Árni Beinteinn Erlingsson, búseti á Laugarbóli í Arnarfirði, er með mikla umsetningu en hann hefur byggt upp jörðina fyrir hundruð miljjóna króna. Meðal annars er á jörðinni forláta reiðhöll, innréttuð með burstuðu stáli og eik. Árni er kvæntur Auði Einarsdóttur sem er eitt barna Einars ríka Sigurðssonar. Afkomendur Einars voru umtalaðir fyrir að hafa með dómi úthýst Kvennaathvarfinu af Bárugötu þar sem Auður býr nú.
Árni reisti auð sinn með kvótapeningum en hefur nú snúið sér að hrossarækt en hann er einn eigenda þess fræga stóðhests, Orra frá Þúfu. Þykir uppbygging Árna í Arnarfirði fyrir kvótapeningana vera mikill happafengur fyrir svæði sem verið hefur á miklu undanhaldi vegna fólksflótta en það er einmitt kvótinn sem sett hefur allt á hliðina.
Frétt – Reynir Traustason – rt@dv.is






















