Íþróttamaður Hrings 2008 og Hvatningarverðlaun Æskulýðsnefndar

Á Folaldasýningu sem haldin var í Hringsholti sunnudaginn 28.desember sl. voru veittar viðurkenningar af Hestamannafélaginu Hring. Annars vegar var Íþróttamaður Hrings tilnefndur og í ár var það Agnar Snorri Stefánsson sem hlaut þann heiður. Agnar hefur tekið þátt í fjölda...

Á Folaldasýningu sem haldin var í Hringsholti sunnudaginn 28.desember sl. voru veittar viðurkenningar af Hestamannafélaginu Hring. Annars vegar var Íþróttamaður Hrings tilnefndur og í ár var það Agnar Snorri Stefánsson sem hlaut þann heiður.

Agnar hefur tekið þátt í fjölda mörgum mótum þó flestum á erlendri grundu á síðasta ári, en árangur hefur ekki látið á sér standa. Hann tók m.a. þátt í Norðurlandamóti og hafnaði í 6.sæti í slaktaumatölti, einnig var hann í eldlínunni í dönsku meistaradeildinni sl.vetur. Á Danska meistaramótinu sigraði Agnar A-flokk gæðinga. Auk þessara móta tók Agnar þátt í mótum víðsvegar um skandinavíu með góðum árangri.
Til hamingju með frábæran árangur á árinu.

Hvatningarverðlaun æskulýðsnefndar voru einnig veitt á sunnudaginn. Þau verðlaun hlaut Anna Kristín Friðriksdóttir fyrir dugnað og metnaðarmikið starf bæði með, og fyrir utan skipulagða dagskrá æskulýðsnefndar.

Það má taka það fram að mikil gróska hefur verið í barna og unglingastarfi Hrings og mörg börn að bætast í hópinn sem er frábært.