mót fullorðinna annars vegar og barna, unglinga og ungmenna hins vegar.

Keppendum í yngri flokkum er heimilt að keppa í næsta aldursflokki fyrir ofan sinn flokk, sé ekki boðið upp á viðkomandi keppnisgrein í þeirra flokki. Íslandsmót fullorðina og barna,unglinga og ungmenna er í raun eitt mót og því búið að bjóða upp á viðkomandi greinar í yngri flokkunum.