Nú styttist óðum í Ístölt Austurland sem hestamannafélagið Freyfaxi stendur fyrir árlega. Þ.e. laugardaginn 25. febrúar n.k. Mótið er opið og því er félögum úr öllum hestamannafélögum heimil þáttaka. Eins og áður er keppt um hinn eftirsótta Ormsbikar í Opnum flokki. Í ár hafa margir af nafntoguðustu knöpum landsins boðað þáttöku sína og þess vegna má búast við að Ístölt Austurland treysti sig í sessi sem stærsta útimót vetrarins í hestaheiminum. Síðasta ár var það stærsta í sögu mótsins og voru knapar og aðrir gestir skýjum ofar með vel heppnað mót og glæsilegt umhverfi sem og náttúrufegurð við Lagarfljótið.
Hörð barátta.
Í Opnum flokki má búast við harðri baráttu um Ormbikarinn eftirstótta sem Leó Geir Arnarson hreppti á eftirminnilegan hátt á síðasta ári. Búast má við að ókrýndur meistari ístöltsins Hans Kjerúlf muni gera harða atlögu að bikarnum ásamt öðrum sterkum keppendum. Eins má búast við að Hinrik Bragason, Guðmundur Björgvinsson, Hulda Gústafsdóttir og Bergur Jónsson mæti sterk til leiks. Leó Geir vill hins vegar meina að hann muni halda á Ormsbikarnum í lok keppni.
Skeiðdrekinn.
Í ár hafa Freyfaxamenn ákveðið að keppni í skeiði verði meðal hápunkta mótsins, og er nú í smíðum nýr farandbikar, Skeiðdrekinn, sem afhentur verður um ókomin ár til sigurvegara í skeiði. Þegar hafa magnaðir skeiðknapar skráð sig til keppni og má þar t.d. nefna þá feðga Valdimar og Hjört Bergstað. Fjölnir Þorgeirsson hefur jafnframt lýst því yfir að muni keyra með Skeiðdrekann sér við hlið til Hveragerðis eftir mótið
Uppskeruhátíð.
Um kvöldið verður svo haldin vegleg uppskeruhátíð hestamanna á Austurlandi. Veittar verða viðurkenningar fyrir góðan árangur ásamt skemmtiatriðum, góðum og öðru tilheyrandi. Hestamannahljómsveit Íslands PAPAR mun svo leika fyrir dansi langt fram eftir nóttu.
Sérstaklega vilja Freyfaxamenn bjóða knapa frá öðrum landshornum velkomna og munu götur þeirra verða greiddar.
Allar nánari upplýsingar varðandi viðburðinn veitir Bergur Hallgrímsson formaður Freyfaxa í síma 8646420.
Skráning fer fram hjá Guðrúnu Ásdísi í síma 8612171 og Björgvini í síma 8467946. Það er líka hægt skrá sig á freyfaxi@freyfaxi.net og almennar upplýsingar er að finna á heimasíðu félagsins, www.freyfaxi.net Skráning á uppskeruhátíð er hjá Gunhildi í síma 8642413.
Kær kveðja
Mótanefnd Freyfaxa.














