Íþróttamót Loga, Trausta og Smára verður haldið í Hrísholti laugardaginn 26.maí n.k. og hefst kl.10.00. Keppt verður í: Tölti og fjórgangi í barna-,unglinga-,ungmenna- og fullorðinsflokki.
Fimmgangi í ungmenna– og fullorðinsflokki.
Gæðingaskeiði.
Ath. Ekki verður keppt í ungmennaflokki ef ekki næst næg þátttaka.
Fipo reglur gilda
Skráning þarf að berast fyrir kl. 16.00 fimmtudaginn 24.maí.
Þeir sem taka á móti skráningu eru:
Guðný: sími 8956507 email. gudny@blaskogabyggd.is
Manni sími 8990772 email lkot@simnet.is
Lára sími 8639582 email elinlara@emax.is
Karen sími 4864455 email karen@emax.is
Í skráningu þarf að koma fram: Nafn sími og kennitala knapa.
IS númer og nafn hests og á hvora hönd skal riðið.
Skráningargjald verður 1500 kr, fyrir börn og unglinga en 2500 kr. fyrir ungmenni og fullorðna.
Keppni verður milli félaganna um bikar sem stigahæsta félagið fær .
Mætum sem flest og keppum fyrir félagið okkar.














