Keppni hafin í Tölti á HM

Camilla Petra er í þriðja sæti á Sporð frá Höskuldsstöðum þegar 15 keppendur hafa lokið keppni í forkeppni í tölti á heimsleikum í Hollandi. Röðin á eftir að breytast ört en allra sterkustu hestarnir keppa eftir hádegi í dag. Í...

Camilla Petra er í þriðja sæti á Sporð frá Höskuldsstöðum þegar 15 keppendur hafa lokið keppni í forkeppni í tölti á heimsleikum í Hollandi. Röðin á eftir að breytast ört en allra sterkustu hestarnir keppa eftir hádegi í dag. Í fyrsta sæti er Bernhard Podlech og Fenna vom Wiesenhof eins og staðan er núna og í öðru sæti er Emma Wahlstedt og Reynir frá Hólshúsum.Sigurður Sigurðarson skráði sig úr keppni með Flugar frá Holtsmúla. Nánar verður sagt frá forkeppninni þegar líður á.