Sýningar á vegum Búnaðarsambands Suðurlands verða fjórar og er reiknað með að dómar standi samfleytt frá 12. maí til 12. júní. Sýningar á Suðurlandi verða þrjár. Fyrsta sýningin verður í Víðidal í Reykjavík, síðan á Sörlastöð í Hafnarfirði og síðasta sýningin á þessu vori verður á Gaddstaðaflötum við Hellu.
Stefnt er að sýningu í Hornafirði ef næg þátttaka fæst, lágmarks skráning er 15 hross. Í fyrra ákvað fagráð í samráði við FEIF að leyfilegt væri að koma með hross einvörðungu í reiðdóm. Þ.e.a.s. eigandi getur valið að láta byggingardóm standa hafi hrossið verið dæmt fullnaðardómi á síðustu 60 dögum. Aðeins er val um síðasta dóm.
Hér fyrir neðan má sá sýningartíma og skráningardaga á hverja sýningu.
Víðidalur í Reykjavík dagana 12. til 15. maí
Tekið við skráningum í síma 480-1800 dagana 29.apríl til 4. maí
Sörlastaðir í Hafnarfirði dagana 18. til 29. maí
Tekið við skráningum í síma 480-1800 dagana 6. til 8. maí
Héraðssýning Gaddstaðaflötum dagana 2. til 12. júní
Tekið við skráningum í síma 480-1800 dagana 18. og 20. maí
Hornafjörður 11. júní
Tekið við skráningum í síma 470-8088/864-6487 dagana 3.og 5. júní
Rétt er að minna á að það er einnig hægt að skrá hross til sýningar á heimasíðu Búnaðarsambandsins, www.bssl.is. Sýningargjald á hvert hross er 13.500 kr. Ef hross er einvörðungu skráð í byggingardóm eða hæfileikadóm er sýningargjaldið 9.000 kr.
Eftirfarandi þarf að gera með góðum fyrirvara fyrir sýningar: Láta taka stroksýni, blóðsýni og röntgenmynda stóðhesta fimm vetra og eldri. Reglur um kynbótasýningar má sjá í heild sinni á slóðinni www.bssl.is.
Búnaðarsamband Suðurlands







