Íslandsmótið í hestaíþróttum 2007 verður haldið við Hringsholt í Svarfaðardal 12.-14. júlí nk. Minnt er á að síðasti skráningardagur á mótið er á morgun, mánudaginn 2. júlí og sjá hestamannafélögin um skráningu sinna félagsmanna og greiðslur skráningargjalda.
Þegar er búið að skrá til leiks marga snillinga, bæði hesta og knapa en það er alltaf pláss fyrir fleiri, og mörg félög eiga enn eftir að skrá sína félaga til leiks.
Skráningin fer þannig fram að farið er inn í Mótafeng, mótið heitir Íslandsmót 2007 og númer mótsins er IS2007LM0029. Nota skal sama notendanafn/lykilorð og á Landsmóti 2006. Hafi menn glatað lykilorði eða þurfa að stofna nýtt skal hafa samband við skrifstofu LH.
Skráningsgjald er kr. 4.500.- á grein og greiðist inn á reikning 1177-26-175, kennitala 540890-1029.














