Nú er komið að því að sjónvarpið sýni upptöku frá Ístölti þeirra allra sterkustu sem var haldið í Skautahöllinni 14. apríl s.l. Keppni þessi er haldin á vegum Landssambans hestamannafélaga til styrktar landsliði íslenska hestsins.
Á ísinn mættu margir bestu gæðingar landsins og var keppnin hörð og jöfn. Þar mátti sjá hesta eins og Takt frá Tjarnarlandi, Rökkva frá Hárlaugsstöðum, Leikni frá Vakursstöðum, Freyði frá Hafsteinsstöðum, Hruna frá Breiðumörk og Mola frá Skriðu.
Við minnum á að úrtakan fyrir heimsmeistaramótið verður í Víðidal dagana 13.-14. júní og 16.-17. júní. Skráning stendur yfir á skrifstofu LH. Sjá nánar á heimasíðu LH (www.lhhestar.is)
Landsliðsnefnd
Einnig er hægt að skoða keppnina í heild á Vef Tv Hestafrétta.




















