KB Mótaröðin

Þann 19 mars næstkomandi verður 3 og jafnframt síðasta mót KB mótaraðarinnar haldið í Faxaborg. Mótið er opið öllum sem áhuga hafa. Mikið verður um verðlaunaafhendingar að mótaröð lokinni og til mikils að vinna, þar sem 5 stigahæstu knapar í...

Þann 19 mars næstkomandi verður 3 og jafnframt síðasta mót KB mótaraðarinnar haldið í Faxaborg. Mótið er opið öllum sem áhuga hafa. Mikið verður um verðlaunaafhendingar að mótaröð lokinni og til mikils að vinna, þar sem 5 stigahæstu knapar í hverjum flokk (Faxi/Skuggi) verða verðlaunaðir, 3 stigahæstu knapar í hverjum flokk ( óháð félagi), verða jafnframt verðlaunaðir, 3 stigahæstu liðin fá verðlaun og valinn verður vinsælasti knapinn af áhorfendum,.

Keppt verður í tölti og fimmgangi.
Mótið hefst kl.12:00
Tölt – Barna-, unglinga-, ungmenna-, 1.flokkur(meira vanir), 2.flokkur(minna vanir), Opinn flokkur
Fimmgangur – Opinn flokkur og 1.flokkur
Skráningar þurfa að berast fyrir kl. 22:00 miðvikudaginn 16.mars á netfangið hrafnhildurgu@torg.is, eða í s. 691-0280 eða 699-6116.
Eftirtalið þarf að koma fram: Keppnisflokkur, nafn og kennitala knapa, nafn og IS númer hests, lið( ef viðkomandi er í liði) og aðildarfélag eiganda hestsins. Skráningargjald er 1500.kr fyrir 1.,2.flokk, opinn flokk og ungmenni. (1.000 kr.fyrir annan hest) 1000 kr.fyrir börn og unglinga. Greiðist inn á reikning 0326-13-004810.Kt. 481079-0399 í síðasta lagi fimmtudaginn 17.mars annars verður viðkomandi ekki settur á ráslista. Sendið kvittun á helga.bjork@simnet.is þar sem fram þarf að koma fyrir hvaða knapa og hest er verið að greiða.
Aðgangseyri 500kr.
Mótaröðin fer fram í reiðhöllinni í Borganesi og er haldin á vegum hestamannafélaganna Faxa Skugga.