Knapamerki 1, 2 og 3 verða kennd við Reiðskóla Hestheima

Knapamerki 1, 2 og 3 verða kennd við Reiðskóla Hestheima í vetur. Tímar vikulega allan ársins hring. Fyrstu nemendur í Reiðskóla Hestheima sem þreyttu prófin í Knapamerkjum 1 og 2, stóðu sig svo vel að eftir því var tekið. Kennari...

Knapamerki 1, 2 og 3 verða kennd við Reiðskóla Hestheima í vetur. Tímar vikulega allan ársins hring. Fyrstu nemendur í Reiðskóla Hestheima sem þreyttu prófin í Knapamerkjum 1 og 2, stóðu sig svo vel að eftir því var tekið. Kennari var Barbara Meyer sem einnig er aðalkennari Reiðskólans og dómari Sigurður Sigurðarson.

Tímar verða á miðviku- og fimmtudögum klukkan 17:00 og 18:00. Fyrirkomulagið er afar neytendavænt; nemendur kaupa 10 tíma gatakort sem einungis er tekið af þegar þeir geta mætt. Reiðskólinn útvegar hesta, hjálma, reiðtygi, kennslu og alla aðstöðu. Hestheimar eru í aðeins eins tíma akstursfjarlægð frá Reykjavík og eru sífellt fleiri nemendur frá því svæði.
Nemendum er skipt í hópa eftir getu. Aldur nemenda er frá 5-70 ára.

Farið verður í flesta þætti reiðmennskunar og má þar nefna:
• Umgengi og hirðingu
• Ásetu og jafnvægi
• Fimiæfingar
• Vinnu í hendi og hringteymingar
• Gangtegundir
• Undirbúning fyrir keppni
• Knapamerkin
• Sýningaratriði
• Hindrunarstökk
• og margt fleira !
Allar nánari upplýsingar eru fúslega veittar í síma: 487-6666 og hestheimar@hestheimar.is