Á síðastliðnu ári íhugaði ég það vel hvort markaður væri fyrir einn frétta og afþreyingarmiðil í viðbót fyrir hestamenn og áhugafólk sem tengist þessu sívinsæla sporti. Eftir miklar vangaveltur og fundi með fólki sem starfar í þessum geira var ákveðið að taka af skarið og hrinda þessari framkvæmd af stað. Tölvu og netheimurinn er flókinn markaður og ákvað ég að fá einungis þá bestu og færustu til að setja upp þessa vefi þ.e. www.hestafrettir.is og www.icehorsenews.com og er þetta útkoman.
Þær nýjungar sem Hestafréttir hafa fram yfir aðra vefi eru er Vef TV, Veftímarit og Stóðhestablað sem einnig verður eingöngu gefið út á netinu. Það sem sárlega hefur vantað er öflugur smáauglýsingavefur og blogg vefir fyrir þennan markað og er þetta hvoru tveggja að finna á Hestafréttir.
Ritstjóri hefur ekki verið ráðinn á þennan miðil en verður gert mjög fljótlega og ætla ég honum að móta fasta og ábyrga stefnu á vefnum og blöðunum.
Blaðamenn og ljósmyndarar hafa þegar verið ráðnir.
Ég vona að vefurinn verði ykkur til ánægju og þæginda.
Kær kveðja
Fjölnir Þorgeirsson




















