Íþróttamaður Mána 2011

Á aðalfundi Mána sem haldinn var á 22 nóvember síðastliðinn var tilkynnt um val á íþróttamanni Mána sem er í ár Jóhanna Margrét Snorradóttir .Jóhanna Margrét Snorradóttir náði mjög góðum árangri á árinu 2011. Hún hefur verið að standa sig...

Á aðalfundi Mána sem haldinn var á 22 nóvember síðastliðinn var tilkynnt um val á íþróttamanni Mána sem er í ár Jóhanna Margrét Snorradóttir .
Jóhanna Margrét Snorradóttir náði mjög góðum árangri á árinu 2011. Hún hefur verið að standa sig mjög vel undanfarin ár og er hvarvetna til fyrirmyndar og stundar sína íþrótt miklum þrótti og metnaði.

Hennar helsti árangur á árinu sem nú er senn á enda er:
Hún vann unglingaflokkinn á Landsmótinu með eftirminnilegum hætti, Íslandsmeistari í fimmgang unglinga, Suðurlandsmeistari í Fjórgangi og fimmgangi unglinga.
Stjórn Mána óskar Jóhönnu Margréti innilega til hamingju með árangurinn og titilinn.
Árangur Jóhönnu Margrétar 2011:
Vetramót
3.sæti

Kristjánsmótið
1. sæti

Vetramót
1.sæti

Iþróttamót Mána
Tölt – 2.sæti
Fjórgangur – 3.sæti,
Fimmgangur – 3-4 sæti

Firmakeppni
Unglingaflokkur – 2. sæti
B-flokkur – 1.sæti
Parareið – 2.sæti

Mánaþing
Unglingaflokkur – 1. sæti
Tamningaflokkur – 4.sæti

Landsmót
1. sæti

Íslandsmót
Fimmgangur – 1.sæti
Fjórgangur – 3.sæti

Suðurlandsmót
Fjórgangur – 1.sæti
Fimmgangur – 1.sæti