Knapar á landsmóti fá fóðurbæti að gjöf

Allir knapar á landsmóti hestamanna fá 2kg poka af Þokka fóðurbæti að gjöf, frá Fóðurblöndunni. Þokki er fóðurbætir sérhannaður fyrir hesta og framleiddur með sérstakri þantækni sem eykur meltanleikan. Efnainnihaldið í kögglunum er aðlagað íslenskum aðstæðum. Ef gefið er um...
Allir knapar á landsmóti hestamanna fá 2kg poka af Þokka fóðurbæti að gjöf, frá Fóðurblöndunni. Þokki er fóðurbætir sérhannaður fyrir hesta og framleiddur með sérstakri þantækni sem eykur meltanleikan.
Efnainnihaldið í kögglunum er aðlagað íslenskum aðstæðum. Ef gefið er um 1kg á dag með heyi á það að fullnægja þörfum hestsins fyrir öllum vítamínum og steinefnum. Einnig hafa menn séð að með því að gefa bíotín batnar hóf og hárvöxtur til muna. Ekki er þörf á að gefa auka vítamín og steinefnalöndur eða bíotín ef gefið er 1kg á dag af kögglunum. Kögglarnir fara einkar vel í vasa á reiðúlpunni.
Pokarnir fást afhentir í Verslun KS í Varmahlíð.
Með landsmótskveðju
Fóðurblandan h.f