Krónprins Friðrik og Mary krónprinsessa brugðu sér á hestbak í Dallandi við Hólmsheiði í morgun en þau munu bæði vera hestafólk. Með í för voru meðal annars íslensku forsetahjónin og danskt fjölmiðlafólk sem hreifst mjög af því hvað íslenski hesturinn er þýðgengur á tölti. Tvær stúlkur sýndu það á áhrifaríkan hátt þegar þær riðu með barmafull bjórglös án þess að dropi skvettist niður.
Einnig var sett upp hrossasýning og síðan var haldið að Nesjavöllum þar sem jarðorkuverið var skoðað.
Frétt visir.is




















