Þá er skráningum á Íslandsmót 2007 í hestaíþróttum, sem haldið verður við Hringsholt í Svarfaðardal dagana 12.-14. júní nk. lokið og eru skráningar á fjórða hundrað. Listi yfir skráningar verður settur inn á heimasíðu mótsins www.hringur.de í kvöld (þriðjudaginn 3.júlí) og eru knapar beðnir um að yfirfara skráningar og láta vita ef einhverjar villur hafa slæðst inn.
Athugasemdir má senda á netfangið halldor@rimar.is eða hringja í 847 5446. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út um hádegi á fimmtudag 5. júlí.
Jafnframt eru knapar minntir á að panta hesthúspláss og/eða hólf hjá Veroniku Konráðsdóttur í s: 466 1546 eða 864 0656. Nauðsynlegt er að menn hafi með sér borða og staura til að stúka sig af í hólfum.
Hey og kurl er hægt að fá keypt á staðnum.














