Úrslit í fjórgangi fóru að mestu eftir fyrirframgefinni uppskrift. Lena Trappe er í efsta sæti á Vaski frá Lindenhof með 7,80. Ásta Bjarnadóttir heldur áfram að koma á óvart á Dynjanda frá Dalvík. Skaust í annað sætið eins og ekkert væri með 7,60 í einkunn. Lucia Koch á Jarli frá Miðkrika er í því þriðja með 7,57.
Jóhann Skúlason reið gott prógramm í fjórgangi á Hvini frá Holtsmúla og er í fimmta sæti ásamt Jolly Schrenk á Gandi frá Igelsburg. Jóhann varði þar með heimsmeistaratitil sinn sem samanlagður sigurvegari í fjórgangsgreinum. Glæsilegur árangur.
Aðal fjórgangari íslenska liðsins, Snorri Dal á Oddi frá Hvolsvelli, var hins vegar ekki í sínu besta formi, hafnaði í níunda sæti. Hann á hins vegar góða möguleika á að komast upp úr B úrslitum. Hefur að margra mati bestu grunngangtegundir allra keppnishesta hér á HM09. Hin bráðefnilega Anne Stine Haugen á Muna frá Kvistum er í ellefta sæti og gæti því dottið inn í B úrslitin ef einhver dregur sig út. Sem er líklegt.














